Samkynhneigt fólk sem á í samkynjasamböndum er ekki velkomið í kaþólsku kirkjuna á Íslandi en greint er frá þessu á RÚV.
„Allir eiga heima í kirkjunni og mega ákalla guð til að fá hreinsun sálarinnar og komast til himnaríkis,” segir séra Jakob Rolland, kanslari kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, við RÚV. „En það þýðir um leið að [maður þarf] virkilega að rannsaka eigið líferni.”
Jakob segir þó að samkynhneigt fólk sem ekki á í ástarsamböndum við samkynja fólk sé velkomið og samkynhneigt fólk geti leitað aðstoðar presta kirkjunnar vilji það breyta líferni sínu.
„Það er það sem vantar mjög mikið í nútímaþjóðfélagi. Sá sem vill komast út úr slíku líferni fær enga aðstoð.”
Rétt er að taka fram að bann við þvinguðum bælingarmeðferðum, og bælingarmeðferðum á börnum, var fest í lög á Íslandi árið 2023. Þykja slíkar meðferðir bæði siðferðislega rangar og styðjast ekki við vísindi.
Að sögn kaþólsku kirkjunnar stundar kirkjan þó ekki bælingarmeðferð heldur andlega leiðsögn.


Komment