1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

3
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

4
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

5
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

6
Pólitík

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð

7
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

8
Innlent

Almenningur fékk ekki að vita hvernig alvarleg sakamál enduðu

9
Peningar

Bændur kveðja sinn eigin lífeyrissjóð

10
Innlent

Kvörtun vegna erlendra ökuskírteina fékk ekki brautargengi

Til baka

Samsæriskenningar á sveimi um tvífara Maxwell

Netverjar telja brögð í tafli varðandi dæmda mansals-kvendið Ghislaine Maxwell.

Gislaine Maxwell
Ghislaine MaxwellEr þetta sama manneskjan?
Mynd: Samsett

Samsæriskenningar sem tengjast Ghislaine Maxwell, nánum samstarfsaðila hins dæmda barnaníðings Jeffrey Epstein, eru að færast í aukana á netinu. Á samfélagsmiðlum hefur verið dregið í efa hvort nýlegt myndband af skýrslutöku hennar í fangelsi, sem og tilheyrandi ljósmyndir, séu í raun af henni.

Getgáturnar hófust eftir að upptaka af skýrslutöku í fangelsi kom fram, en sumir notendur héldu því fram að konan sem sjáist í myndbandinu sé ekki Maxwell heldur staðgengill.

Upptakan var birt af US House Oversight Committee og sýnir Maxwell taka þátt í skýrslutöku í gegnum fjarfundabúnað úr fangelsi. Við yfirheyrslur um tengsl hennar við Epstein og dóm hennar fyrir mansal vísaði hún ítrekað í fimmtu viðbót við stjórnarskrá Bandaríkjanna og neitaði að svara spurningum. Í upptökunni hafnaði hún meðal annars að svara því hvort hún hefði verið náin Epstein.

Eftir að myndbandið var birt fóru notendur á samfélagsmiðlum að deila samanburði á upptökunni og eldri ljósmyndum af Maxwell sem teknar voru fyrir handtöku hennar árið 2020. Í sumum færslum var því haldið fram að sjáanlegur munur væri á andlitsdráttum hennar, meðal annars í andlitslögun. Aðrir skýrðu meintar breytingar með þyngdaraukningu eða eðlilegri öldrun, en sumir gengu lengra og sögðu myndbandið sviðsett eða að um staðgengil væri að ræða.

Fullyrðingarnar hafa farið víða á netinu síðustu daga, þrátt fyrir að engar trúverðugar sannanir hafi komið fram sem styðja að sá einstaklingur sem sést í skýrslutökunni sé ekki sama manneskja og tengdist Epstein. „Er þetta yfir höfuð hún?“ spurði einn notandi.

Færsla sem birt var á X af álitsgjafanum Mario Nawfal bætti við vangaveltur á netinu. Þar sagði meðal annars

„Fólk er að velta því fyrir sér að konan á fangelsismyndunum líkist alls ekki Ghislaine Maxwell, með annað nef og önnur augu. Nú er sú kenning á sveimi að ekki aðeins sé Epstein enn á lífi … heldur sé Ghislaine ekki einu sinni sú sem situr í klefanum! Þótt ég efast um að þetta sé rétt, þá virðist allt mögulegt núna.“

Annar notandi skrifaði:

„Hún er annaðhvort búin að bæta á sig af kolvetnaríkum fangelsismat eða þetta er allt önnur manneskja.“

Einn notandi hélt því fram að Maxwell væri alls ekki í fangelsi og að málið væri sviðsett:

„Ghislaine Maxwell er ekki í raun í fangelsi. Þetta er bara enn einn sviðsettur atburður sem er ekki sannur. Þau vilja að almenningur trúi því að eitthvað réttlæti hafi náðst í Epstein-málinu, þegar það gerðist ekki. Barnaníðingar og mansalsmenn starfa enn óáreittir.“

Annar gantaðist:

„Í alvöru, einhver þarf að skoða þetta, því þetta er ekki Ghislaine Maxwell, þetta er Mike Meyers.“

Þá skrifaði annar:

„Fangelsið virðist hafa breytt Ghislaine Maxwell. Hún er komin með nýjan kjálka og nýtt nef. Miðaldra – eða augljóslega ekki sama konan?“

Maxwell var sakfelld árið 2021 fyrir alríkisbrot tengd kynferðislegu mansali, þar á meðal samsæri um að flytja ólögráða einstaklinga til ólögmætra kynferðislegra athafna, þátttöku í víðtæku mansalsneti og mansal á ólögráða einstaklingi. Hún afplánar nú 20 ára fangelsisdóm.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum
Myndir
Innlent

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum

„Svona var aðkoman fyrir utan bílskúrinn minn við Flyðrugranda í dag“
Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios
Pólitík

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli
Myndir
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

Síðasta kjörtímabil Ingu
Slúður

Síðasta kjörtímabil Ingu

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi
Innlent

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu
Innlent

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal
Sport

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu
Pólitík

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri
Pólitík

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Myndband náðist af ódæðinu
Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum
Heimur

Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Loka auglýsingu