Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þetta er það sem Aron fyrirliði er sakaður um – Lestu hræðilegar lýsingar meints þolanda

Þetta er það sem Aron fyrirliði er sakaður um – Lestu hræðilegar lýsingar meints þolanda

„Ég ligg and­vaka, get ekki hætt að hugsa um alla sem hafa þurft að upp­lifa það sama og ég. Upplifa skömm, reiði, sorg, upp­gjöf, van­trú á sínar eigin til­finn­ingar og upp­lif­anir“.

Á þessum orðum hefst frá­sögn konu sem steig fram í sumar með opinni færslu sem fórn­ar­lamb kyn­ferð­is­legrar mis­notk­unar af hendi tveggja þekktra íslenskra manna og er annar hinna meintu ofbeld­is­manna þjóð­þekktur að hennar sögn. Mannlíf greindi fyrst frá mál­inu. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hafa þeir báðir leikið fyrir íslenska karla­lands­liðið í fót­bolta. Konan treystir sér hins vegar hvorki til að nafn­greina þá né koma fram undir nafni.

Sjá einnig: Segir tvo þjóð­þekkta Íslend­inga hafa nauðgað sér ítrekað: „Ég skila skömminni, FOKKIÐ YKKUR “

Konan segir að atvikið hafi átt sér stað árið 2010 af tveimur íslenskum mönnum og það hafi átti sér stað erlendis. Hún seg­ist hafa verið að skemmta sér og hefur þá grun­aða um að hafa sett eitt­hvað út í glasið sitt. „Ég ældi yfir annan þeirra í leigu­bílnum á leið á hót­elið þeirra, svo aftur í rúmið á hót­el­inu en þeir létu það ekki stoppa sig og skipt­ust á að nauðga mér þar sem ég lá í rúm­inu ber að neðan með ælu í hár­inu, and­lit­inu og föt­unum“.

Konan segir frá því að það fyrsta sem annar mann­anna hafi sagt við hana dag­inn eftir hafi verið „Vóóó ekki kæra mig fyrir nauðgun“ og hló. Hún segir að þó það séu nærri liðin 11 ár frá atvik­inu komi ekki sá dagur að þetta skjóti ekki upp koll­inum í huga hennar. „Þetta rændi mig svo mörgu. Sjálfs­traustinu, gleð­inni, tæki­færum og upp­lif­unum“.

Þá segir konan að staðið hafi til að kæra menn­ina og hún var komin með lög­fræð­ing, fór í skýrslu­töku hjá lög­reglu en hvar sem hún kom var henni tjáð það að þetta væri mjög erfitt mál, annað land og þeir tveir gegn mér. Hún var einnig spurð um það hvort hún væri viss um að hún vildi leggja þetta á sig. „Eftir margra mán­aða bið ákvað ég svo að leggja málið niður, var ekki nógu sterk, gat ekki lagt meira á mig and­lega. Þessir menn voru þekktir, annar þeirra þjóð­þekktur í dag“.

Konunni var ítrekað bent á að ef hún myndi kæra þá hefði það áhrif á þeirra feril, þetta myndi fara í blöðin og þá myndu allir vita af þessu. Hún segir spurn­ingin sem sækir hvað fast­ast að henni frá þeim tíma þegar hún sagði frá vera: Ertu viss? og athuga­semdin: Þú vildir þetta en sást svo eftir því.

„Ég má segja frá, ég má bara ekki nafn­greina. Mig langar ekki að burð­ast með þetta ein í hjart­anu, mig langar ekki að hugsa í hvert skipti sem ég fer meðal fólks „Ætli þau viti þetta, ætli þau trúi mér?“ því það er ógeðs­lega íþyngj­andi og heft­andi félags­lega. Ég er alltaf á varð­bergi“.

Konan segir að þennan dag hafi eitt­hvað verið tekið frá henni sem hún mun aldrei fá aftur en að hún ætli að halda áfram að vinna í sér. Henni fannst tími kom­inn til að segja frá:

„Ég skila loks­ins skömminni, FOKKIÐ YKKUR !!“.

Eftir kvöldið sem um ræðið kærði konan hið meinta kyn­ferð­is­brot en dró síðar kæruna til baka. Brotið á að hafa átt sér stað í Kaup­manna­höfn árið 2010. Meintur brota­þol­inn óskaði eftir því að málið yrði tekið upp að nýju og rann­sakar lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nú íslenska lands­liðs­fyr­ir­lið­ann og atvikið sem lýst er hér að ofan.

Aron hefur skorað á þá sem hafa eitt­hvað um hann að segja eða út á hann að setja að nafn­greina sig og gefa honum þá kost á að verja sig. Líkt og Mannlíf greindi frá í gær hefur hann verið úti­lok­aður frá lands­liðs­hópnum og meinað að spila fyrir hönd Íslands. Aron er afar ósáttur og for­dæmir þá ákvörðun að hann verði ekki í leik­manna­hópi fyrir kom­andi lands­leiki. Aron telur að KSÍ hafi sett hann til hliðar vegna „krafna sem bygg­ist á óljósum orðrómi“ og þver­tekur fyrir að beitt ofbeldi.

Sjá einnig: Aron fyr­ir­liði sagður bann­aður frá lands­lið­inu – Fjar­veran útskýrð síðar segir þjálf­ar­inn

Aron sendi frá sér yfir­lýs­ingu í gær þar sem hann full­yrti að úti­lok­un­ar­menn­ing við­gang­ist innan KSÍ, sem eigi ekki að líð­ast. Hann seg­ist einnig ekki hafa fengið tæki­færi til að ræða form­lega um atburð­inn sem eigi að hafa átt sér stað í Kaup­manna­höfn fyrir ell­efu árum og ætlar hann að óska eftir því við lög­reglu­yf­ir­völd að fá að gefa skýrslu um þetta kvöld. Aron hafði meðal ann­ars þetta að segja um ásak­an­irnar:

„Á sam­fé­lags­miðlum hefur verið til umræðu atburður sem sagt er að hafi átt sér stað í Kaup­manna­höfn 2010. Ég hef ekki fengið tæki­færi til að ræða málið form­lega við KSÍ, eða verið gef­inn kostur á standa á rétti mínum gagn­vart ávirð­ing­unum, og því sárnar mér þessi fyr­ir­vara­lausa ákvörðun um að verða settur út úr lið­inu.

Í ofaná­lag hefur lög­regla aldrei haft sam­band við mig vegna nokk­urs máls. Ég hef engar til­kynn­ingar fengið um að ég hafi á ein­hverjum tíma­punkti verið undir grun og aldrei verið boð­aður í yfir­heyrslu.“

„Hafi ein­hver eitt­hvað út á mig að setja þá bið ég við­kom­andi vin­sam­leg­ast að hlífa mér ekki, ásaka mig frekar og nafn­greina og gefa mér kost á að verja mig. Það er heið­ar­legt.“

Landslið karla í knatt­spyrnu á í miklum vanda þessa daga. Liðið er í stormi sam­fé­lags­miðla þar sem ásak­anir á liðs­menn ganga ljósum logum og einn þeirra, Gylfi Sig­urðs­son, sætir lög­reglu­rann­sókn vegna meints kyn­ferðs­brots gagn­vart ungri stúlku. Aðrir tveir hafa verið sak­aðir um alvar­leg brot en þó aðeins á sam­fé­lags­miðlum. Aron Einar fyr­ir­liði er annar þeirra, hinn er sagður byrj­un­ar­liðs­maður hjá FH.

Hafn­firð­ing­ur­inn Gylfi Þór er einn af fremstu knatt­spyrnu­mönnum Íslands og sann­kölluð þjóð­hetja fyrir árangur sinn. Síðustu mán­uðir hafa verið honum erf­iðar. Lög­reglu­rann­sókn stendur yfir og hann sak­aður um að hafa mis­notað stúlku undir lög­aldri. Honum hefur verið vikið tíma­bundið úr liði sínu, Everton, á meðan rann­sókn stendur. Mannlíf fjall­aði fyrst allra miðla um málið.

Sjá einnig: Lands­liðið í stormi sam­fé­lags­miðla – Ásakanir um kyn­ferð­is­brot og heim­il­is­of­beldi

Gull­dreng­ur­inn Gylfi er um þessar mundir fall­inn af stalli sem kon­ungur íslenskra knatt­spyrnu­manna og nú er kast­ljós­inu beint að sjálfum fyr­ir­lið­anum. En máli þeirra er alls ekki lokið. Báðir liggur undir grun en hafa ekki verið dæmdur. Flestir vona að lands­li­iðs­mennir séu sak­lausir af því sem á þá er borið.

Aron Einar hefur ekki verið sak­felldur fyrir eitt né neitt. Fólki er brugðið; eng­inn átti von á neinu slíkum ásök­unum, líkt og fram koma í hræði­legum lýs­ingum meinst þolenda hér ofar. Málið mun fara sína réttu leið og eru allir hvattir til að halda ró sinni og láta ekki út úr sér nein sær­andi opin­ber ummæli; Aron á fjöl­skyldu.

Lands­liðs­fyr­ir­lið­inn seg­ist vera sak­laus og á hann ský­lausan rétt á því að hann sé ekki dæmdur fyr­ir­fram af einum né neinum.

Mannlíf heldur áfram að fylgj­ast með mál­inu.

Sjá einnig: Tengda­faðir Gylfa Þórs knatt­spyrnu­kappa: „Þau eru ekki að skilja“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð