1
Pólitík

Hera Björk býður sig fram

2
Heimur

Steinhissa á útliti Jim Carrey

3
Peningar

Víkingur Heiðar stofnar fyrirtæki með maka sínum

4
Fólk

Selja tignarlegt einbýli í Grafarvogi

5
Heimur

Miklar breytingar framundan á stærsta flugvelli Tenerife

6
Innlent

Tilnefnir sjálfan sig sem „fávita“ í umferðinni

7
Pólitík

Rúnar Freyr fær sæti á lista Hildar

8
Innlent

Tók á móti lögreglu eins og skósveinn illmennis

9
Innlent

Ók næstum því á börn

10
Heimur

Trump býður hermönnum Írans „friðhelgi“

Til baka

Undirbúa atkvæðagreiðslu fyrir verkfall

Segja starfsmenn ekki hafa fengið launahækkanir í samræmi við hækkandi verðlag

Álver á Grundartanga
Álverið á GrundartangaSamningar starfsmanna runnu út um áramótin
Mynd: Verkalýðsfélag Akraness

Félagsmenn Verkalýðs Akraness sem starfa í álveri Norðuráls á Grundartanga munu greiða atkvæði um verkfall á næstunni ef allt gengur eftir en undirbúningur fyrir slíkt er í vinnslu. Greint er frá þessu í tilkynningu frá félaginu.

Samningar starfsmanna runnu út um áramótin og samkvæmt verkalýðsfélaginu er ekkert nýtt að frétta af launadeilunni. Segir félagið að ekki sé mikill samningsvilji til staðar hjá álverinu. Þá er bent á það að það séu 15 mánuðir séu frá því starfsmenn fengu launahækkun en að verðlag og húsnæðisverð og afborganir hafi hækkað síðan þá.

„Á þessari forsendu er ekkert annað í stöðunni en að nýta fyrsta tækifæri til þess að kjósa um vinnustöðvun enda engin teikn á lofti um vilja fyrirtækisins til þess að hefja kröftuga vinnu við að ganga frá nýjum kjarasamningi. Kjarasamningi sem tekur tillit til eðli þessarar starfsemi enda er vinna í stóriðjum erfið, krefjandi og oft á tíðum hættuleg. Með öðrum orðum, þetta eru ekki hefðbundin verkamannastörf. Þetta er öflugt útflutningsfyrirtæki sem hefur skilað góðri afkomu í gegnum tíðina og því mikilvægt að fyrirtæki af þessari stærðargráðu sýni vilja til að ganga hratt, vel og örugglega frá launabreytingum til handa sínu starfsfólki. Enda eru fyrirtæki ekkert án öflugra starfsmanna. Að þessu sögðu tilkynnti formaður á fundi hjá ríkissáttasemjara í gær að VLFA muni hefja undirbúning að kosningu um verkfall og stefnir félagið á að hefja kosningu á fimmtudaginn í næstu viku enda engin önnur staða á vellinum en að sýna fulla staðfestu í að knýja fram sanngjarnan og réttlátan kjarasamning,“ segir í tilkynningunni.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Rúnar Freyr fær sæti á lista Hildar
Pólitík

Rúnar Freyr fær sæti á lista Hildar

Hera Björk býður sig fram
Pólitík

Hera Björk býður sig fram

Steinhissa á útliti Jim Carrey
Heimur

Steinhissa á útliti Jim Carrey

Víkingur Heiðar stofnar fyrirtæki með maka sínum
Peningar

Víkingur Heiðar stofnar fyrirtæki með maka sínum

Tilnefnir sjálfan sig sem „fávita“ í umferðinni
Myndband
Innlent

Tilnefnir sjálfan sig sem „fávita“ í umferðinni

Trump býður hermönnum Írans „friðhelgi“
Heimur

Trump býður hermönnum Írans „friðhelgi“

Miklar breytingar framundan á stærsta flugvelli Tenerife
Heimur

Miklar breytingar framundan á stærsta flugvelli Tenerife

Selja tignarlegt einbýli í Grafarvogi
Myndir
Fólk

Selja tignarlegt einbýli í Grafarvogi

Tók á móti lögreglu eins og skósveinn illmennis
Innlent

Tók á móti lögreglu eins og skósveinn illmennis

Sístækkandi hópur ungmenna upplifir sig sem dýr
Heimur

Sístækkandi hópur ungmenna upplifir sig sem dýr

Innlent

Tilnefnir sjálfan sig sem „fávita“ í umferðinni
Myndband
Innlent

Tilnefnir sjálfan sig sem „fávita“ í umferðinni

„Vó, hvað þetta stóð tæpt“
Hætt við áform um unglingaskóla aftan við Skautahöllina í Laugardal
Innlent

Hætt við áform um unglingaskóla aftan við Skautahöllina í Laugardal

Tók á móti lögreglu eins og skósveinn illmennis
Innlent

Tók á móti lögreglu eins og skósveinn illmennis

Tónlistarmaður sýknaður fyrir hótanir
Innlent

Tónlistarmaður sýknaður fyrir hótanir

Unglingar dæmdir fyrir grófa líkamsárás
Innlent

Unglingar dæmdir fyrir grófa líkamsárás

Loka auglýsingu