
Skjáskot frá myndskeiðinuÁtti sér stað í Oradea.
Mynd: Skjáskot
Það mátti litlu muna að mjög illa færi þegar leið yfir 49 ára gamlan mann við stýrið á bíl sínum í Oradea í Rúmeníu.
Í myndbandi sem náðist af slysinu sést hvernig Mercedes-Benz bíll mannsins fer upp hól á hringtorgi á miklum hraða og flýgur í kjölfarið yfir þrjá bíla hinu megin við hólinn. Samkvæmt fjölmiðlum í Rúmeníu endaði bíllinn á rafmagnsstaur við bensínstöð.
Þar er einnig greint frá því að liðið yfir manninn við stýrið vegna blóðsykursfalls. Maðurinn braut mörg bein í árekstrinum en áverkar hans voru ekki lífshættulegir.
Hann hefur misst ökuréttindi sín í 90 daga og þarf að greiða 47 þúsund króna sekt.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment