Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Vinslit Össurar og Ólafs

Vinslit Össurar og Ólafs
Ólafur Ragnar Grímsson Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Gömlu fóst­bræð­urnir Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ingar, og Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrum for­seti Íslands, eru komnir í hár saman vegna Evr­ópu­sam­bands­ins. Ólafur Ragnar er geng­inn í lið með Hannesi Hólm­steini Giss­ur­ar­syni, fyrr­ver­andi pró­fessor, og berst með kjafti og klóm gegn því að þjóðin fái að greiða atkvæði um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Samtökin hafa náð að setja lím­miða í sína þágu á stóran hluta af heyrúllum bænda víða um land. Sumir kenna sam­tökin við rúll­urnar.

Össur gefur Ólafi Ragnari ekk­ert eftir og líkir honum og þeim sem standa að Nei-hreyf­ing­unni við MAGA-hreyf­ingu Trumps. Össur segir á Facebook að í Banda­ríkj­unum sé MAGA-hreyf­ing­unni stjórnað af millj­óna- og billjóna­mær­ingum. Hún ráð­ist á stofn­anir og saki menn um að ganga erinda erlends valds. Með öllum ráðum sé þaggað niður í stofn­unum, ein­stak­lingum og fjöl­miðlum. Auður sægreif­anna íslensku not­aður í þágu Nei-hreyf­ing­ar­innar.

„Á Íslandi er NEI-hreyf­ing­unni stýrt af auð­mönnum eins og Halldóri Benjamín, hálaun­aðri verka­lýðs­for­ystu sem vill ekki einu sinni leyfa eigin félags­mönnum að skoða mögu­leika á lækkun mat­væla­verðs eða veru­lega lægri vöxtum hús­næð­is­lána – og full­trúum sem áður sátu efst á tróni stjórn­kerf­is­ins,“ skrifar Össur og vísar aug­ljós­lega til Ólafs Ragnars. Ólafur Ragnar mætti í Spursmál í gær þar sem hann tal­aði var­lega um Össur en taldi þó að vinur sinn væri að upp­hefja sig með bar­átt­unni fyrir því að þjóðin fengi að svara til um aðild. Áður hafði for­set­inn fyrr­ver­andi gefið í skyn að rík­is­stjórnin myndi hugs­an­lega semja beint um aðild­ina án aðkomu þjóð­ar­innar.

Þess er nú beðið hvert verði næsta útspil Ólafs Ragnars og heyrúllu­sam­tak­anna í stríð­inu um þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­urnar ...

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Slúður