Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Slúðrað um Gylfa á samfélagsmiðlum

Slúðrað um Gylfa á samfélagsmiðlum
Alex­andra og Gylfi Mynd / Instagram

Enskir fjöl­miðlar greina frá því að leik­maður ensku úr­vals­deild­ar­innar hafi verið hand­tek­inn grun­aður um kyn­ferðis­brot gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Fjöl­miðlar ytra hafa ekki nafn­greint leik­mann­inn. en segja hann 31 árs gamlan og giftan.

Leik­mað­ur­inn var hand­tek­inn síð­asta föstu­dag af lög­regl­unni í Manchester áður en honum var síðan sleppt gegn trygg­ingu.

Daily Mail hefur það þá eftir tals­manni liðs hans, sem fjöl­mið­ill segir heldur ekki hvert er, að leik­mað­ur­inn hafi verið leystur frá störfum á meðan lög­regla rann­sakar málið. Hann er í byrj­unar­liði liðs­ins og The Mirror segir hann einnig reyndan lands­liðs­mann í sínu heima­landi. The Sun fjallar einnig um málið en nafn­greinir leik­mann­inn ekki. Mið­ill­inn hefur það þó eftir heim­ildar­manni sínum að lög­regla hafi leitað á heim­ili manns­ins og gert nokkra hluti þar upp­tæka.

Síðustu daga hefur borið á ásök­unum á hendur fót­bolta­kapp­anum og lands­liðs­mann­inum Gylfa Þór Sig­urðs­syni á öllum helstu sam­fé­lags­miðlum, þar er því haldið fram að hann hafi verið að senda ungri stúlku eða stúlkum ósið­sam­leg skila­boð. Tekið skal fram að um óstað­festan orðróm að ræða og eru þetta meintar ásak­anir, fremur en nokkuð annað, að minnsta kosti eins og málin standa núna.

Á vef­síð­unni citigist.com er stórt spurt í grein sem fjallar um Gylfa Sig­urðs­son knatt­spyrnu­kappa, sem giftur er Alexöndru Helgu Ívars­dóttir, sem eytt hefur Instagram aðgangi sínum.

Spurn­ingin, fyr­ir­sögnin, í grein­inni er svohljóð­andi: „Is Gylfi Sig­urds­son Arrested? Wife Rumours – He Is Not In Jail Or Prison.“

Vef­mið­ill­inn Newsfinale.com fjallar einnig um málið. Þar er minnst á að fólk haldi því fram að Gylfi hafi verið hand­tek­inn í gær, 17. júlí.

Á Reddit er fólk að velta fyrir sér meintum ásök­unum á hendur Gylfa sem virð­ast vera komnar víða um ver­ald­ar­vef­inn.

Á Twitter er spurt um það hvort mögu­legt sé að Gylfi hafi verið að senda ólög­ráða stúlku eða stúlkum óvið­eig­andi skila­boð.

Á Twitter reikn­ingi Gylfa segja margir sem fylgja honum þar að hann hafi verið hand­tek­inn í gær.

Á sam­fé­lags­miðl­inum TikTok fjallar Kieran Jones, um orðróm­inn og meintu ásak­an­irnar á hendur Gylfa. Mynd­bandið má sjá hér að neðan. Kieran tekur fram að ekk­ert stað­fest sé um að Gylfi hafi verið hand­tek­inn af lög­reglu.

Hvort fréttir ensku miðl­anna eða slúð­ur­sögur síð­ustu daga hafi nokkuð að gera með Gylfa Þór er algjör­lega óstað­fest en síð­ustu daga hefur það hvergi feng­ist stað­fest né hrakið. Mannlíf mun áfram fjalla um málið ef stað­festar upp­lýs­ingar ber­ast eða útskýr­ingar á þessu upp­þoti á sam­fé­lags­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina