
Sanna Magdalena Mörtudóttir hefur sagt sig frá trúnaðarstörfum fyrir Sósíalistaflokki Íslands.
„Í ljósi aðdragandans að þeim breytingunum sem síðar urðu á aðalfundi Sósíalistaflokks Íslands hef ég tekið þá ákvörðun að segja mig frá trúnaðarstörfum í innra starfi flokksins.“
Miklar deilur hafa verið innan flokksins á undanförnum misserum og nokkurs konar hallarbylting var gerð nýverið á aðalfundi flokksins - og var Sanna ekki ánægð með þá niðurstöðu: Hún var á fundinum endurkjörin pólitískur leiðtogi flokksins en segir í athugasemd við færsluna að hún muni ekki lengur sinna hlutverki pólitísks leiðtoga Sósíalistaflokks Íslands.
Á aðalfundinum varð heilmikið uppnám varð á aðalfundi þegar hópur er stillti sér upp til höfuðs Gunnari Smára Egilssyni hlaut kjör til framkvæmdarstjórnar flokksins.
Sanna hefur sagt sitt um málið en fer þó hvergi eins og staðan er nú.
„Ég verð áfram skráð í flokkinn og mun beina öllum mínum kröftum að starfi mínu sem oddviti borgarstjórnarflokksins.“
Sanna segir sitt helsta markmið í lífinu vera það „að vinna gegn efnahagslegu óréttlæti.“
Komment