Framboðslistar Röskvu fyrir kosningar til Stúdentaráðs Háskóla Íslands og Háskólaráðs Háskóla Íslands þann 26. mars næstkomandi voru kynntir í síðustu viku.
Kynningin fór fram á skemmtistað í miðbæ Reykjavík, þar sem fjöldi stuðningsfólks Röskvu safnaðist saman. Að sögn skipuleggjenda fylltist staðurinn af Röskvuliðum sem sögðust tilbúnir að berjast fyrir hagsmunum stúdenta með jafnrétti, róttækni og heiðarleika að leiðarljósi.
Undanfarin tvö ár hefur Röskva verið í minnihluta í Stúdentaráði Háskóla Íslands. Samtökin segja mikilvægt að efla hagsmunabaráttu stúdenta, sérstaklega í ljósi aukins kostnaðar sem nemendur hafa staðið frammi fyrir á síðustu misserum.
Meðal þeirra mála sem Röskva bendir á eru hækkun skrásetningargjalds, upptaka skólagjalda fyrir alþjóðanema og innleiðing bílastæðagjalda. Að mati samtakanna sýni þessi þróun að þörf sé á sterkari og skýrari hagsmunagæslu fyrir stúdenta.
Kosningar til Stúdentaráðs og háskólaráðs fara fram 26. mars og munu niðurstöður þeirra ráða því hvernig skipan fulltrúa stúdenta verður á komandi kjörtímabili. Röskva segir markmið sitt vera að leiða öfluga hagsmunabaráttu fyrir stúdenta á komandi árum.
Listar Röskvu í heild sinni:
Háskólaráð
- Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir, lögfræði
- Hjalti Dagur Hjaltason, læknisfræði
- María Björk Stefánsdóttir, efnaverkfræði
- Magnús Hallsson, lífefna- og sameindalíffræði
Félagsvísindasvið
- Vignir Berg Pálsson, stjórnmálafræði
- Gabríel Leó Ívarsson, viðskiptafræði
- Sif Káradóttir, lögfræði
- Íris Embla Stefánsdóttir, félagsráðgjöf
- Auður Halla Rögnvaldsdóttir, stjórnmálafræði
Varamenn:
- Silja Höllu Egilsdóttir, stjórnmálafræði
- Arnór Bjarmi Atlason, félagsfræði
- Arna Kara Bjartsdóttir, viðskiptafræði
- Rocco Girolami, lögfræði
- Hekla Jónsdóttir, hagfræði
Heilbrigðisvísindasvið
- Valtýr Ferrell, læknisfræði
- Vera Mist Magnúsdóttir, sálfræði
- Dagbjört Lára Bjarkadóttir, hjúkrunarfræði
Varamenn:
- Urður Matthíasdóttir, læknisfræði
- Oliwia Björk Guzewicz, lyfjafræði
- Eva Harðardóttir, sálfræði
Hugvísindasvið
- Ari Hallgrímsson, sagnfræði
- Ásthildur Óskarsdóttir, bókmenntafræði
- Moses Jason Osabutey, íslenska sem annað mál
Varamenn:
- Uni Nils Gunnlaugsson, heimspeki
- Líba Bragadóttir, frönsk fræði
- Tinna Kjartansdóttir, heimspeki
Menntavísindasvið
- María Fönn Frostadóttir, grunnskólakennsla með áherslu á list- og verkgreinar
- Ívar Máni Hrannarsson, tómstunda- og félagsmálafræði
- Aníta Ósk Arnardóttir, þroskaþjálfafræði
Varamenn:
- Auður Ísold Hilmarsdóttir Kjerúlf, íþrótta- og heilsufræði
- Aron Ísak Yngvason, þroskaþjálfafræði
- Sigrún Ósk Hreiðarsdóttir, tómstunda- og félagsmálafræði
Verkfræði- og náttúruvísindasvið
- Lárus Logi Elentínusson, umhverfis- og byggingarverkfræði
- Valdís Katla Sölvadóttir, líffræði
- Kristján Nói Kristjánsson, hugbúnaðarverkfræði
Varamenn:
- Hildur Ósk Sævarsdóttir, efnaverkfræði
- Viggó Alexander Ashworth, vélaverkfræði
- Hildur Björg Jónsdóttir, lífefna- og sameindalíffræði


Komment