SlúðurKrumpaður Gulli Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, var lengi vel á meðal fyndnustu og vígreifustu þingmanna. Hann þótti í senn glaðsinna og orðheppinn. Á þessu hefur orðið breyting eftir að hann lenti í stjórnarandstöðu og fékk snert af ráðherraveiki. Guðlaugur ber þess núna sterk einkenni að vera á endastöð stjórnmálaferils síns. Hann helgar sig meira tuði en stuði í stöðugu andófi. Gamansemin...
SlúðurSnorri selur Varaformaður Miðflokksins, Snorri Másson, hefur slegið í gegn meðal Miðflokksmanna og eru vinsældir hans nú taldar ógna sjálfum Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Formaðurinn þykir bera þess einkenni að vera langþreyttur og lítt vígreifur á meðan varaformaðurinn geislar af baráttugleði og lemur á þeim útlendingum sem hann telur að hafi brauð og afkomu af innfæddum Íslendingum. Málflutningur Snorra selur og hermt er...
SlúðurFriður í Framsókn Fólk sem stendur nærri þeim Lilju Alfreðsdóttur, formanni Framsóknarflokksins, og Höllu Hrund Logadóttur, þingmanni flokksins, er á einu máli um að engar illdeilur eigi sér stað milli þeirra heldur þvert á móti. Segir þetta fólk að þær séu samhuga í að koma Framsóknarflokknum á stað þar sem hann geti haft sem mest áhrif og Lilja líti á Höllu sem traustan...
SlúðurHalla yfirgefin Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, hefur tekið þá ákvörðun að Halla Hrund Logadóttir, þingmaður flokksins, muni ekki sitja í aðalsæti í fastanefnd á Alþingi og verður hún eini þingmaður flokksins sem gerir slíkt ekki. Er málið augljós leikur formannsins til að taka völd frá Höllu en hún er eini þingmaður flokksins sem landsmenn kannast við og eina hættan við völd Lilju,...
SlúðurGuðrún í basli Sjálfstæðisflokkurinn á í hinu mesta basli með Bókun 35 sem kemur á næstunni til kasta Alþingis. Stjórnarliðið er í algjörum takti við að samþykkja þennan hluta af EES-samningnum. Miðflokkurinn er að sögn þess albúinn að leggja í málþóf vegna þessa máls en Sjálfstæðisflokkurinn situr í þeirri súpu að hafa reynt að koma málinu í gegnum þingið á seinasta kjörtímabili en...
SlúðurKlámhögg Hannesar Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor á eftirlaunum, fékk heldur betur á baukinn þegar sex háskólarektorar fordæmdu einum rómi aðför Hannesar að prófessorunum Baldri Þórhallssyni og Magnúsi Skjöld Magnússyni. Hannes dylgjaði um að staða þeirra sem Jean Monnet-prófessorar á vegum ESB væri með þeim hætti að þeir væru hallir undir Evrópusambandið og hefði þá væntanlega haft þau áhrif að þeir studdu það...
SlúðurHálfsannleikur og ýkjur Hildar Það er nokkuð vandræðalegt að fylgjast með nýjum meirihluta halda því fram að honum hafi tekist að klára hinn fræga verkefnalista sem settur var fram þegar meirihlutinn var stofnaður fyrr á árinu. Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, mætti í viðtal á RÚV eldhress og glöð með árangurinn. Vandamálið er hins vegar að þrátt fyrir að merkja við slíkt á heimasíðu gerir...
SlúðurFriðardúfan og haukurinn Umpólunin í íslenskum stjórnmálum eftir slaginn um Evrópusambandið hefur tekið á sig skrautlegar myndir. Margir stöldruðu við í Silfrinu í Sjónvarpinu þar sem sá herskái frjálshyggjuhaukur Björn Bjarnason, fyrrverandi forystumaður Sjálfstæðisflokksins, mætti til að taka þátt í vangaveltum um stöðu Íslands eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Annar þátttakandi í umræðunni var hinn vinstri græni Stefán Pálsson, sagnfræðingur og friðarsinni. Þeir félagar voru sem...
SlúðurGrátur Jóhannesar Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, hefur verið duglegur við að vekja athygli á þeim háska sem umbjóðendur hans standa frammi fyrir vegna gjalda sem ferðamönnum er gert að greiða. Jóhannes er fyrrverandi aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, og hafði þá oft í nógu að snúast við að skerpa á málflutningi formanns síns. Þetta var svo stór hluti af...
SlúðurÁætlun Sigmundar Alþingi verður sett á morgun eftir sumarfrí og eru margir spenntir að sjá hvernig umræðan verður í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem fór fram í sumar. Hvíslað er innan hóps Miðflokksmanna að flokkurinn þurfi að koma sterkur inn en fylgi hans hefur verið í frjálsu falli eftir að hafa náð rúmum 20% í janúar. Mælist flokkurinn aðeins með rúm 13% samkvæmt könnun...
SlúðurErfið Sigríður Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins, hefur ekki áhuga á að Ísland standi við gerða samninga varðandi EES þrátt fyrir að þingmenn flokksins hafi hrópað aftur og aftur að EES dugi Íslandi þegar rætt var um mögulegar áframhaldandi aðildarviðræður Íslands við ESB. Þingmaðurinn mætti í viðtal á Vísi og sagðist ekki taka mikið mark á orðum um að það yrði mögulega farið...
SlúðurAuðkonan og kaupfélagsstjórinn Það þykir vera mikið áfall fyrir fjölmiðlun á Íslandi þegar stjórnendur Sýnar hafa lokað fréttastofu Stöðvar 2. Í gegnum tíðina hafa fréttamenn þar staðið sig prýðilega og gjarnan komið fram með mál sem skipt hafa miklu. Hlutleysi hefur gjarnan verið einkenni frétta þar. Nú hafa áhugamenn um fjölmiðla þungar áhyggjur af Morgunblaðinu sem hefur verið þungur baggi á Guðbjörgu Matthíasdóttur,...