1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

3
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

4
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

5
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

6
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

7
Pólitík

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð

8
Innlent

Almenningur fékk ekki að vita hvernig alvarleg sakamál enduðu

9
Peningar

Bændur kveðja sinn eigin lífeyrissjóð

10
Innlent

Kvörtun vegna erlendra ökuskírteina fékk ekki brautargengi

Til baka

Ný gögn varpa ljósi á síðustu daga eiginkonu Gene Hackman

Betsy taldi sig vera með Covid

Blessuð sé minning þeirra.
Betsy og GeneHjónin létust með viku millibili

Ár er nú liðið síðan stórleikarinn Gene Hackman og eiginkona hans, píanóleikarinn Betsy Arakawa, fundust látin á heimili sínu í Santa Fe í Nýju Mexíkó. Nýjar upplýsingar, meðal annars úr upptökum úr búkmyndavélum lögreglu, varpa ljósi á síðustu daga og klukkustundir Betsy áður en hún lést en frá þessu er greint á breska miðlinum Mirror.

Hjónin fundust látin á heimili sínu 26. febrúar og var ljóst að nokkuð hafði liðið frá því að þau létust. Síðar kom í ljós að Betsy, sem var 65 ára, lést af völdum hantaveiru-lungnaheilkennis, sjaldgæfs en alvarlegs sjúkdóms sem smitast meðal annars með nagdýrum. Gene Hackman, sem var 95 ára, lést um viku síðar af völdum hjartasjúkdóms. Þá er talið að langt genginn Alzheimer-sjúkdómur hafi einnig haft áhrif á heilsu hans.

Talið er að heilabilun Gene hafi verið komin svo langt að hann hafi mögulega ekki gert sér grein fyrir því að eiginkona hans til 34 ára væri látin. Hann dvaldi síðustu daga sína einn á heimilinu sem þau höfðu hannað saman.

Taldi sig vera með Covid

Upptökur úr búkmyndavélum lögreglu og gögn sem fundust á heimilinu sýna að Betsy hafði talið sig glíma við einkenni COVID-19. Á fartölvu hennar fundust opnar Google-leitir um einkenni kórónuveirunnar, sem bentu til vaxandi áhyggjur hennar af heilsufari sínu. Þar á meðal voru leitir um svima og blóðnasir, auk bókamerkja frá 8. og 12. febrúar, daginn sem hún er talin hafa látist. Síðar kom í ljós að þessi einkenni samræmdust betur sýkingu af völdum hantaveiru.

Alvarlegur höfuðverkur er eitt algengasta einkenni sjúkdómsins og kemur fram hjá um helmingi sjúklinga, en blóðnasir eru mun sjaldgæfari.

Einn af síðustu tölvupóstum Betsy var sendur 11. febrúar til nuddara hennar, þar sem hún óskaði eftir að færa nuddtíma vegna þrálátra einkenna. Í póstinum greindi hún frá því að hún hefði fengið neikvætt COVID-próf, en vildi engu að síður sýna varúð. Hún nefndi jafnframt að Gene hefði vaknað með flensu- eða kveflík einkenni, en hann hefði einnig greinst neikvæður.

Sama dag keypti Betsy súrefnishylki í gegnum netverslunina Amazon. Talið er að kaupin hafi verið ætluð til að létta undir með öndun og benda þau til þess að annað hvort hún eða eiginmaður hennar hafi átt í öndunarerfiðleikum á þessum tíma.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg
Innlent

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg

Samhliða þessu hefur borgin auglýst breytingu á deiliskipulagi Norðlingaholts
Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna
Innlent

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum
Myndir
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum
Myndir
Innlent

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios
Pólitík

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli
Myndir
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

Síðasta kjörtímabil Ingu
Slúður

Síðasta kjörtímabil Ingu

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi
Innlent

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu
Innlent

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal
Sport

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Myndband náðist af ódæðinu
Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum
Heimur

Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Loka auglýsingu