Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fjölskylda og lögmenn umvefja Gylfa

Alexandra og Gylfi Mynd / Instagram
Alex­andra og Gylfi Mynd / Instagram

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Mannlífs er eiginkona Gylfa Sigurðs­sonar – Alexandra Helga Ívars­dóttir – komin til landsins.

Hins vegar, samkvæmt sömu heimildum, er nánasta fjöl­skylda Gylfa komin til Englands, og Gylfi er sagður vera kominn með hóp lögfræðinga til að verja sig. Mannlíf náði tali af móður Gylfa í gærkvöldi, en hún vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu.

KSÍ mun funda í dag vegna máls Gylfa.

Slúður um Gylfa hefur verið í gangi á samfélags­miðlum, en í raun hefur ekkert fengist staðfest annað en að leikmaður Everton hafi verið hand­tekinn og grunaður um brot gegn einstaklingi undir lögaldri.

Gylfi, sem spilar fyrir Everton í ensku úrvals­deildinni, hefur verið besti fótbolta­maður Íslands í langan tíma; hefur leikið 78 lands­leiki og skorað í þeim 25 mörk.

Sögur ganga um samfélags­miðla að maður sem starfar sem fjölmiðla­maður á stórum miðli hér á landi hafi hakkað sig inn á reikning Gylfa á samfélags­miðli og sent út óviðeigandi skilaboð og myndir í nafni Gylfa. Sá aðili svarar hvorki í síma né nokkru um málið á samfélags­miðlum eða í tölvu­pósti. Hvort viðkomandi hafi haft áhrif á reikninga Gylfa er aftur á móti algjör­lega óljóst á þessari stundu.

Mannlíf hefur reynt að ná sambandi við marga af starfs­fólki vefmiðilsins, en ýmist hefur það neitað að tjá sig, skellt á eða verið með slökkt á símanum. Frétta­stjóri miðilsins neitaði til að mynda að koma í símann þegar blaða­maður Mannlífs hringdi og bað um hann. Starfs­maður miðilsins sagði einfald­lega að frétta­stjórinn myndi ekki svara neinu um málefni starfs­mannsins.

Sá sem sögur ganga um að hafa hakkað Gylfa er samkvæmt sömu heimildum farinn úr landi. Samkvæmt heimildum Mannlífs hefur sami einstaklingur hakkað sig inn á reikning annars lands­liðsmanns í knatt­spyrnu og til að mynda sent afar óviðeigandi myndir í nafni viðkomandi sem og skilaboð.

Lögreglan sagðist ekki vera með neitt slíkt hakkaramál tengt Gylfa Þór eða umræddum fjölmiðla­manni á borði sínu þegar eftir því var leitað, hvorki lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu né embætti ríkis­lögreglu­stjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra