1
Fólk

Selja eitt skrautlegasta heimili borgarinnar

2
Fólk

„Við vorum bara alltaf að borða afganga og höfðum úr litlu að moða“

3
Landið

Líkur á eldingum og hellidembu

4
Heimur

Fleiri smitast af hinni banvænu Nipah-veiru

5
Heimur

Tekinn fullur á bíl í ljósum logum

6
Heimur

Óskarsverðlaun klámstjarna afhent

7
Innlent

Lögreglan vakti íslenska Þyrnirós

8
Pólitík

Helga yfirgefur Arion fyrir Miðflokkinn

9
Innlent

Þrír sendir á spítala eftir slys

10
Innlent

Dóra leiðréttir misskilning fjölmiðla

Til baka

Rasistastimpillinn truflar ekki Miðflokksmanninn Sverri

„Þegar gyðingar rífa kjaft við evrópubúa þá söfnum við þeim saman í gasklefa.“

Sverrir Helgason
Helgi Hrafn og SverrirSverrir segist mega nota N-orðið
Mynd: Skjáskot

Sverrir Helgason, stjórnarmaður í ungliðahreyfingu Miðflokksins og umsjónarmaður Bjórkastsins, sagði í nýjasta þætti þáttarins að erfðafræði skipti miklu máli þegar metið er hvernig fólk aðlagast samfélögum. Hann játaði jafnframt að það myndi ekki trufla hann að vera kallaður rasisti. Þetta kemur fram í frétt mbl.is.

Samtalið átti sér stað þegar gestur þáttarins, Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, ræddi móttöku innflytjenda. Sverrir spurði hvort þjóðernislegur uppruni hefði ekki áhrif, og hélt því fram að menning endurspeglaði „genamengi samfélagsins“.

Helgi lýsti yfir undrun á ummælum Sverris og benti á að slíkar fullyrðingar væru rasískar. Sverrir samþykkti það í raun og sagði að hann liti á sig sem „race-realist“, sem útleggst á íslensku sem kynþáttaraunhyggjumaður.

Hann hélt áfram að segja að samfélög í Afríku sunnan Sahara endurspegluðu genamengi íbúanna og fullyrti að „sönnunargögnin væru augljós“. Helgi mótmælti og lagði áherslu á að gáfur og getu fólks væru ekki bundnar þjóðerni þeirra.

Segist mega segja N-orðið

Sverrir hefur einnig farið hamförum í athugasemdakerfum með rasískum ummælum en þann 5. janúar á þessu ári skrifaði hann eftirfarandi athugasemd:

„Forfeður mínir áttu ekki afríska þræla, högnuðust aldrei á þrælahaldi á þeim, höfðu sennilega enga vitneskju um það. þess vegna má ég segja nigger. þetta er bannorð í bna af sögulegum ástæðum sem eiga ekki við á íslandi. þetta er mín krafa á fyrsta maí.“

UPPFÆRT

Í færslu á samfélagsmiðlum hef Sverrir tilkynnt að hann hafi sagt af sér.

„[É]g var nú bara varamaður í stjórn, en þar sem ég vil fá að halda áfram að tjá mig og ögra eins og mig langar til án þess að það kasti rýrð á það góða starf sem á sér stað hjá ungum miðflokksmönnum þá segi ég stöðu minni þar lausri.“

skjáskot
Mynd: Skjáskot

Sverrir bætti síðan við:

„það er ekki hægt að banna mér að segja eitthvað orð. sá sem leyfir einhverjum öflum að banna sér að segja einhver orð er að gefa þeim gríðarlegt vald yfir sér. þetta er hluti af psyoppi til að fá fólk til að vera móttækilegri fyrir svona bönnum. fyrsta vígið er nigger.“

skjáskot2
Mynd: Skjáskot

Þann 11. apríl síðastliðinn skrifaði hann andgyðinglega athugasemd sem hljómaði á eftirfarandi hátt:

„öll saga palestínumanna er bara þeir að vera rassskelltir af gyðingum. sorglegasta þjóð allra tíma. þegar gyðingar rífa kjaft við evrópubúa þá söfnum við þeim saman í gasklefa. levels.“

skjáskot3
Mynd: Skjáskot
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Ragga nagli varar við „földum faraldri“
Fólk

Ragga nagli varar við „földum faraldri“

„Lækningin við einmanaleika er samfélag“
Ákærður fyrir að taka son sinn hálstaki
Innlent

Ákærður fyrir að taka son sinn hálstaki

Reykvískur þjófur tekinn með óvenjulegt vopn fyrir utan Dillon
Innlent

Reykvískur þjófur tekinn með óvenjulegt vopn fyrir utan Dillon

Hjól losnaði af British Airways-flugvél í flugtaki frá Las Vegas
Myndband
Heimur

Hjól losnaði af British Airways-flugvél í flugtaki frá Las Vegas

Lík ungs ferðamanns fannst á Lanzarote
Heimur

Lík ungs ferðamanns fannst á Lanzarote

Þorgerður Katrín sökuð um hræsni í minningarfærslu um helförina
Innlent

Þorgerður Katrín sökuð um hræsni í minningarfærslu um helförina

Saka dómsmálaráðherra um lygar í máli rússneskrar fjölskyldu
Innlent

Saka dómsmálaráðherra um lygar í máli rússneskrar fjölskyldu

Selja einbýli með stórbrotnu útsýni
Myndir
Fólk

Selja einbýli með stórbrotnu útsýni

„Rosalega er þetta slappt“
Pólitík

„Rosalega er þetta slappt“

Verkefnastjóri Miðflokksins hæðist að erlendum nemendum
Pólitík

Verkefnastjóri Miðflokksins hæðist að erlendum nemendum

Þrír sendir á spítala eftir slys
Innlent

Þrír sendir á spítala eftir slys

Eltingaleikur Íslands endaði með svekkjandi jafntefli
Sport

Eltingaleikur Íslands endaði með svekkjandi jafntefli

Innlent

Ákærður fyrir að taka son sinn hálstaki
Innlent

Ákærður fyrir að taka son sinn hálstaki

Líkamsárásin átti sér stað um áramót
Tveir fingralangir hlutu dóm fyrir að stela dýrum verkfærum
Innlent

Tveir fingralangir hlutu dóm fyrir að stela dýrum verkfærum

Reykvískur þjófur tekinn með óvenjulegt vopn fyrir utan Dillon
Innlent

Reykvískur þjófur tekinn með óvenjulegt vopn fyrir utan Dillon

Þorgerður Katrín sökuð um hræsni í minningarfærslu um helförina
Innlent

Þorgerður Katrín sökuð um hræsni í minningarfærslu um helförina

Saka dómsmálaráðherra um lygar í máli rússneskrar fjölskyldu
Innlent

Saka dómsmálaráðherra um lygar í máli rússneskrar fjölskyldu

Þrír sendir á spítala eftir slys
Innlent

Þrír sendir á spítala eftir slys

Loka auglýsingu