Umpólunin í íslenskum stjórnmálum eftir slaginn um Evrópusambandið hefur tekið á sig skrautlegar myndir. Margir stöldruðu við í Silfrinu í Sjónvarpinu þar sem sá herskái frjálshyggjuhaukur Björn Bjarnason, fyrrverandi forystumaður Sjálfstæðisflokksins, mætti til að taka þátt í vangaveltum um stöðu Íslands eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna.
Annar þátttakandi í umræðunni var hinn vinstri græni Stefán Pálsson, sagnfræðingur og friðarsinni. Þeir félagar voru sem hönd í hönd undir flaggi Nei-hreyfingarinnar. Svo var að sjá sem samleið þeirra félaga héldi áfram því haukurinn og friðardúfan voru sammála í meginatriðum og kvökuðu í samhljómi ...































Athugasemdir