Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tengdafaðir Gylfa Þórs knattspyrnukappa: „Þau eru ekki að skilja“

Tengdafaðir Gylfa Þórs knattspyrnukappa: „Þau eru ekki að skilja“

Ívar Erlends­son, faðir Alexöndru Helgu, eig­in­konu Gylfa Þór Sig­urðs­sonar, lands­liðs­manns í knatt­spyrnu, úti­lokar að þau hjónin standi í hjóna­skiln­aði. Um það ganga nú háværar sögur hér á landi en í sam­tali við Mannlíf þver­tekur tengda­faðir lands­lið­s­kappans fyrir þær sögur.

Óhætt er að segja að mál Gylfa, sem af mörgum er tal­inn besti knatt­spyrnu­maður Íslands fyrr og síðar, hafi sett allt á hlið­ina í sam­fé­lag­inu frá því að Mannlíf greindi fyrstur allra miðla í heim­inum frá mál­inu.
„Ég get fylli­lega borið þetta til­baka. Það er ekk­ert svo­leiðis í gangi. Þú getur haft það eftir mér að þau eru ekki að skilja.“

Að öðru leyti vill Ívar ekki ræða mál­efni fjöl­skyld­unnar. Aðspurður hvort þeim sé öllum heim­ilt að vera í dag­legu sam­bandi við Gylfa svarar hann því ját­andi. Um heilsu tengda­son­ar­ins hefur hann þetta að segja: „Hann hefur það fínt.“

Sjá einnig: Gylfi með stöðu grun­aðs manns í Manchester – Þetta hefur lög­reglan að segja um málið

Gylfi er enn skráður sem leik­maður Everton, en full­trúi félags­ins harð­neit­aði að tjá sig um mál hans í afar stuttu sam­tali við blaða­mann Mannlífs. „No comment.“

Líkt og Mannlíf greindi fyrst frá var Gylfi hand­tek­inn vegna gruns um brot gegn stúlku undir lög­aldri. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs átti brotið sér stað árið 2017.

Mál Gylfa Þórs, lands­liðs­manns og leik­manns Evert­on, er ennþá til rann­sókn­ar hjá lög­regl­unni í Manchester, og ekki hef­ur verið gef­in út kæra á hend­ur Gylfa, að sögn lög­regl­unn­ar í borg­inni.

Sjá einnig: Alex­andra flutt út – Gylfi Þór vaktaður allan sól­ar­hring­inn

Mikil þögn hefur ríkt um mál Gylfa í Bret­landi og hér á landi og hefur ekk­ert verið gefið út um það hvort Gylfi þurfi að mæta fyr­ir dóm­ara á næst­unni. Slúður þess efnis hefur gengið um á sam­fé­lags­miðlum að Gylfi ætti að mæta fyr­ir dóm­ara ytra á morg­un en það hefur ekki feng­ist stað­fest.

Hjónin skírðu dóttur sína á dög­unum. Dóttirin sem fædd­ist í byrjun maí er frum­burður þeirra hjóna og fékk nafnið Melrós Mía.

Breskir fjöl­miðlar hafa hins vegar full­yrt að Alex­andra væri flutt út af heim­ili þeirra hjóna og því haldið raunar fram að það hafi hún gert nokkrum vikum áður en hann var hand­tek­inn af lög­reglu fyrir helgi.

Á sama tíma og Alex­andra er umvafin fjöl­skyldu sinni á Íslandi segja fjöl­miðlar ytra að Gylfi hafi verið fluttur í öruggt skjól á vegum Everton þar sem hans er gætt allan sól­ar­hring­inn.

Sjá einnig: Fjöl­skylda og lög­menn umvefja Gylfa

Hafn­firð­ing­ur­inn Gylfi Þór er einn af fremstu knatt­spyrnu­mönnum Íslands og sann­kölluð þjóð­hetja fyrir árangur sinn. Síðustu vikur hafa þó verið honum erf­iðar. Lög­reglu­rann­sókn stendur yfir og hann sak­aður um að hafa mis­notað stúlku undir lög­aldri. Honum hefur verið vikið tíma­bundið úr liði sínu, Everton, á meðan rann­sókn stendur.

For­eldrar Gylfa eru þau Sigurður Aðal­steins­son og Margrét Guð­munds­dóttir. Hann á einn bróður, Ólaf Má og eina systur, Fjólu Rún.

Gylfi er kvæntur Alexöndru Helgu, sem kjörin var Ungfrú Ísland árið 2008. Þau gengu í heil­agt hjóna­band í fyrra og á þessu ári eign­uð­ust þau sitt fyrsta barn. Gylfi er stakur reglu­maður og hefur aldrei drukkið áfengi eða neitt ann­arra eit­ur­lyfja. Hann er lang­launa­hæsti ís­lenski knatt­spyrnu­maður­inn en Gylfi fær um 850 millj­ón­ir króna í árs­laun hjá enska úr­vals­deild­ar­fé­lag­inu Evert­on.

Sjá einnig: Var Gylfi hakk­aður?

Það fór vart fram hjá neinum þegar brúð­kaup Gylfa Þórs og Alexöndru Helgu fór fram. Engu var til sparað og var brúð­kaupið haldið í stór­kost­legu umhverfi við Como-vatn í norð­ur­hluta Ítalíu. Ítalska höllin Villa Balbiano við bæinn Ossuccio við Como-vatn varð fyrir val­inu og var þar haldin glæsi­leg brúð­kaups­at­höfn ásamt því að slegið var upp veislu.

Mikill fjöldi prúð­bú­inna gesta var á svæð­inu og má þar nefna lands­liðs­menn á borð við Aron Einar Gunn­ars­son, Rúrik Gíslason og Alfreð Finn­boga­son, ásamt eig­in­konum og kærustum. Þá voru á svæð­inu einnig vin­konur Alexöndru eins og Trendnet blogg­ar­ana Fanney Ingv­ars­dóttur, ung­frú Ísland 2010 og Pöttru Sri­ya­nonge, fyr­ir­sæt­una og mark­aðs­stjóra World Class, Birgittu Líf Björns­dóttur auk fleiri þekktra íslenskra and­lita.

Ef marka má heim­ildir Mannlífs fór gift­ingin þó fram í skugga fram­hjá­halds lands­liðs­manns­ins þar sem Alex­andra vissi þá af hinum meinta broti frá árinu 2017.

Sjá einnig: Slúðrað um Gylfa á sam­fé­lags­miðlum

Hjón­in Al­ex­andra Helga og Gylfi Þór festu einnig kaup á glæsi­legri lóð í Arn­ar­nesi. Um er að ræða 1.149,7 fm lóð á besta stað við sjó­inn. Lóðin snýr í suður og er með út­sýni út í Sjá­lands­hverfið í Garðabæ. Fast­eigna­mat lóðar­inn­ar er 69.700.000 kr. fyr­ir 2021. Hjón­in festu kaup á lóð­inni 10. júlí 2020 og stefna á að byggja þar upp fram­tíð­ar­heim­ili fjöskyld­unnar.

Gull­dreng­ur­inn Gylfi er um þessar mundir fall­inn af stalli sem kon­ungur íslenskra knatt­spyrnu­manna, en máli hans er þó alls ekki lokið. Hann liggur undir grun en hefur ekki verið dæmdur.

Gylfi er grun­aður um að hafa brotið gegn ólög­ráða stúlku í Bret­landi á árinu 2017 og þá hafi Gylfi verið 26 ára gam­all. Heim­ildir Mannlífs herma að Gylfi hafi ekki vitað af aldri stúlkunnar á þessum tíma. Nýlega hafi faðir stúlkunnar kom­ist að sam­skiptum þeirra og leitað til lög­reglu sem hafi fram­kvæmt hús­leit í byrjun júlí á heim­ili Gylfa í Bret­landi og síðar hand­tekið hann.

Mannlíf fjall­aði fyrst miðla um málið og vís­aði í sögu­sagnir þess efnis að Gylfi væri sá hand­tekni í Manchester borg. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs búa Alex­andra og ungt barna þeirra hjóna nú í Garða­bænum í faðmi fjöl­skyldu hennar. For­eldrar hans munu hins­vegar hafa flogið út til Bret­lands, um leið og ljóst var að Gylfi hafi verið hand­tek­inn og veita honum nú mik­il­vægan stuðn­ing ásamt lög­mönnum Everton.

„Hann hefur það fínt.“

Óhætt er með öllu að full­yrða að Gylfi er einn besti knatt­spyrnu­maður Íslands fyrr og síðar; hann hefur alla tíð verið rólegur, yfir­veg­aður og kurt­eis í fram­komu og hrein­lega fyr­ir­mynd í alla staði. Ímynd hans hefur verið fáguð og „elegant“ og lítið verið um slúður eða orðróm um að hann teng­ist ein­hverju vafasömu.

Sjá einnig: Gylfi lýsir yfir sak­leysi sínu

Það kom því eins og blaut tuska framan í íslensku þjóð­ina að Gylfi hefði verið hand­tek­inn nýlega grun­aður um áður­nefnt brot. Þetta eru ein­hverjar óvænt­ustu fréttir sem lands­menn hafa fengið í langan tíma.

Gull­dreng­ur­inn Gylfi er um þessar mundir fall­inn af stalli sem kon­ungur íslenskra knatt­spyrnu­manna, en máli hans er þó alls ekki lokið. Hann liggur undir grun en hefur ekki verið dæmdur. Flestir vona að Gylfi Sig­urðs­son sé sak­laus af því sem á hann er borið.

Gylfi hefur ekki verið sak­felldur fyrir eitt né neitt. Fólki er brugðið; eng­inn átti von á neinu slíku í tengslum við Gylfa, sem ávallt kemur vel fyrir, er kurt­eis og vin­gjarn­legur og á aðdá­endur út um allan heim. Stuðn­ings­mönnum Everton um allan heim varð bylt við er tíð­indin bár­ust og þeir og hrein­lega allir sem þekkja til Gylfa í algjöru sjokki.

Málið mun fara sína réttu leið og eru allir hvattir til að halda ró sinni og láta ekki út úr sér nein sær­andi opin­ber ummæli; Gylfi á fjöl­skyldu – nýfætt barn og er að ganga í gegnum erf­iða tíma, eins og allir í fjöl­skyldu hans og Alexöndru konu hans, vinir og vanda­menn.

Gylfi seg­ist vera sak­laus og á hann ský­lausan rétt á því að hann sé ekki dæmdur fyr­ir­fram af einum né neinum.

Sjá einnig: „Mig lang­ar að taka það skýrt fram að ég er ekki stúlk­an sem teng­ist máli Gylfa Sig­urðs­son­ar“

Mannlíf heldur áfram að fylgj­ast með mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi