Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Nafn mannsins sem lést í Rauðagerði: Var íslenskur, elskaður, átti konu og barn og von á öðru

Nafn mannsins sem lést í Rauðagerði: Var íslenskur, elskaður, átti konu og barn og von á öðru

Aftaka var framin við Rauða­gerði um mið­nætti á laug­ar­dag. Ungur maður á fer­tugs­aldri var tek­inn af lífi á hrotta­legan og kald­rifj­aðan hátt. Hinn myrti var Íslend­ingur, Armando Beqiri, sem á ættir að rekja til Albaníu. Hann sett­ist hér að annan jóla­dag árið 2014, lærði tungu­málið, kynnt­ist konu og gift­ist, eign­að­ist barn og átti von á öðru kríli í fangið örfáum mán­uðum síðar, eig­in­maður, faðir og fyr­ir­tækja­eig­andi í Gerðunum. Unnusta hans er nú gengin 24 vikur.

Armando virt­ist hafa komið ár sinni vel fyrir borð og hann kunni íslensku. Stoltur kaus hann svo í fyrsta sinn á lífs­leið­inni er hann stakk kjör­seðli í kass­ann í þing­kosn­ingum hér á landi. Armando var líka harður stuðn­ings­maður íslenska lands­liðs­ins.

Morðið við Rauðagerði

Skömmu fyrir mið­nætti lagði Armando bíl sínum inn í bíl­skúr og á sömu stundu og hann var að ganga að úti­dyr­unum er talið að bíl hafi verið ekið fram­hjá hús­inu og þaðan hafi hverju byssu­skot­inu á fætur öðru verið hleypt af. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hæfðu kúl­urnar Armando í bak, háls og höfuð en aðrar misstu marks. Á vett­vangi fannst Armando liggj­andi í blóði sínu og var reynt end­ur­lífgun og hann fluttur á spít­ala.

Armando komst aldrei til með­vit­undar og var hann úrskurð­aður lát­inn á Land­spít­al­anum stuttu eftir komu þangað.

Armando við Barna­fossa

Lithái um fer­tugt situr í gæslu­varð­haldi og talið að hannn lægi undir grun um að hafa framið skelfi­legan glæp. Þá var greint frá að lýst væri eftir Íslend­ing og í nótt voru þrír teknir höndum í sum­ar­bú­stað og flutt til Reykja­víkur. Ekki kemur fram hvort þau séu vitni í mál­inu eða grunuð um aðild.

Saumaklúbbar og flökkusögur í undirheimunum

Íslenska þjóðin er slegin vegna máls­ins og þá hefur aftakan valdið miklum skjálfta í und­ir­heimunum og þar á bæ vita sumir ekki í hvorn fót­inn þeir eiga að stíga. Dæmi eru um að sumir tengdir und­ir­heimunum, menn sem kalla ekki allt ömmu sína, hafi yfir­gefið höf­uð­borg­ina og ætli að dvelja í sum­ar­bú­stöðum í sveit­inni þar til öldur róast og tek­ist hefur að varpa ljósi á málið. Lík­leg­asta atburða­rásin í þessum skelfi­lega harm­leik virð­ist hafa týnst og lent undir ótal flökku­sögum sem ganga ljósum logum í und­ir­heimum Reykja­víkur. Sauma­klúbbar finn­ast nefni­lega líka neð­an­jarðar og á meðan telja sumir sem tengj­ast þess­ari myrku ver­öld að gæfu­legra sé að halda sig í vari í sveit­inni.

Óralangt er síðan að nokkuð þessu líkt átti sér stað í örglæpa­ver­öld íslenskra krimma, eflaust er engan sam­an­burð að finna, að myrða mann í íbúð­ar­götu og tæma hvert skot úr skamm­byss­unni á mann sem nán­ast stendur í úti­dyr­unum heima. Slíkt minnir helst á heim­ild­ar­myndir um mafíur víða um ver­öld eða sögu­þráð kvik­myndar.

Til Íslands á jólunum

Málið er allt hið sorg­leg­asta, Armando átti 15 mán­aða dreng. Unnusta hans ber barn undir belti og á von á sér eftir nokkra mán­uði.

Armando var albanskur að upp­runa og var fyrst talað um að einn útlend­ingur hefði skotið annan. Það er ekki svo ein­falt. Armando kom til Grikk­lands haustið 2012. Rétt rúmum tveimur árum síðar, á annan í jólum, lendir hann á Íslandi. Tók hann strax ást­fóstri við land og þjóð. Á sam­fé­lags­miðlum seg­ist Armando tala þrjú tungu­mál, albönsku, grísku og ensku. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs var hann fljótur að ná tökum á einu erf­ið­asta máli ver­aldar, íslensku. Þá segja heim­ild­ar­menn Mannlífs að hann hafi verið vel lið­inn af mörgum.

Kynnist konu og tekur ástfóstri við landið

Árið 2015 kynnt­ist Armando kon­unni sinni og eign­uð­ust þau son fyrir ekki margt löngu og áttu von á öðru barni, er hann féll frá. Í fréttum var talað um harm­leik milli tveggja erlendra manna. Í einni frétt RÚV segir að hvor­ugur mann­anna var íslenskur. Það er rangt! Sá sem situr í varð­haldi er frá Litháen.

Sann­leik­ur­inn er nefni­lega sá, líkt og nefnt er hér að ofan að mað­ur­inn er íslenskur. Einn stærsti dag­ur­inn í hans lífi var þegar Armando var veittur rík­is­borg­ara­réttur. Þá var hann mont­inn með sig, sem von er. Armando fyllt­ist stolti að kjósa í fyrsta sinn á ævinni og hafði áhrif á þing­kosn­ing­arnar ásamt öðrum Íslend­ingum.

Til merkis um ást hans á Íslandi, þá var Armando gall­harður stuðn­ings­maður Íslenska lands­liðs­ins í knatt­spyrnu. Fylgdi hann lið­inu til Rúss­lands á heims­meist­ara­mótið og stoltið leynir sér ekki á einni mynd­inni þar sem Armando er í íslensku lands­lið­s­treyj­unni.

Nágrannar

Það vekur athygli að nágrannar urðu ekki varir við neitt, sem bendir til að hljóð­deyfir hafi verið á skamm­byss­unni. Enginn nágrann­anna heyrði skot­hvelli en í sam­tali við DV sögðu þeir lítil sam­skipti hafa átt við parið sem festi kaup á íbúð­inni í Rauða­gerði fyrir rúmu ári og hófu strax fram­kvæmdir og bætti parið við auka­í­búð á efri hæð. Einn nágranna sagði í sam­tali við DV:

„Alls konar umgangur í kringum skúr­inn, menn að koma og fara og eitt­hvað svo­leiðis.“

Maðurinn tók þó fram að ekk­ert ónæði hafi fylgt þessu og þekkti nágrann­inn ekki fólkið, aðeins í sjón.

Heim­ildir Mannlífs herma að lög­reglan skoðar nú hvort morðið teng­ist upp­gjöri í und­ir­heimunum en hvort málið taki síðan aðra stefnu á eftir að koma í ljós. Margeir Sveins­son hjá mið­lægri rann­sókn­ar­deild lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir að ef svo er raunin sé komin upp alvar­leg staða. Ekki er vitað hvort byssan sé fundin eða af hvaða teg­und hún er. Þá svarar lög­regla ekki hvort vitni hafi verið nærri er morðið var framið. Margeir gat þó stað­fest að upp­tökur úr mynda­vélum hefðu verið teknar til athug­unar.

Það er mikið talað um að hún teng­ist upp­gjöri í und­ir­heimunum. Er það lík­legt?

„Það er bara eitt af því sem við erum að skoða og ég get ekk­ert sagt til um það.“

Skotvopn oft í fréttum

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Mynd / Aldís Páls­dóttir

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra segir að ef um sé að ræða upp­gjör í und­ir­heimunum sé það veru­legt áhyggju­efni. Hún kveðst hafa orðið var við aukna hörku í und­ir­heimunum. Þá var Áslaug spurð hvort stæði til að lög­reglu­þjónar fengju að vopn­bú­ast.

„Það hefur verið eitt aðals­merki íslensku lög­regl­unnar að við almenn lög­gæslu­störf sé hún ekki búin vopnum en aftur á móti er mjög mik­il­vægt að hafa hér hóp sem er okkar sér­sveit til að takast á við þessi atvik þar sem eru vopn­aðir ein­stak­linga.“ Á síð­ustu vikum hafa verið áber­andi fréttir þar sem skot­vopn koma við sögu og skynjar hún áhyggjur Íslend­inga vegna þessa:

„ Það auð­vitað skapar ótta og það þarf að bregð­ast við þeim ótta enda þurfa lög­reglu­menn­irnir okkar að vera til þess búnir og færir til að geta brugð­ist við og tryggt öryggi almenn­ings.“

Alvarleg skilaboð

Karl Steinar Valsson, yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, sagði í kvöld­fréttum RÚV að mögu­legt væri að árásin tengd­ist upp­gjöri í und­ir­heimunum. Hann gæti þó alls ekki full­yrt neitt um slíkt. Karl Steinar sagði:

„Sé það hins vegar staðan, að við séum að tala um eitt­hvað slíkt, þá eru það mjög alvar­leg skila­boð og þá verðum við að horfa aðeins til Norð­ur­land­anna þar sem slíkt hefur verið til staðar. Þannig að ég held að við verðum að skoða það mjög vand­lega ef að það verður það sem kemur á dag­inn.“

Vinamargur fyrirtækjaeigandi

Tekið skal fram að ekki er ætlun Mannlífs að setja geisla­baug á nokkurn er teng­ist þessum sorg­lega og ömur­lega harm­leik við Rauða­gerði eða draga upp myrk­ari hlið af þeim sem eru til umfjöll­unar. Það er hins vegar stað­reynd að ungur faðir sem var í metum hjá mörgum var myrtur á hrotta­feng­inn hátt og eftir situr fjöl­skylda í sárum

Nokkrir heim­ild­ar­manna Mannlífs bera Armando vel sög­una. Hann hafi verið reglu­samur og vart sést á honum vín. Þá er Armando sagður vina­margur og í fjöl­mennum vina­hópi er nú stórt skarð sem aldrei verði fylgt.

Armando var einn eig­anda fyr­ir­tækis sem sér­hæfði sig í örygg­is­gæslu og dyra­vörslu. Ekki verður full­yrt um það í þess­ari umfjöllun en fyr­ir­tækið hefur að sögn heim­ild­ar­manna, vaxið hratt og gengið vel.

Óvinir eða óvild­ar­menn hús­bónd­ans í Rauða­gerði eru sagðir fáir, jafn­vel taldir á fingrum ann­arrar handar. Hvort það sé rétt kemur í ljós síðar. Frétta­blaðið hefur haldið fram að fjöl­skyldu­mað­ur­inn í Rauða­gerði og lit­há­inn sem situr í gæslu­varð­haldi teng­ist báðir áhrifa­mönnum í íslenskum und­ir­heimum.

Hefði fagnað á morgun

Veröld Íslend­inga gæti breyst til fram­búðar, til hins verra og fælist í að lög­regla teldi rétt að ganga með skamm­byssur. Und­ir­heim­arnir myndu þá víg­bú­ast líka og einn dag­inn yrði Íslend­ingur fyrir byssu­kúlu.

Í vinnugall­anum

Unnusta hefur misst ást­ina sína. Tvo ung börn, annað ófætt, fá aldrei að kynn­ast föður sínum. Þjóðin upp­lifir örygg­is­leysi sem er hjóm eitt miðað við það sem aðstand­endur unga fjöl­skyldu­föð­ur­ins munu ganga í gegnum næstu vikur, mán­uði og ár.

Armando sem lést við Rauða­gerði fyrir utan hús sitt var ungur.

Á morgun eða á næstu dögum mun án efa koma fram upp­lýs­ingar sem varpa ljósi á atburða­rás­ina. Morðingi munu svara til saka.

Það væri við­eig­andi að málið leyst­ist þann 16. febr­úar. Hvers vegna? Jú, í dag er fæð­ing­ur­dagir Armando.

Í dag á hann afmæli.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð