1
Fólk

Eitt frumlegasta hús landsins komið á sölu

2
Innlent

Hver er Lúkas Geir?

3
Innlent

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt

4
Innlent

Reykvísk eiginkona vill skilja við „þræl fíknidjöfulsins“

5
Fólk

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair

6
Fólk

Helgi Magnús kominn aftur á stjá

7
Fólk

Selja miðbæjargimstein með sér bílastæði

8
Menning

Kærasta drullusokka

9
Innlent

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum

10
Pólitík

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“

Til baka

Tugir ferðamanna féllu í sjóinn þegar tvíbytna sökk í Karíbahafi

„Við erum í nánu sambandi við þann aðila og yfirvöld til að fá staðreyndir málsins upp á borðið.“

Tvíbytna
TvíbytnaMyndin tengist ekki fréttinni beint.
Mynd: Shutterstock

Ferðamenn, þar á meðal aldraðir og börn, féllu í sjóinn eftir óhugnanlegt atvik undan ströndum Dóminíska lýðveldisins á dögunum.

Tugir farþega af skemmtiferðaskipi enduðu á svamli á hafi úti eftir að tvíbytna, sem þeir voru í í dagsferð, sökk skyndilega.

Litli báturinn, sem hét Boca de Yuma, var að flytja farþega frá þýska skemmtiferðaskipinu Mein Schiff 1 þegar hann fór að taka inn vatn og sökk á örskotsstundu. Um borð voru 55 manns sem neyddust til að stökkva í sjóinn.

Skemmtiferðaskipið
Mein Schiff 1Farþegarnir óheppnu eru að ferðast um Karíbahaf
Mynd: Vytautas Kielaitis / Shutterstock.com

Dagsferðin breyttist í martröð þegar ferðamenn flutu hjálparlausir um í sólinni yfir flóa Samaná-bæjarins þar til sjóher Dóminíska lýðveldisins kom til bjargar. Þjóðerni farþeganna er ekki vitað að svo stöddu.

Sjávarháski
Fólkið á svamliMildi var að ekki færi verr

Myndskeið sýna sjóliða kasta björgunarhringjum til ferðamannanna og draga þá svo um borð í björgunarbát. Aðeins lítill hluti tvíbytnunnar sást áður en hann hvarf í djúpið. Fólk úr nærsamfélaginu El Crucero tók einnig þátt í björguninni.

Allir komust lífs af, en einn farþeganna sagði við þýska sjónvarpsstöðina RTL að „hræddir“ farþegar hefðu „ekki fengið neina umönnun“ af hálfu áhafnar skemmtiferðaskipsins. „Skipið mitt veitti enga aðstoð og virtist ekki einu sinni vita af atvikinu,“ sagði hann.

Hafnarstjórnin sagði í yfirlýsingu:

„Sjóher Dóminíska lýðveldisins vinnur náið með yfirvöldum á staðnum að því að bera kennsl á þá sem bera ábyrgð og grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir að svona endurtaki sig.“

Ferðafélagið TUI Cruises, sem rekur Mein Schiff 1 og hélt frá La Romana, staðfesti að fulltrúar þess væru í samráði við skipuleggjanda ferðarinnar og lögreglu til að rannsaka orsök slyssins.

Talskona fyrirtækisins sagði:

„Tvíbytnan sem sökk var í eigu utanaðkomandi þjónustuaðila. Við erum í nánu sambandi við þann aðila og yfirvöld til að fá staðreyndir málsins upp á borðið.“

Allir farþegar komust aftur um borð í Mein Schiff 1 eftir atvikið á sunnudag. Skemmtiferðaskipið, sem rúmar allt að 4.000 farþega, heldur nú ferð sinni áfram samkvæmt áætlun, næsti viðkomustaður er Jamaíka.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Selja miðbæjargimstein með sér bílastæði
Myndir
Fólk

Selja miðbæjargimstein með sér bílastæði

Hver er Lúkas Geir?
Nærmynd
Innlent

Hver er Lúkas Geir?

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum
Innlent

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“
Pólitík

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair
Fólk

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt
Innlent

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt

Eitt frumlegasta hús landsins komið á sölu
Myndir
Fólk

Eitt frumlegasta hús landsins komið á sölu

Reykvísk eiginkona vill skilja við „þræl fíknidjöfulsins“
Innlent

Reykvísk eiginkona vill skilja við „þræl fíknidjöfulsins“

Helgi Magnús kominn aftur á stjá
Fólk

Helgi Magnús kominn aftur á stjá

Heimur

Meint fórnarlamb Epstein segir hann hafa verið föður
Heimur

Meint fórnarlamb Epstein segir hann hafa verið föður

Loftvarnarflautur hljóma nú stanslaust í Ísrael
Heimur

Loftvarnarflautur hljóma nú stanslaust í Ísrael

Leita að líkum stúlkna við búgarð Epstein
Heimur

Leita að líkum stúlkna við búgarð Epstein

Hörmungarnar í Úkraínu halda áfram
Heimur

Hörmungarnar í Úkraínu halda áfram

Myndband af hóstakasti Pútíns fjarlægt af Kreml
Myndband
Heimur

Myndband af hóstakasti Pútíns fjarlægt af Kreml

Ofurfyrirsæta segir tvíkynhneigða karlmenn vera „óaðlaðandi“
Heimur

Ofurfyrirsæta segir tvíkynhneigða karlmenn vera „óaðlaðandi“

Loka auglýsingu