Glæsilegt og vel viðhaldið einbýlishús hefur verið sett á sölu á eftirsóttum stað í Kópavogi en húsið stendur við Álfhólsveg 57.
Húsið stendur á rúmgóðri 926 fermetra lóð sem hefur fengið mikla ræktun og góða umhirðu í gegnum tíðina.
Eignin er skráð 222,4 fermetrar að stærð, en þar sem efri hæð hússins er undir súð er raunverulegur gólfflötur stærri en skráðir fermetrar gefa til kynna. Húsið hefur verið endurnýjað að stórum hluta og hlaut árið 2004 viðurkenningu frá Kópavogsbæ fyrir vel heppnaða endurgerð.
Innandyra er gólfhiti í anddyri og eldhúsi, en annars er húsið upphitað með ofnakerfi. Svefnherbergin eru fimm talsins og henta því eignin vel fyrir fjölskyldur. Við húsið er einnig mjög rúmgott bílaplan með snjóbræðslukerfi.
Utandyra má finna fallegan timburpall með heitum potti sem snýr að bakgarði, sem eykur verulega lífsgæði íbúa. Viðhald á eigninni hefur verið til fyrirmyndar; þak var endurnýjað að sunnanverðu áður en núverandi eigendur keyptu húsið og síðar var þakið að norðanverðu endurnýjað fyrir um tveimur árum. Þá var einnig sett nýtt þak á bílskúr um árið 2010 og lofthæð hans hækkuð um um 1,5 metra.
Húsið var upphaflega byggt árið 1956 og er verð eignarinnar er 189,9 milljónir króna.


Komment