SlúðurNíð Stefáns Einars Gauti B. Eggertsson, prófessor í hagfræði, stendur framarlega í fylkingu þeirra sem vilja nánara samstarf við Evrópusambandið. Hann glímir við óþol gagnvart Stefáni E. Stefánssyni, blaðamanni á Morgunblaðinu, eins og fleiri. Gauti hæddist að Stefáni á Facebook-síðu sinni á dögunum og segist hafa átt í „orðaskiptum við þennan andans mann“ sem hafi verið í miklum ham. „Mér skilst að hann...
SlúðurNýr andstæðingur Guðrúnar Þrátt fyrir að hafa rifið Sjálfstæðisflokkinn upp duglega í könnunum eftir slæman árangur í síðustu Alþingiskosningum eru ennþá sumir sem sjá Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann flokksins, sem slappan formann. Skiptir góður árangur flokksins í sveitarstjórnarkosningum þar engu máli. Vitað er að Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, þráir fátt meira en að verða formaður en margir Sjálfstæðismenn horfa til Halldórs Benjamíns Þorbergssonar. Halldór...
SlúðurÁrásin á Þorgerði Margir supu hveljur þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra upplýsti í gær á Bylgjunni, gráti nær, að lögreglan rannsakaði hótanir gagnvart sér og fjölskyldu sinni. Víst má telja að aðförin snúi að því að hún berst fyrir áframhaldandi viðræðum um aðild að Evrópusambandinu og er þar með að ógna fullveldi þjóðarinnar að sögn þeirra sem stjórna Nei-samtökunum. Nauðsynlegt hlýtur að teljast...
SlúðurTitringur vegna Katrínar Eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum mun Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og forsetaframbjóðandi, halda ræðu á Austurvelli í dag á fundi Áfram Ísland en hreyfingin hefur það að markmiði að halda Íslandi út úr ESB. Sagt er að það hafi skapast mikil átök innan Nei-hreyfingarinnar þegar rædd var sú hugmynd að fá Katrínu til að tala á fundinum....
SlúðurVinslit Össurar og Ólafs Gömlu fóstbræðurnir Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi formaður Samfylkingar, og Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrum forseti Íslands, eru komnir í hár saman vegna Evrópusambandsins. Ólafur Ragnar er genginn í lið með Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, fyrrverandi prófessor, og berst með kjafti og klóm gegn því að þjóðin fái að greiða atkvæði um aðild að Evrópusambandinu. Samtökin hafa náð að setja límmiða í sína þágu...
SlúðurGuðni jákvæður Guðni Th. Jóhannesson, prófessor og fyrrverandi forseti Íslands, fer rólega í sakirnar með yfirlýsingar um Evrópusambandið þvert á annan forvera hans, Ólaf Ragnar Grímsson, sem heggur á báðar hendur í stríði sínu gegn fullri samvinnu við Evrópusambandið. Guðni var í viðtali í þjóðmálaþættinum Sprengisandi á Bylgjunni þar sem hann færði öfgalaust rök fyrir því að ekkert væri að óttast þótt...
SlúðurGuðmundur sveik lit Helstu talsmenn Já-hreyfingarinnar eru hæstánægðir með útgerðarmanninn Guðmund Kristjánsson í Brim sem fullyrti á sínum tíma að ekkert væri að óttast við inngöngu í Evrópusambandið nema fyrir þá stjórnmálamenn sem þyrftu að láta af spillingu sinni. Hvatti Guðmundur til þess að farið yrði sem fyrst í þjóðaratkvæðagreiðslu. Með þessu þykir valdamesti útgerðarmaður Íslands vera að svíkja lit í stað þess...
SlúðurÓlafur Ragnar og heyrúllurnar Baráttan um það hvort þjóðin megi skoða aðild að Evrópusambandinu nálgast nú hámark. Sá skemmtilegi viðsnúningur hefur orðið að Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, er orðinn sem talsmaður Sjálfstæðisflokksins í því að halda þjóðinni frá stórhættulegri þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandið. Ólafur Ragnar hefur skyggt á sjálfa Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins, og er í einlægu bandalagi við Hannes Hólmstein Gissurarson um...
SlúðurPrinsinn úr Eyjum Auður og völd ekkjunnar, Guðbjargar Matthíasdóttur, hafa smám saman verið að færast yfir á börn hennar. Elsti sonurinn og erfðaprinsinn, Einar Sigurðsson, er stjórnarformaður Ísfélagsins og unir sér vel í Fossvogi í Reykjavík þar sem hann nýtur auðlegðarinnar við leik og jafnvel störf. Ísfélaginu hefur vaxið mjög fiskur um hrygg eftir að félagið náði undir sig kvóta og skipum Siglfirðinga...
SlúðurGuðrún í skugga Mikil og hörð barátta og rökræða hefur staðið yfir undanfarnar vikur um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að hefja viðræður við ESB um inngöngu. Slíkt hefur ekki farið fram hjá mörgum. Stór hluti Sjálfstæðismanna er algjörlega á móti því að Ísland íhugi að ganga í Evrópusambandið og hefur orðræða þingmanna flokksins verið eftir því. Hins vegar hafa margir innan...
SlúðurUngir gegn Ara Sagt er að sumir Miðflokksmenn, þá sérstaklega í yngri kantinum, séu komnir með nóg af Ara Edwald, oddvita flokksins í Reykjavík. Telja þeir veru Ara í flokknum slæma og hann sé í raun ekkert nema gamall Sjálfstæðismaður sem vantaði vinnu. Þá telja þeir hann engan veginn nógu róttækan til að vera þeirra fremsti maður í borginni. Ungliðarnir eru sagðir hafa...
SlúðurEkki áhugi fyrir Áslaugu Einhverjum létti við þau tíðindi að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, komst í vinnu eftir nokkurt þóf og slapp við að súpa dauðann úr skel. Áslaug Arna var ráðin sem millistjórnandi til Fenris Creatins, áður CCP, þar sem meintur Evrópusinni, Hilmar Veigar Pétursson, ræður ríkjum. Helsta verkefni hennar snýr að gervigreind. Ráðning hennar vakti mikla athygli fjölmiðla. Hermt...