
Forseti Bandaríkjanna, Donald J. Trump, segir að hann muni beina því til varnarmálaráðuneytisins og annarra viðeigandi stofnana að hefja ferli við að finna og birta ríkisskjöl sem tengjast meintum geimverum, óútskýrðum loftfyrirbærum (UAP) og fljúgandi furðuhlutum (UFO).
Trump greindi frá þessu í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social, þar sem hann sagði mikinn áhuga almennings hafa orðið til þess að hann hygðist gefa fyrirmæli um málið. Í færslunni skrifar hann:
„Í ljósi gífurlegs áhuga mun ég beina því til varnarmálaráðherra, og annarra viðeigandi ráðuneyta og stofnana, að hefja ferlið við að bera kennsl á og birta ríkisskjöl sem tengjast geimverum og utanjarðarlífi, óútskýrðum loftfyrirbærum (UAP), óþekktum fljúgandi hlutum (UFO) og öllum öðrum upplýsingum sem tengjast þessum afar flóknu, en jafnframt einstaklega áhugaverðu og mikilvægu málum.“
Trump lýkur færslunni með orðunum: „GUÐ BLESSI AMERÍKU!“
Ekki liggur fyrir hvenær eða með hvaða hætti slík skjöl yrðu birt, né hvaða stofnanir yrðu sérstaklega falin framkvæmdin. Yfirlýsingin hefur engu að síður vakið mikla athygli, enda hefur umræða um UFO og UAP aukist á undanförnum árum eftir að bandarísk yfirvöld hafa viðurkennt tilvist óútskýrðra loftfyrirbæra.

Komment