
Þrátt fyrir aukna tækni, eftirlit og alþjóðlegt samstarf lögregluyfirvalda eru enn dæmi um raðmorðingja sem ganga lausir árum saman. Hér er smá yfirferð af þremur slíkum málum frá síðustu árum þar sem gerendur hafa ekki náðst, eða sloppið úr haldi, og hafa skilið eftir sig ótta og spurningar um öryggi.
„Little Rock Ristarinn“
Í Little Rock í Arkansas í Bandaríkjunum er enn leitað að óþekktum manni sem tengdur er við fjórar hnífaárásir á árunum 2020 til 2021. Þrír létust og einn lifði af.
Fórnarlömbin sem létust voru Larry McChristian, 64 ára, Jeff Welch, 62 ára, og Marlon Franklin, 40 ára. Debra Walker, 42 ára, lifði árásina af þrátt fyrir að hafa verið stungin 15 sinnum og er eini þekkti sjónarvotturinn. Lýsti hún manninum sem hávöxnum, grönnum og svörtum karlmanni, yfir sex fet á hæð, klæddur dökkum fötum.
Árásirnar áttu sér stað að næturlagi, yfirleitt á milli klukkan eitt og fjögur, og beindust að einstaklingum sem voru einir á ferð. Fórnarlömbin virtust valin af handahófi og í sumum tilfellum voru þau í viðkvæmri stöðu, meðal annars heimilislaus.
Engin merki voru um rán eða kynferðisbrot, sem styrkir þá kenningu að árásirnar hafi verið drifnar áfram af hreinu ofbeldi. Þrátt fyrir að FBI hafi komið að rannsókninni, eftirlitsmyndavélar hafi náð óskýrum myndum af grunuðum og háar fjárhæðir hafi verið boðnar fyrir upplýsingar, hefur enginn verið handtekinn og er málið enn óupplýst.
Leikfangabílamorðinginn
Í borginni Culiacán í Mexíkó rannsaka yfirvöld röð morða sem hafa vakið sérstaka athygli vegna óvenjulegra og óhugnanlegra einkenna.
Alls hafa fimm fórnarlömb fundist á stuttum tíma eða frá 2019 til 2023, dreifð um borgina, og bera þau öll merki um pyntingar og skotáverka. Eitt fórnarlambanna hefur verið nafngreint sem Carlos N., en nöfn hinna hafa ekki verið gerð opinber.
Það sem vekur þó hvað mestan óhug er að á líkum fórnarlambanna hafa fundist leikfangabílar en eitt þeirra var með innkaupakerru ofan á sér, atriði sem benda til ákveðins „undirskriftar“ gerandans.
Yfirvöld telja líklegt að sami aðili standi að baki morðunum, en enn sem komið er liggja hvorki fyrir skýr hvöt né tengsl milli fórnarlamba en þau eiga það þó öll sameiginlegt að vera bílaþjófar.
Slátrarinn í Kware
Í Kenía er Collins Jumaisi Khalusha einn eftirlýstasti maður landsins og mál hans hefur vakið alþjóðlega athygli.
Hann var handtekinn árið 2024 eftir að líkamsleifar fjölda kvenna fundust í Kware-fátækrahverfinu í Nairobi, meðal annars í plastpokum í yfirgefnum námusvæðum. Hann er talinn hafa myrt yfir 40 konur á tveggja ára tímabili.
Meðal fórnarlamba hans er eiginkona hans, Imelda Judith Khalenya, en flest fórnarlambanna voru ungar konur á aldrinum 18 til 30 ára.
Skömmu eftir handtöku slapp hann hins vegar úr haldi lögreglu ásamt öðrum föngum eftir að hafa komist út úr fangaklefa og yfir girðingu fangelsisins. Flóttinn vakti mikla reiði og gagnrýni, ekki síst þar sem um var að ræða eitt öruggasta lögregluhús landsins.
Þrátt fyrir umfangsmikla leit, handtökur tengdra aðila og peningaverðlaun fyrir upplýsingar hefur honum enn ekki verið náð. Málið hefur orðið tákn um brotalamir í öryggiskerfi landsins og tortryggni í garð yfirvalda.

Komment