
Bandaríska TikTok-stjarnan Rachel Tussey er látinn, 47 ára að aldri, eftir fylgikvilla sem komu upp í kjölfar lýtaaðgerðar sem oft er kölluð „mommy makeover“.
Jeremy Tussey, eiginmaður hennar, greindi frá andlátinu á netinu. Í yfirlýsingu þakkaði hann þann stuðning sem fjölskyldan hefur fengið á erfiðum tímum og sagði að eiginkona hans hefði látist eftir að hafa verið í líknarmeðferð.
„Við erum afar þakklát fyrir ástina, bænirnar og rausnarlegan stuðning sem okkur hefur verið sýndur,“ skrifaði hann meðal annars og bætti við að Rachel hefði verið „ótrúleg eiginkona, móðir og manneskja sem snerti líf margra“.
Tussey, sem bjó í Ohio, hafði deilt undirbúningi sínum fyrir aðgerðina á samfélagsmiðlum. Samkvæmt fjölskyldu hennar komu upp alvarlegir fylgikvillar eftir aðgerðina í byrjun mars, sem leiddu að lokum til andláts hennar.
Læknir henna lýsti yfir samúð með fjölskyldunni í kjölfar málsins og sagði að hann væri sleginn yfir atburðinum. Hann neitaði jafnframt að aðgerðin sjálf hefði átt þátt í þeim heilsuvanda sem upp kom og sagði að enn væri unnið að því að skýra hvað hefði gerst.

Komment