1
Peningar

„Nablinn“ hefur fyrirtækjarekstur

2
Innlent

Ríkislögreglustjóri tjáir sig um ummæli Stefáns Einars

3
Heimur

Klámstjarnan Bonnie Blue ákærð

4
Fólk

Óska eftir tilboðum í ARKO-hús

5
Menning

Jón Adólf með eina óvenjulegustu listasýningu Kaupmannahafnar

6
Pólitík

Sólveig Anna gagnrýnir Ingu Sæland harðlega

7
Pólitík

Feminísk fötlunarhreyfing styrkt um milljónir

8
Innlent

Verslun í Laugardalnum rænd

9
Innlent

Reykvíkingur faldi tíu þúsund evrur í skóm

10
Heimur

TikTok-stjarna látin eftir lýtaaðgerð

Til baka

Sex matvæli sem aldrei ætti að gefa hundum að éta

Það gæti reynst banvænt

Maður með hund
Maður með hund í ReykjavíkMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur

Gæludýraeigendur eru hvattir til að sýna sérstaka varúð þegar kemur að ákveðnum matvælum sem geta reynst hundum stórhættuleg. Ýmis algeng matvæli og sælgæti sem fólk neytir daglega geta valdið alvarlegum veikindum eða jafnvel dauða hjá hundum.

Mannlíf hefur tekið saman nokkur þeirra matvæla

Xylitol

Sætuefnið xylitol, sem oft er að finna í tyggigúmmíi, sælgæti, tannkremi, bakkelsi og getur haft lífshættuleg áhrif á hunda. Efnið getur valdið snöggu blóðsykursfalli og lifrarbilun. Fyrstu einkenni eitrunar geta verið uppköst, slappleiki og jafnvægisleysi, en í alvarlegum tilfellum geta komið fram krampar og lífshættuleg lifrarskemmd á örfáum dögum.

Áfengi

Áfengi er einnig afar hættulegt fyrir hunda, þar sem það hefur svipuð áhrif á heila og lifur þeirra og hjá mönnum, þó í mun minna magni. Neysla á bjór, víni, sterku áfengi eða mat sem inniheldur áfengi getur valdið uppköstum, niðurgangi, öndunarerfiðleikum, meðvitundarleysi og í verstu tilfellum dauða. Minni hundar eru sérstaklega viðkvæmir fyrir slíkri eitrun.

Laukar

Laukur og hvítlaukur, hvort sem þeir eru hráir, soðnir, þurrkaðir eða í duftformi, geta eyðilagt rauð blóðkorn hunda og valdið blóðleysi. Einkenni geta meðal annars verið slappleiki, uppköst og öndunarerfiðleikar. Jafnvel lítið magn getur reynst skaðlegt.

Koffín

Koffín í mat getur valdið alvarlegum veikindum og jafnvel dauða hjá hundum. Koffín er jafnframt að finna í sumum lyfjum, svo sem verkja- og kveflyfjum. Ef grunur vaknar um að hundur hafi innbyrt koffín er mikilvægt að leita tafarlaust til dýralæknis.

Vínber

Vínber og rúsínur geta valdið bráðri nýrnabilun hjá hundum. Jafnvel lítið magn getur haft alvarleg áhrif. Endurtekin uppköst eru oft fyrstu merki eitrunar, en innan sólarhrings getur hundurinn orðið sljór og áhugalaus.

Súkkulaði

Súkkulaði er meðal þekktustu hættuefna fyrir hunda. Dökk súkkulaði og ósætt bökunarsúkkulaði eru hættulegust. Neysla súkkulaðis getur valdið uppköstum, niðurgangi, hjartatruflunum, skjálfta, krömpum og jafnvel dauða.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Svikapóstar sendir í nafni þekktra fyrirtækja
Innlent

Svikapóstar sendir í nafni þekktra fyrirtækja

Lögreglan biður fólk að varst þessa tölvupóst
Oddviti Miðflokksins vill loka MAST
Pólitík

Oddviti Miðflokksins vill loka MAST

Sagnfræðingur segir Trump hafa breyst í „stríðsforseta“
Pólitík

Sagnfræðingur segir Trump hafa breyst í „stríðsforseta“

Handtekinn eftir hættulega eftirför á Tenerife
Heimur

Handtekinn eftir hættulega eftirför á Tenerife

Íran hótar harðari árásum eftir skemmdir á orkuinnviðum
Heimur

Íran hótar harðari árásum eftir skemmdir á orkuinnviðum

Ellefu ára drengur ákærður fyrir að myrða litla bróður sinn
Heimur

Ellefu ára drengur ákærður fyrir að myrða litla bróður sinn

Ríkislögreglustjóri tjáir sig um ummæli Stefáns Einars
Innlent

Ríkislögreglustjóri tjáir sig um ummæli Stefáns Einars

Val Kilmer „leikur“ í nýrri kvikmynd
Heimur

Val Kilmer „leikur“ í nýrri kvikmynd

Gary Glitter sagður „á síðasta snúningi“ í fangelsinu
Heimur

Gary Glitter sagður „á síðasta snúningi“ í fangelsinu

Kalla eftir banni við loðdýraeldi á Íslandi
Innlent

Kalla eftir banni við loðdýraeldi á Íslandi

Rosalega huggulegt raðhús í Löndunum til sölu
Myndir
Fólk

Rosalega huggulegt raðhús í Löndunum til sölu

TikTok-stjarna látin eftir lýtaaðgerð
Heimur

TikTok-stjarna látin eftir lýtaaðgerð

Fólk

Rosalega huggulegt raðhús í Löndunum til sölu
Myndir
Fólk

Rosalega huggulegt raðhús í Löndunum til sölu

Húsið var byggt árið 1969
Vélmennahúsið í Árbænum sett á sölu
Myndir
Fólk

Vélmennahúsið í Árbænum sett á sölu

Óska eftir tilboðum í ARKO-hús
Myndir
Fólk

Óska eftir tilboðum í ARKO-hús

Selja dýrasta parhús landsins
Myndir
Fólk

Selja dýrasta parhús landsins

Ofurstjarna dáðist að íslenskri náttúru
Myndir
Fólk

Ofurstjarna dáðist að íslenskri náttúru

„Hvenær ætlum við að vakna upp af dáleiðslunni?”
Myndband
Fólk

„Hvenær ætlum við að vakna upp af dáleiðslunni?”

Loka auglýsingu