Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Trump dekstraður og mærður af leiðtogum NATO

Leið­togar vest­rænna lýð­ræð­is­ríkja leggja sig fram um að heilla Banda­ríkja­for­seta, ásamt því að ganga að kröfum hans.

Trump dekstraður og mærður af leiðtogum NATO
Kátir með Trump Forseti Finn­lands, Alex­ander Stubb, kímir við, en hann náði góðum tengslum við Trump á golf­vell­inum í vor. Forseti Frakk­lands, Emmanúel Macron, stendur bros­andi í miðið og lengst til hægri er íhalds­mað­ur­inn Friedrich Merz, nýr kansl­ari Þýska­lands. Mynd: AFP

Donald Trump hóf ferð sína á NATO-leið­toga­fund­inn með skammar­yrðum og reiði, en pirr­ing­ur­inn hvarf eins og dögg fyrir sólu. Nokkrum klukku­stundum síðar var for­set­inn orð­inn allt annar maður.

Frá kon­ung­legri gist­ingu með morg­un­verði til opin­berrar lof­ræðu, var allt gert til að halda Trump í góðu skapi – af ótta við að hann myndi sprengja í loft upp vand­lega skipu­lagða sýn­ingu á ein­ingu innan NATO.

Og það borg­aði sig fyrir leið­tog­ana.

Það sem gladdi Trump mest, mann sem dregst að dýrð og tign, var að hol­lenski kon­ung­ur­inn, Willem-Alex­ander, lagði rauða dreg­il­inn – bók­staf­lega – og bauð honum í veg­lega kvöld­mál­tíð ásamt því að bjóða honum að gista með litlum fyr­ir­vara.

Trump ljóm­aði þegar hann heils­aði kon­ung­inum, drottn­ing­unni og prinsess­unni, og lýsti þeim síðar sem „fal­legu og stór­brotnu fólki“.

„Beint úr kvik­myndum,“ sagði hann um hol­lensku kon­ungs­fjöl­skyld­una. „Morg­un­verð­ur­inn okkar var frá­bær!“

Sýnilega hress eftir kon­ung­legan morg­un­verð hrós­aði hann „fal­lega Hollandi“ í hástert á leið sinni í for­seta­bílnum „The Beast“ á fund­ar­stað­inn á mið­viku­dag.

„Ég vil þakka þeim fyrir þessa kon­ung­legu með­höndlun“
Donald Trump

„Ég vil þakka þeim fyrir þessa kon­ung­legu með­höndlun – gæti varla verið betra,“ sagði hann upp yfir sig af ánægju. Sjálfur hefur Trump vakið mót­mæla­öldu í heima­land­inu undir slag­orð­inu „No Kings“, eftir að hafa birt mynd af sér sem kon­ungi.

„Og þetta er svo fal­legt land... ég sá heims­ins fal­leg­ustu tré – ég vil reyndar taka nokkur með mér heim.“

Skap­ferli for­set­ans spegl­að­ist líka í breyttum póli­tískum tón.

Þótt hann hefði varpað sprengju inn í umræð­una með því að draga í efa sam­eig­in­lega varn­ar­stefnu NATO á leið sinni yfir Atl­ants­hafið dag­inn áður, var hann nú bros­andi og vin­gjarn­legur.

Við komu hans tóku gest­gjafar hans á móti honum með lof­ræðum.

„Þú ert maður styrks, og líka maður friðar,“ sagði Mark Rutte, aðal­rit­ari NATO og oft kall­aður „Trump-hvísl­ari“.

Varðandi skammar­yrðin sem Trump lét falla dag­inn áður, þar sem hann gagn­rýndi Íran og Ísrael fyrir að brjóta vopna­hlé­sam­komu­lag, lét Rutte það ekki á sig fá.

„Stundum þarf pabbi að nota sterk orð,“ sagði hann.

„Þinn sigur“

Trump sem mætti bros­andi á leið­toga­fund­inn var varla þekkj­andi frá reiða for­set­anum sem yfir­gaf Hvíta húsið innan við sól­ar­hring fyrr.

Leið­togar sem söfn­uð­ust saman í Haag fylgd­ust áhyggju­fullir með Trump skamm­ast út í Ísrael og Íran af ótta við að vopna­hlé sem hann hafði nýlega kynnt myndi falla um sjálft sig.

Jafnvel starfs­fólk Hvíta húss­ins var hissa þegar Trump sagði að ríkin tvö „viti ekki rass­gat hvað þau eru að gera“ – lík­lega í fyrsta sinn sem sitj­andi for­seti bölvar þannig opin­ber­lega.

Frá for­seta­flug­vél­inni Air Force One sendi hinn 79 ára gamli for­seti út yfir tugi reiðra skila­boða á sam­fé­lags­miðlum um allt frá póli­tískum and­stæð­ingum til NATO-útgjalda.

Hann virt­ist ekki mikið hress­ari þegar hann ræddi við frétta­menn um borð í flug­vél­inni og sagði að „fjöldi skil­grein­inga“ væri til á kjarna­grein NATO, 5. grein sátt­mál­ans um sam­eig­in­lega varn­ar­við­brögð.

En ein skila­boð virt­ust hafa náð hjarta hans.

For­set­inn end­ur­birti per­sónu­leg skila­boð frá Rutte þar sem hann sagði: „Evrópa mun borga MIKIГ og bætti við: „Þetta verður þinn sigur.“

Þegar Trump steig út úr vél­inni á Schiphol-flug­vell­inum í Amster­dam að kvöldi þriðju­dags, virt­ist hann strax í betra skapi. Hann var með hvíta der­húfu merkt „USA“ og brosti til mynda­véla.

Stekkur ekki brosMette Fred­rik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, hefur átt í erf­iðum sam­tölum við Trump eftir að hann hót­aði leynt og ljóst að taka Grænland með valdi. Hér stendur hún and­spænis Trump fyrir mynda­töku í dag.

„Stórkostlegur árangur“

Gest­gjafar Trumps fylgdu síðan þaul­reyndri aðferð sem Bretar hafa líka beitt áður – að höfða til lotn­ingar hans gagn­vart Elísa­betu drottn­ingu.

Hol­lenski kon­ung­ur­inn bauð Trump í kvöld­verð á kon­ungs­höll­inni Huis ten Bosch, sem stendur í skógi rétt fyrir utan Haag, í glæsi­legum barokk-sal með vegg­myndum og gylltum skreyt­ingum.

Trump, sem sjálfur hefur verið í fast­eigna­brans­anum og hefur fyllt Hvíta húsið af glamúr, benti upp í loftið af hrifn­ingu meðan hann spjall­aði við kon­ung­inn.

Næsta morgun mætti Trump bros­andi og gaf þum­al­inn upp þegar hann snæddi morg­un­verð með kon­ungs­hjón­unum.

Fyrir mann sem hefur til­hneig­ingu til að koll­varpa alþjóða­fundum og yfir­gefa þá fyrir tím­ann, virt­ist hann nú kom­inn í gott skap þegar hann mætti á sjálfan fund­inn.

Í fyrra hafði Trump jafn­vel sagt að hann myndi segja Rúss­landi að „gera það sem þeim fjand­ans sýn­ist“ við NATO-ríki sem borg­uðu ekki sinn hlut – en allt slíkt virt­ist gleymt nú.

„Við stöndum með þeim til fulls,“ sagði hann og vís­aði til þess að margir leið­tog­anna væru vinir hans.

„Ég held að leið­toga­fund­ur­inn hafi verið frá­bær. Þetta var stór­kost­legur árangur,“ sagði Trump við Dick Schoof, for­sæt­is­ráð­herra Hollands.

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagð­ist eftir fund­inn í dag hafa náð góðum tengslum við Trump. Hún reyndi að höfða til hans með því að hvetja hann til að þrýsta á vopna­hlé á Gasa. „Ég hvatti Banda­ríkja­for­seta, sem sat nú bara beint á móti mér og horfði í augun á mér, til þess að koma á vopna­hléi á Gasa, þar sem að hann hefði áður sýnt að hann getur haft gíf­ur­leg áhrif á slíka samn­inga og að vopna­hlé náist.“

Þrátt fyrir orð um að öll banda­lags­ríki NATO myndu greiða 5% af lands­fram­leiðslu sinni til varnar- og örygg­is­mála kveðst Kristrún hafa náð und­an­þágu fyrir Ísland, sem verji aðeins 1,5% þjóð­ar­fram­leiðslu til örygg­is­mála í víð­ara sam­hengi frá og með árinu 2035.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta