Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Rauðagerðismorðið: „Ég ætla að skera þig á háls. Ég ætla að skera börn­in þín á háls“

Rauðagerðismorðið: „Ég ætla að skera þig á háls. Ég ætla að skera börn­in þín á háls“
Angjelin Sterkaj

Skýrslu­taka í Rauða­gerð­is­mál­inu er hafin fyrir dómi en fyrstur til að veita skýrslu er Angjelin Sterkajs en hann hefur játað morðið á landa sínum, Arm­ando Beqirai. Dómarinn bað hann að lýsa atburð­unum sem urðu til þess að hann myrti Arm­ando Beqirai en sam­kvæmt frétt Mbl.is liggur Angjelin lágur róm­ur­inn.

Segir Armando hafa hótað sér

Segir Angjelin að Armando ásamt fleiri mönnum hafi á heim­ili Armando, beðið hann að „taka“ börn Antons Kristins Þór­ar­ins­sonar, oft­ast kall­aður Toni en hann var einn þeirra sem í í upp­hafi máls­ins var færður í gæslu­varð­hald en síðar sleppt.

Þá segir Angjelin að sér og börnum sínum hefði verið hótað líf­láti og því hafi hann keypt sér byssu. Sagði hann enn­fremur að hann hafi von­ast eftir því að menn­irnir sem hót­uðu honum myndu telja hann hættu­legan og því láta hann vera.

Sjá einnig: Þóranna Helga ekkja í Rauða­gerði: „Alast upp án þess að eiga pabba, alveg ofboðs­lega góðan pabba“

Segist Angjelin hafa farið í snjó­sleða­ferð 11. febr­úar, tveimur dögum fyrir morðið en þar hafi hann fengið sím­tal frá Armando þar sem hót­aði honum líf­láti, „ég ætla að skera þig á háls. Ég ætla að skera börn­in þín á háls,“ segir Angjelin að Armando hafi sagt við sig í síma­tal­inu. Bætti hann svo við að Armando hefði hótað því að senda fólk heim til fjöl­skyldu hans í Albaníu. Svaraði Angjelin þá Armando að hann skyldi þurfa að svara fyrir þær gjörðir sem Armando hót­aði honum að gera.

Hitti aðra ákærða degi fyrir morðið

Angjelin seg­ist hafa, dag­inn fyrir morðið eða 12. febr­úar, farið á bíl Tona í Borg­ar­fjörð þar sem hann hitti fyrir Shpetim Qerimi en hann er einnig ákærður í mál­inu. Tjáði Angjelin honum að fólk væri að hóta sér. Þetta hafi verið seint um kvöld en hann tók með sér skamm­byss­una sem hann not­aði síðar við morðið. Hann hafi síðan sett byss­una í tösku og beðið ákærðu Claudiu Sofiu Coelho Carvalho að fara með tösk­una heim til sín. Samkvæmt Angjelin fór hann úr Borg­ar­firði dag­inn eftir, 13. febr­úar. Segist hann hafa hringt í Claudiu þegar hann kom til Reykja­víkur sem hafði hús­lykla hans og beðið hana að sækja Shpetim. Eftir að hafa verið á heim­ili Sphetim um tíma hafi hann beðið Claudia að skutla sér heim. Þar beið fólk hans og bað hann Claudia að keyra aðeins lengra og leggja í stæði. Byrjaði hann svo að ganga í átt að húsi sínu.

Sjá einnig: Nafn manns­ins sem lést í Rauða­gerði: Var íslenskur, elsk­aður, átti konu og barn og von á öðru

Óttaðist fólk í und­ir­heimunum

Segist hann þá hafa séð að fólk beið hans á heim­ili hans og því hafi hann fengið sér göngutúr og hafa dul­bú­ist með húfu á höfði. Ætlun hans var að bíða eftir að fólki færi af heim­ili sínu. Fimmtán mín­útum seinna kom hann heim til sín og hafði hönd­ina á byss­unni en hann var hræddur því að fólk úr und­ir­heimum Reykja­víkur hafi beðið á heim­ili hans.
Samkvæmt Mbl.is hafði Claudia sagt Angjelin um klukkan 23 að kvöldi 13. febr­úar, hvar Armando væri að finna. Sagðist Angjelin enn hafa verið hræddur og viljað fara í sum­ar­hús og bað hann Sphetim að koma með sér.

Þeir tveir hafi þó þess í stað farið í Rauða­gerði og bað Angjelin Sphetim að keyra bíl­inn. Hann hafi ætlað að hitta Armando og spjalla við hann undir fjögur augu. Þegar Angjelin kom heim til Armando var Armando í bíl­skúr sínum, sam­kvæmt Angjelin. Þegar Angjelin sá Armando taka um byssu sína sem lá í hillu í bíl­skúrnum hafi hann tekið upp skamm­byssu sína og sett á hana hljóð­deyfi. Þegar Armando sá að Angjelin var mættur, segir Angjelin að hann hafi byrjað að hóta sér líf­láti og börnum hans einnig og að hann hafi haft skamm­byssu sína niðri með hliðum þegar Armando gerði sig lík­legan til að ráð­ast á sig. Angjelin sagði þá við dóm­ar­ann „ég tók upp byss­una og byrj­aði að skjóta.“

Eftir morðið fór Angjelin í bíl­inn þar sem Sphetim beið og segir Angjelin að hann hafi ekki vitað að hann hefði rétt í þessu myrt Armando Begirai, „ég var ekk­ert að segja nein­um að ég hafi drepið hann.“

Sjá einnig: Angejlin Sterkaj hót­aði að „fylla maga Armando af byssu­kúlum“ – Skömmu síðar stóð hann við það

Enginn vissi um morðið

Þeir Angjelin og Sphetim keyrðu síðan í Borg­ar­fjörð en á leið­inni vildi sá síð­ar­nefndi fara út til að kasta af sér vatni. Þar hafi Angjelin notað tæki­færið og stigið út úr bílnum og hent morð­vopn­inu í sjó­inn. Það hafi reyndar tekið tvær til­raunir. Hann hafi svo verið með föt til skiptana í bílnum og skipt um föt. Segist hann svo hafa hringt í Claudi og athugað hvað hún væri að gera en hún sagð­ist vera að drekka heima hjá Angjelin. Hann seg­ist þá hafa spurt hvort hún vildi ekki koma í Borg­ar­fjörð­inn, þau gætu þá drukkið saman.

Þá greip dóm­ar­inn inn í og spyr Angjelin hvort hann viti að þau sem eru ákærð í mál­inu séu ákærð fyrir sam­verknað og hvort hann haldi því fram að eng­inn hafi vitað um drápið. Angjelin full­yrti að eng­inn hafi vitað um morðið, hvort áður en það var framið, né eftir það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum