
Þröstur Jónsson, sveitarstjórnarfulltrúi Miðflokksins í Múlaþingi, mun ekki leiða lista flokksins í næstu kosningum. Hann segir ástæðuna meðal annars þá að tíð tilvísun hans í Biblíuna hafi ekki talist líkleg til að auka fylgi.
Í pistli sem hann birti á Fréttinni í gær greinir Þröstur frá því að fulltrúi nýrrar stjórnar Miðflokksfélagsins hafi haft samband við sig og farið fram á að hann segði sjálfur af sér oddvitasætinu. Samkvæmt frásögn hans voru áhyggjur uppi um að framboðið myndi ekki bæta stöðu sína. Austurfrétt vakti athygli á pistlinum í dag.
Þröstur segist hafa spurt nánar hvort hann hefði staðið sig illa eða gert eitthvað rangt, en fengið þau svör: „Nei, það er bara þetta Jesúbull þitt í pontu.“
Hann gagnrýnir vinnubrögðin harðlega og segir nýja stjórn flokksins vera undir áhrifum „andkristins andavalds“. Í pistlinum vitnar hann til orða Krists og segir framkomuna bæði aumkunarverða og óásættanlega. Þá veltir hann því upp hvort ekki hefði verið eðlilegra að halda prófkjör til að fá fram vilja flokksmanna.
Þröstur segir jafnframt að verið sé að reyna að þagga niður í trúarlegum sjónarmiðum og fullyrðir að hann hafi fundið fyrir „andkristnum anda“ jafnvel á Alþingi. Að hans mati þurfi þar „andlega hreingerningu“.
Að lokum þakkar hann kjósendum fyrir traustið á meðan hann sat í sveitarstjórn og segir sig hafa lagt áherslu á að eiga samtal við fólk úr ólíkum áttum, meðal annars í daglegum samskiptum í samfélaginu.

Komment