Nemendur og starfsfólk Háskólans í Reykjavík settust niður í gær og perluðu armbönd fyrir Kraft, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur en greint er frá þessu í tilkynningu frá HR.
„Við höfum gert þetta áður með púsli og núvitund en nú vildum við láta gott af okkur leiða í leiðinni og perla fyrir ungt fólk með krabbamein,“ sagði Rakel Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík og vildi hún, fyrir hönd HR, skora á aðra íslenska háskóla til að gera slíkt hið sama.
Eva Sigrún Guðjónsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Krafts, segir að „Lífið er Núna“ armböndin séu stór liður í fjáröflun félagsins.
„Félagið er alfarið rekið af styrkjum einstaklinga og fyrirtækja ásamt sölu á varningi úr vefverslun Krafts. Það var því dýrmætt að fá HR með okkur í lið í dag, en HR-ingar perluðu hundruði armbanda, sem kemur sér vel fyrir skartgripaskrín Krafts,“ sagði Eva um málið.


Komment