1
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

2
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

3
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

4
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

5
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

6
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

7
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

8
Innlent

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm

9
Innlent

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni

10
Pólitík

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands

Til baka

Vandræðaleg Herdís

Herdís Dröfn
Mynd: Sýn

Hver sérfræðingurinn á fætur öðrum í heilbrigðismálum hefur komið fram í fréttum á Vísi síðustu dagana og mælt á móti heilskimunum sem fyrirtækið Intuens auglýsir stíft fyrir um 300 þúsund krónur.

Umfjöllunin hófst með viðtali við fulltrúa Intuens, sem sagði frá því að einkennalaus maður hefði greinst með fjórða stigs krabbamein og einungis lifað af vegna heilskimunar.

Meðal þeirra sem stigið hafa fram á Vísi og varað við heilskimun eru Helga Tryggvadóttir, formaður Félags íslenskra krabbameinslækna, Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir, Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, og Gunnar Þór Geirsson, formaður Félags íslenskra heimilislækna, sem segir heilskimun gera meiri skaða en gagn.

Fyrirtækið hefur fengið áhrifavalda til að kynna þjónustuna og upp á síðkastið birt viðtöl við fólk sem notar þjónustuna.

Það vandræðalega er að einn af áhrifavöldunum sem stigu fram í kynningarherferð Intuens er forstóri Sýnar, fyrirtækisins sem rekur Vísi.is, Herdís Dröfn Fjeldsted. Ekki hefur komið fram hvort hún hafi fengið afslátt af 300 þúsund króna skimuninni, sem hún segist fara reglulega í. Þess þarf þó varla, því hún var með 4,1 milljónir í mánaðarlaun 2024.

Félagið Sýn mun sjálft vera í skimunarferli með tilliti til þess að selja það í parta, eftir að hafa fallið svo mikið í kauphöllinni að það er aðeins eins þriðja virðisins sem það var fyrir þremur árum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Styrkja Mannlíf

Má bjóða þér að styrkja starfsemi Mannlífs með mánaðarlegu framlagi?


Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Marga Ingeborg Thome er látin
Minning

Marga Ingeborg Thome er látin

Síminn undir stýri var minnsta vandamálið í nótt
Innlent

Síminn undir stýri var minnsta vandamálið í nótt

„Sorg er ást sem á hvergi höfði sínu að halla“
Heimur

„Sorg er ást sem á hvergi höfði sínu að halla“

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

Maður gekk berserksgang í matvöruverslun í Umeå
Myndband
Heimur

Maður gekk berserksgang í matvöruverslun í Umeå

101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð
Heimur

101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan
Heimur

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands
Pólitík

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu
Innlent

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“
Pólitík

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni
Innlent

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni

Slúður

Síðasta kjörtímabil Ingu
Slúður

Síðasta kjörtímabil Ingu

Loka auglýsingu