
Dansari og danshöfundur sem kom fram í Strictly Come Dancing hefur fundist látinn á heimili sínu, 47 ára að aldri. Léo Blanco fannst meðvitundarlaus í íbúð sinni í Curitiba á föstudag og er dánarorsök hans enn ókunn.
Léo kom fram í brasilísku útgáfu Strictly Come Dancing en hann ólst upp í Cascavel í suðurhluta Brasilíu. Hann tók þátt í þáttunum Dança dos Famosos, sem jafngilda Strictly Come Dancing í Bretlandi.
Leikkonan Mariana Xavier, sem dansaði með Léo í þáttunum árið 2017, minntist hans á samfélagsmiðlum og skrifaði:
„Hann var kennarinn minn í Dança dos Famosos árið 2017, en meira en það var hann besti dansfélagi sem ég gat óskað mér í að láta þennan draum rætast – draum sem var líka hans.“
Aðrir sendu einnig samúðarkveðjur. Einn skrifaði: „Get ekki trúað því sem ég var að lesa. Þú varst einn besti maður í heimi. Guð minn, hvað þetta er sorglegt.“ Annar bætti við: „Hvíl í friði, samúðarkveðjur til fjölskyldunnar.“ Sá þriðji skrifaði: „Ástin mín, megi sálin þín finna frið. Við töluðum oft saman hér á Instagram. Hvíl í friði.“
Léo var vinsæll á samfélagsmiðlum, þar sem hann deildi oft myndum af sér berum að ofan og sýndi vel þjálfaðan líkama sinn. Hann birti reglulega myndskeið úr ræktinni og einnig frímyndir, meðal annars frá nýlegri ferð til Rio de Janeiro.

Komment