
Brynjar Níelsson
Mynd: Alþingi
Það tók Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmann Sjálfstæðisflokksins, innan við sólarhring að ergja suma samflokksfélaga sína eftir að tilkynnt hafði verið um að Brynjar yrði í 3. sæti hjá flokknum í komandi borgarstjórnarkosningum.
Þingmaðurinn fyrrverandi lýsti því stoltur í viðtali við Morgunblaðið að lítill munur væri á Sjálfstæðisflokknum, Miðflokknum og Framsóknarflokknum í borgarstjórnarmálum. Þó að það kunni að einhverju leyti að vera rétt hjá Brynjari þá þykir sumum í flokknum ótrúlegt að hann hafi látið þessi orð falla um flokka sem berjast um sömu atkvæði Sjálfstæðisflokkurinn.
Rétt er þó að halda því til haga að Brynjari er sennilega nákvæmlega sama um þá óánægju sem hann hefur skapað ...
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment