1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

3
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

4
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

5
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

6
Pólitík

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð

7
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

8
Innlent

Almenningur fékk ekki að vita hvernig alvarleg sakamál enduðu

9
Peningar

Bændur kveðja sinn eigin lífeyrissjóð

10
Innlent

Kvörtun vegna erlendra ökuskírteina fékk ekki brautargengi

Til baka

Leikstjóri verðlaunakvikmyndar neitaði að taka við friðarverðlaunum

„Friður er ekki ilmvatn sem úðað er yfir ofbeldi svo valdið geti liðið fágað og þægilegt“

Kaouther Ben Hania
Kaouther Ben HaniaBen Hania neitaði að taka við verðlaununum
Mynd: GARETH CATTERMOLE / GETTY IMAGES VIA AFP

Túníska kvikmyndagerðarkonan Kaouther Ben Hania vakti athygli þegar hún hafnaði því að taka við friðarverðlaunum á viðburði í Berlín, í mótmælaskyni við það sem hún segir þögn kvikmyndaiðnaðarins um Palestínu og pólitíska yfirhylmingu á stríðsglæpum Ísraels á Gaza.

Ben Hania neitaði að taka við verðlaununum Most Valuable Film á kvöldverði Cinema for Peace og skildi bikarinn eftir á sviðinu. Hún sagði ákvörðunina vera mótmæli gegn alþjóðlegri pólitískri vernd sem veitt sé „þjóðarmorðsstríði Ísraels á Gaza“.

Verðlaunin áttu að vera veitt fyrir kvikmynd hennar The Voice of Hind Rajab, þar sem fjallað er um dauða fimm ára palestínskrar stúlku sem drepin var af ísraelska hernum. Ben Hania lagði áherslu á að dauði barnsins væri ekki undantekning, heldur hluti af kerfisbundnu þjóðarmorði.

„Friður er ekki ilmvatn sem úðað er yfir ofbeldi svo valdið geti liðið fágað og þægilegt,“ sagði Ben Hania í ræðu sinni. „Ef við tölum um frið verðum við að tala um réttlæti. Réttlæti þýðir ábyrgð.“

Hún sagði jafnframt að ísraelski herinn hefði drepið Hind Rajab, fjölskyldu hennar og tvo sjúkraflutningamenn sem sendir voru til að bjarga henni, með meðábyrgð voldugustu ríkisstjórna og stofnana heims.

Til að koma í veg fyrir að heimildarmynd hennar yrði notuð til „ímyndarþvottar“ ákvað Ben Hania að skilja verðlaunin eftir á sviðinu, sem tákn um það kerfi sem hún segir hafa gert fjöldamorð á óbreyttum borgurum möguleg.

„Ég neita að láta dauða þeirra verða bakgrunn fyrir kurteisa ræðu um frið,“ sagði hún. „Þegar friður er sóttur sem lagaleg og siðferðileg skylda, byggð á ábyrgð vegna þjóðarmorðs, mun ég koma aftur og taka við verðlaununum með gleði.“

Opinber afstaða Ben Hania í Berlín kemur í kjölfar þess að meira en 80 þekktir kvikmyndagerðarmenn skrifuðu undir opið bréf þar sem gagnrýnd var þöggun stjórnenda kvikmyndahátíðarinnar Berlinale. Meðal undirritaðra eru leikararnir Javier Bardem, Tilda Swinton og Brian Cox, auk leikstjóranna Mike Leigh og Adam McKay.

Undirritaðir, sem allir hafa áður tekið þátt í hátíðinni og voru samhæfðir af hópnum Film Workers for Palestine, fordæmdu það sem þeir kölluðu „and-palestínska kynþáttahyggju“ Berlinale-hátíðarinnar og gagnrýndu að hún krefðist ekki ábyrgðar vegna brota á alþjóðalögum. Í bréfinu var bent á skýran tvískinnung, þar sem þögn hátíðarinnar um Gaza var borin saman við háværan stuðning hennar við Úkraínu og Íran.

The Voice of Hind Rajab hefur farið sigurför um heiminn en hún hefur hlotið fjöldi verðlauna og er meðal annars tilnefnd til Óskarsverðlaunanna fyrir bestu erlendu kvikmyndina. Myndir lýsir síðustu sólarhringum hinnar 5 ára Hind Rajab, sem skriðdrekahermenn Ísraelshers myrtu í köldu blóði árið 2024, ásamt sex ættingjum hennar og tveimur sjúkraliðum. Myndin er leikin en alvöru rödd Hindar er notuð í kvikmyndinni en þar má heyra símtöl Hindar litlu við móður sína og neyðarlínustarfsmann Rauða Hálfmánans, sem hún átti á meðan hún var föst í bifreið ættingja sinna, rétt áður en hún var myrt.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum
Myndir
Innlent

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum

„Svona var aðkoman fyrir utan bílskúrinn minn við Flyðrugranda í dag“
Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios
Pólitík

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli
Myndir
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

Síðasta kjörtímabil Ingu
Slúður

Síðasta kjörtímabil Ingu

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi
Innlent

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu
Innlent

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal
Sport

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu
Pólitík

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri
Pólitík

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Myndband náðist af ódæðinu
Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum
Heimur

Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Loka auglýsingu