1
Innlent

Hver er Lúkas Geir?

2
Fólk

Selja miðbæjargimstein með sér bílastæði

3
Innlent

Veiðimaður ákærður

4
Stjórnandinn

Rík af reynslu og auðmjúk eftir röð áfalla

5
Innlent

Ráðist á mann við vinnu

6
Fólk

Með fallegri húsum Reykjavíkur á sölulista

7
Menning

Hinn vannýtti rababari

8
Pólitík

Vilja sterkari og skýrari hagsmunagæslu

9
Pólitík

Þorgerður Katrín ræddi við varaþjóðaröryggisráðgjafa Trump

Til baka

Þorgerður Katrín ræddi við varaþjóðaröryggisráðgjafa Trump

„Við höfum verið að horfa upp á vaxandi togstreitu í alþjóðasamskiptum“

ÞorgerðurBNA
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Andy BakerRæddu samskipti landanna.
Mynd: Stjórnarráðið

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti fund í síðustu viku með Andy Baker, varaþjóðaröryggisráðgjafa Bandaríkjaforseta, í Washington samkvæmt tilkynningu yfirvalda.

Tvíhliða samskipti Íslands og Bandaríkjanna bar hæst í samtölum þeirra en einnig staða heimsmála, sameiginlegir hagsmunir ríkjanna á norðurslóðum og fleira. Þá fundaði utanríkisráðherra með Elbridge Colby, aðstoðarvarnarmálaráðherra, og Jeff Goettman, varautanríkisviðskiptaráðherra Bandaríkjanna.

„Efst á baugi voru tvíhliða samskipti Íslands og Bandaríkjanna. Samband ríkjanna stendur styrkum fótum og það staðfesta fundir mínir hér í Washington. Við höfum verið að horfa upp á vaxandi togstreitu í alþjóðasamskiptum og það geisa stríð bæði í Evrópu og í Mið-Austurlöndum og því var mikilvægt að eiga þessi hreinskiptnu samtöl hér í Washington í dag.“ sagði Þorgerður Katrín.

„Ég tók upp málefni norðurslóða í þessum samtölum og Grænland sérstaklega bar líka á góma, bæði í þjóðaröryggisráðinu og varnarmálaráðuneytinu. Varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna hefur aldrei verið nánara og ég styrktist í trúnni hér um að bandarískir ráðamenn meta það mikils. Ég átti líka gott samtal við varautanríkisviðskiptaráðherra Bandaríkjanna. Bandaríkin eru eitt af okkar mikilvægustu viðskiptalöndum og mörg íslensk fyrirtæki reiða sig á Bandaríkjamarkað fyrir vörur sínar og þjónustu. Við ræddum m.a. tolla sem í gildi eru á íslenskar vörur til Bandaríkjanna. Íslensk og bandarísk stjórnvöld munu halda áfram samtali sem miðar að því að auka fyrirsjáanleika í viðskiptum ríkjanna” sagði utanríkisráðherra enn fremur.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Vilja sterkari og skýrari hagsmunagæslu
Pólitík

Vilja sterkari og skýrari hagsmunagæslu

Hafa verið í minnihluta í tvö ár
Með fallegri húsum Reykjavíkur á sölulista
Myndir
Fólk

Með fallegri húsum Reykjavíkur á sölulista

Rík af reynslu og auðmjúk eftir röð áfalla
Viðtal
Stjórnandinn

Rík af reynslu og auðmjúk eftir röð áfalla

Selja miðbæjargimstein með sér bílastæði
Myndir
Fólk

Selja miðbæjargimstein með sér bílastæði

Hver er Lúkas Geir?
Nærmynd
Innlent

Hver er Lúkas Geir?

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum
Innlent

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“
Pólitík

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair
Fólk

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt
Innlent

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt

Pólitík

Þorgerður Katrín ræddi við varaþjóðaröryggisráðgjafa Trump
Pólitík

Þorgerður Katrín ræddi við varaþjóðaröryggisráðgjafa Trump

„Við höfum verið að horfa upp á vaxandi togstreitu í alþjóðasamskiptum“
Ísland tekur þátt í máli fyrir Alþjóðadómstólnum
Pólitík

Ísland tekur þátt í máli fyrir Alþjóðadómstólnum

Vilja sterkari og skýrari hagsmunagæslu
Pólitík

Vilja sterkari og skýrari hagsmunagæslu

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“
Pólitík

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“

Landsliðshetja leiðir Miðflokkinn
Pólitík

Landsliðshetja leiðir Miðflokkinn

Veitir 91 milljón í styrki
Pólitík

Veitir 91 milljón í styrki

Loka auglýsingu