1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

6
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

7
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

8
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

9
Innlent

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn

10
Fólk

Gömul sál í nýjum búningi í Hafnarfirði til sölu

Til baka

Segir formann Sjálfstæðisflokksins „ösla um í drullupolli mannhaturs“

Sólveig Anna hjólar í Guðrúnu Hafsteinsdóttur

Guðrún Hafsteinsdóttir-2
Guðrún HafsteinsdóttirSólveig Anna rífur formanninn í sig í nýrri Facebook-færslu
Mynd: Víkingur

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, gagnrýnir formann Sjálfstæðisflokksins harðlega í nýrri Facebook-færslu sem hún birti í morgun. Þar sakar hún hana um veikburða forystu og segir hana grípa til öfgafullrar orðræðu í pólitískri baráttu.

Í færslunni segir Sólveig Anna meðal annars:

„Örvænting formanns Sjálfstæðisflokksins yfir því að vera algjörlega misheppnaður stjórnmálamaður er yfirþyrmandi. Hún veit að hún hefur úr því sem næst engu að moða, er ekki sterkur leiðtogi heldur leiðtoginn sem enginn vill leiða – tími hennar er ekki liðinn, hann kom aldrei - og grípur því til þess örþrifaráðs að ösla um í drullupolli mannhaturs og öfga-hyggju þeirra sem kynda öll ófriðarbál…“

Tilefni gagnrýninnar er umfjöllun í Morgunblaðinu þar sem fjallað er um að íslenskir ríkisborgarar hafi greitt landamæravörðum mútur til að aðstoða fólk á flótta frá Gaza. Sólveig Anna ver þá sem komu að slíkri aðstoð og segir:

„…ræðst að samlöndum sínum sem gerðu það sem Kristur boðar, gerðust Samverjar vorra daga, meðan að hún sjálf er verri en nokkur Levíti – allt til að kreista út nokkur atkvæði frá kjósendum sem vilja trúa því að brúnt fólk beri ábyrgð á afleiðingum siðblindu og svívirðu útkynjaðs kapítalisma og heimsvaldastefnu hnignaðra vesturlanda. Formaðurinn myndi eflaust reyna að halda því fram að Samverjinn hafi mútað gistihúsaeigandanum þegar hann greiddi honum fyrir umönnun mannsins sem hafði verið barinn og rændur og skilinn eftir til að deyja.“

Hún gagnrýnir jafnframt harðlega stefnu og málflutning Sjálfstæðisflokksins í málefnum Palestínu og flóttafólks og segir flokksmenn hafa viljað stöðva stuðning við Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna í Palestínu.

Í færslunni rifjar hún einnig upp mótmæli árið 2014 við bandaríska sendiráðið í Reykjavík þar sem hún hélt ræðu. Hún segir að þar hafi hún meðal annars biðlað til Barack Obama um að sýna mennsku í málefnum Gaza.

„Með fréttinni um botnhegðun íslenska hægrisins, sem reynir að fela eigið getu og sjarma-leysi með röfli og rasisma, lætur Mogginn af einhverjum ástæðum fylgja mynd sem tekin var árið 2014 þegar mótmælt var við ameríska sendiráðið á fögrum sumardegi, vegna þess að ísraelsku morðingjarnir voru, með stuðningi Bandaríkjanna, enn á ný að slátra saklausu fólki á Gaza.“

Á öðrum stað minnist hún á kennslustund Jesú Krists: „Það eina sem ég get gert er að muna kennslustund Jesú sem enn lifir 2000 árum eftir að hún fór fram; mennska birtist í verki; hún sér þann sem þjáist, burtséð frá öllu; þjóðerni, uppruna, kynþætti – og þráir að lina þjáningarnar.“

Í lok færslunnar beinir hún orðum sínum beint til formanns Sjálfstæðisflokksins og segir

„Sjálfstæðisflokkurinn vill að kristinfræðikennsla verði tekin upp að nýju í skólum landsins – ég geri ekki athugasemdir við það. En fullorðið fólk þarf fyrst að læra það sem það vill kenna börnum – formaður Sjálfstæðisflokksins ætti að nota páska-hátíðina til að koma sér upp úr drullusvaðinu sem hún er sokkin í og athuga hvort að hún getur fundið pláss fyrir boðskap Krists í hjarta sínu. Þá tækist henni kannski að lina eigin vanlíðan yfir því að vera svona ótrúlega óvinsæl og gæti þá mögulega snúið af vegi villutrúar og grimmdar og byrjað að ganga veg náungakærleika og samhyggðar með mannfólki.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna
Heimur

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna

Útiloka ekki að um erlenda aðila sé að ræða
Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið
Heimur

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi
Myndband
Sport

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum
Innlent

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum
Menning

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir
Myndband
Heimur

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur
Innlent

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína
Heimur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga
Innlent

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike
Heimur

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi
Innlent

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

Fékk veskið aftur 51 ári eftir að það týndist
Heimur

Fékk veskið aftur 51 ári eftir að það týndist

Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

„Ríkisstjórnin hamast við að moka flórinn eftir þessa sóða, en þeir standa á hliðarlínunni hrópandi ókvæðisorð“
Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Loka auglýsingu