Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Þóranna Helga ekkja í Rauðagerði: „Alast upp án þess að eiga pabba, alveg ofboðslega góðan pabba“

Þóranna Helga ekkja í Rauðagerði: „Alast upp án þess að eiga pabba, alveg ofboðslega góðan pabba“
Mynd af Þórunni Helgu / Skjáskot Stöð 2.

Þóranna Helga Gunn­ars­dóttir, ekkja Armando Beqirai, sem myrtur var fyrir utan heim­ili þeirra við Rauða­gerði, er gengin 33 vikur með annað barn þeirra en fyrir eiga þau 18 mán­aða gamlan son. Börnin tvö munu nú alast upp án föður síns.

Blessuð sé minn­ing Armando.

Þóranna segir að þau hjónin hafi verið virki­lega spennt fyrir fram­tíð­inni og barn­inu sem er á leið­inni í heim­inn í júní. Í sam­tali við Kompás segir hún ótrú­lega erfitt að útskýra fyrir ungum syni hvað gerð­ist en hún ætlar að vera sterk fyrir son sinn og barnið sem er á leið­inni.

„Ég gæti þetta örugg­lega ekki án hans, og það er bara fyrir hann sem maður getur vaknað, og fyrir hann sem maður fer á fætur og þetta. Það er aug­ljóst að hann finnur að það er eitt­hvað sem er ekki í lagi. Þetta er ofboðs­lega erfitt. Ég get ekki ímyndað mér hvernig það er að alast upp án þess að eiga pabba, alveg ofboðs­lega góðan pabba,“ segir Þóranna.

Undir mið­nætti laug­ar­dags­kvöldið 13. febr­úar kom Armando Beqiri, 33 ára karl­maður frá Albaníu, að heim­ili sínu í Rauða­gerði. Hann lagði bíl sínum í bíl­skúrnum og þegar hann gekk út um bíl­skúrs­dyrnar var hann skot­inn níu sinnum, meðal ann­ars í höf­uðið.

Þóranna gagn­rýnir lög­reglu­yf­ir­völd og segir þau hafa brugð­ist. Til að mynda full­yrðir hún að lög­reglan hafi vitað af sá sem játað hefur morðið á sig hafi verið vopn­aður skam­byssu vik­urnar fyrir morðið. Þá var líka vitað að hann hafi verið eft­ir­lýstur í heima­land­inu.

Maðurinn sem hefur játað á sig morðið á Armando Bequirai heitir Angjelin Sterkaj. Hann er einnig frá Albaníu og er fæddur árið 1986. Þrettán til við­bótar eru með stöðu sak­born­ings, tíu karlar og þrjár konur. Málið er nú komið á borð Hér­aðs­sak­sókn­ara sem tekur ákvörðun um ákæru.

Játning liggur fyrir vegna morðs­ins sem framið var í Rauða­gerði þann 13. febr­úar síð­ast­lið­inn, þar sem Armando var skot­inn til bana við heim­ili sitt. Hann var skot­inn níu sinnum meðal ann­ars í höfuð og bol með fyrr­greindum afleið­ingum. Skot­vopnið stað­festir lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæði að sé fundið, en um er að ræða 22 kalí­bera skamm­byssu með hljóð­deyfi. Fannst skot­vopnið í sjónum við höf­uð­borg­ar­svæðið í mars.

Armando var jarð­sung­inn 5. mars síð­ast­lið­inn.

Sjá einnig: Nafn manns­ins sem lést í Rauða­gerði: Var íslenskur, elsk­aður, átti konu og barn og von á öðru

Armando og Þóranna Helga bjuggu saman í Rauða­gerði og voru að gera húsið upp. Það var bróðir Þórönnu og vinur hans, sem búa á neðri hæð­inni í hús­inu í Rauða­gerði, sem komu fyrstir að Armando látnum.

„Ég sendi Armando skila­boð um að taka úr þurrkar­anum, og hann sendir á mig: Já, ekk­ert stress. Ég er hjá vini mínum og kem heim eftir smá stund! Ég segi bara: Ok, sjá­umst eftir smá! Og svo, bara tutt­ugu mín­útum seinna, fæ ég köllun um að hringja á sjúkra­bíl sem ég geri og þegar ég er komin niður þá sé ég að hann liggur þarna fyrir framan hjá okkur. Ég læt strák sem býr á neðri hæð­inni fá son minn og ég og bróðir minn byrjum hjarta­hnoð,” segir Þóranna og bætir við:

„Þetta var bara aftaka. Það er eng­inn meðal­jón sem getur gengið að manni og skotið hann níu sinnum.“

Aftakan var framin við Rauða­gerði um mið­nætti 13. febr­úar. Ungur maður á fer­tugs­aldri var tek­inn af lífi á hrotta­legan og kald­rifj­aðan hátt. Hinn myrti var Íslend­ingur, Armando Beqiri, sem á ættir að rekja til Albaníu. Hann sett­ist hér að annan jóla­dag árið 2014, lærði tungu­málið, kynnt­ist konu og gift­ist, eign­að­ist barn og átti von á öðru kríli í fangið örfáum mán­uðum síðar, eig­in­maður, faðir og fyr­ir­tækja­eig­andi í Gerðunum. Unnusta hans, Þóranna, er nú gengin 33 vikur.

Armando virt­ist hafa komið ár sinni vel fyrir borð og hann kunni íslensku. Stoltur kaus hann svo í fyrsta sinn á lífs­leið­inni er hann stakk kjör­seðli í kass­ann í þing­kosn­ingum hér á landi. Armando var líka harður stuðn­ings­maður íslenska lands­liðs­ins.

Morðið við Rauðagerði

Skömmu fyrir mið­nætti lagði Armando bíl sínum inn í bíl­skúr og á sömu stundu og hann var að ganga að úti­dyr­unum er talið að bíl hafi verið ekið fram­hjá hús­inu og þaðan hafi hverju byssu­skot­inu á fætur öðru verið hleypt af. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hæfðu kúl­urnar Armando í bak, háls og höfuð en aðrar misstu marks. Á vett­vangi fannst Armando liggj­andi í blóði sínu og var reynt end­ur­lífgun og hann fluttur á spít­ala.

Armando komst aldrei til með­vit­undar og var hann úrskurð­aður lát­inn á Land­spít­al­anum stuttu eftir komu þangað.

Armando við Barna­fossa

Til Íslands á jól­unum

Málið er allt hið sorg­leg­asta, Armando átti 18 mán­aða dreng. Unnusta hans ber barn undir belti og á von á sér eftir nokkra mán­uði.

Armando var albanskur að upp­runa og var fyrst talað um að einn útlend­ingur hefði skotið annan. Það er ekki svo ein­falt. Armando kom til Grikk­lands haustið 2012. Rétt rúmum tveimur árum síðar, á annan í jólum, lendir hann á Íslandi. Tók hann strax ást­fóstri við land og þjóð. Á sam­fé­lags­miðlum seg­ist Armando tala þrjú tungu­mál, albönsku, grísku og ensku. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs var hann fljótur að ná tökum á einu erf­ið­asta máli ver­aldar, íslensku. Þá segja heim­ild­ar­menn Mannlífs að hann hafi verið vel lið­inn af mörgum.

Sjá einnig: Þetta er mað­ur­inn sem hefur játað á sig morðið í Rauða­gerði

Kynnist konu og tekur ástfóstri við landið

Árið 2014 kynnt­ist Armando kon­unni sinni og eign­uð­ust þau son fyrir ekki margt löngu og áttu von á öðru barni, er hann féll frá.

Sann­leik­ur­inn er nefni­lega sá, líkt og nefnt er hér að ofan að mað­ur­inn er íslenskur. Einn stærsti dag­ur­inn í hans lífi var þegar Armando var veittur rík­is­borg­ara­réttur. Þá var hann mont­inn með sig, sem von er. Armando fyllt­ist stolti að kjósa í fyrsta sinn á ævinni og hafði áhrif á þing­kosn­ing­arnar ásamt öðrum Íslend­ingum.

Til merkis um ást hans á Íslandi, þá var Armando gall­harður stuðn­ings­maður Íslenska lands­liðs­ins í knatt­spyrnu. Fylgdi hann lið­inu til Rúss­lands á heims­meist­ara­mótið og stoltið leynir sér ekki á einni mynd­inni þar sem Armando er í íslensku lands­lið­s­treyj­unni.

Vinamargur fyrirtækjaeigandi

Tekið skal fram að ekki er ætlun Mannlífs að setja geisla­baug á nokkurn er teng­ist þessum sorg­lega og ömur­lega harm­leik við Rauða­gerði eða draga upp myrk­ari hlið af þeim sem eru til umfjöll­unar. Það er hins vegar stað­reynd að ungur faðir sem var í metum hjá mörgum var myrtur á hrotta­feng­inn hátt og eftir situr fjöl­skylda í sárum

Nokkrir heim­ild­ar­manna Mannlífs bera Armando vel sög­una. Hann hafi verið reglu­samur og vart sést á honum vín. Þá er Armando sagður vina­margur og í fjöl­mennum vina­hópi er nú stórt skarð sem aldrei verði fylgt.

Óvinir eða óvild­ar­menn hús­bónd­ans í Rauða­gerði eru sagðir fáir, jafn­vel taldir á fingrum ann­arrar handar. Hvort það sé rétt kemur í ljós síðar.

Fá aldrei að kynnast föður sínum

Veröld Íslend­inga gæti breyst til fram­búðar, til hins verra og fælist í að lög­regla teldi rétt að ganga með skamm­byssur. Und­ir­heim­arnir myndu þá víg­bú­ast líka og einn dag­inn yrði Íslend­ingur fyrir byssu­kúlu.

Þóranna skilur ekki hvers vegna Angelin hafi fengið að vera hér á landi. Ég bara skil ekki hvernig annað fólk, eins og þessi maður, fær að koma og vera hér,“ segir Þóranna. Hún lýsir Armando sem mjög til­finn­inga­sömum ein­stak­lingi.

„Rosalega ástríðu­fullur. Allar til­finn­ingar voru rosa­lega ýktar. Hann var rosa­lega vin­margur og fljótur að kynn­ast fólki. Fólk lang­aði að vera í kringum hann.“

Þóranna hefur misst ást­ina sína. Tvo ung börn, annað ófætt, fá aldrei að kynn­ast föður sínum. Þjóðin upp­lifir örygg­is­leysi sem er hjóm eitt miðað við það sem aðstand­endur unga fjöl­skyldu­föð­ur­ins munu ganga í gegnum næstu vikur, mán­uði og ár.

Armando sem lést við Rauða­gerði fyrir utan hús sitt var ungur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við