Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Trump sat á móti Kristrúnu sem „fékk að minnsta kosti gott bros“

Leið­toga­fundur Atl­ants­hafs­banda­lags­ins fór fram í Haag í Hollandi í dag og sagði Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra að það ríki mik­ill skiln­ingur gagn­vart stöðu Íslands sem ríki sem er her­laust

Trump sat á móti Kristrúnu sem „fékk að minnsta kosti gott bros“
Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra Sat leið­toga­fund NATÓ og spjall­aði við Trump Mynd: Samfylkingin

Leið­toga­fundur Atl­ants­hafs­banda­lags­ins fór fram í Haag í Hollandi í dag og að sögn Kristrúnar Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra ríkir mik­ill skiln­ingur gagn­vart stöðu Íslands sem ríki sem er her­laust.

Sagði Kristrún að fund­ur­inn væri sögu­legur því þar „sam­mælt­ust leið­togar banda­lags­ríkja um að stór­efla okkar sam­eig­in­legu varnir.“

Hún segir einnig að ætl­unin sé að „styrkja inn­viði heima sem styðja við öryggi og varnir Íslands. En það verður engin breyt­ing á sam­bandi okkar við NATO. Ég átti meðal ann­ars gott sam­tal við for­seta Banda­ríkj­anna um varnir Íslands. Það er alveg ljóst að varn­ar­samn­ing­ur­inn við Banda­ríkin verður áfram grunn­stoð í okkar utan­rík­is­stefnu. Frum­skylda rík­is­stjórnar er að standa vörð um þjóðar­ör­yggi,“ sagði Kristrún.

Hun lagði á fund­inum áherslu á áfram­hald­andi stuðn­ingi við Úkraínu; ræddi örygg­is­mál á Norð­ur­slóðum og hvatti banda­lags­ríki Íslands til að beita sér fyrir því að vopna­hlé náist á Gaza sem allra fyrst.

Kristrún sagði í sam­tali við Vísi að fund­ur­inn hafi gengið „afar vel, það eru allir ein­huga um að NATO er farið að styrkja sig veru­lega og það eru komin auð­vitað aukin fram­lög og vil­yrði um aukin fram­lög inn í banda­lagið.“

Kristrún ítrekar það að fullur skiln­ingur er á stöðu Íslands sem her­lauss ríkis:

„Það er ekki verið að gera kröfu um neina eðl­is­breyt­ingu á sam­bandi við NATO. Það ríkir fullur skiln­ingur á því að við erum her­laus þjóð, en það eru líka tæki­færi í þeirri stöðu að það sé vilji til þess að sjá aðra inn­viði vaxa í þessu umhverfi og rík­is­stjórnin mun fylgja því eftir.“

Kristrún átti stutt sam­tal við Donald Trump Banda­ríkja­for­seta:

„Ég ræddi stutt­lega við Banda­ríkja­for­seta í gær í kvöld­verði. Hann er auð­vitað mjög með­vit­aður um það góða sam­band sem er á milli ríkj­anna og með­vit­aður um tví­hliða samn­ing­inn okkar þegar kemur að vörnum og ríkur vilji til að standa vörð um þann samn­ing. Þannig ég hef ekki fundið annað en bara jákvæðni í okkar garð.“

Hún segir að Trump meti mik­ils varn­ar­samn­ing sem er í gildi á milli Íslands og Banda­ríkj­anna:

„Við fór­um ör­stutt yfir sam­band Íslands og Banda­ríkj­anna. Ég nefndi auð­vitað við hann tví­hliða varn­ar­samn­ing Íslands og Banda­ríkj­anna, sem við met­um mik­ils, og hann ger­ir það líka.“

Kristrún seg­ir að Banda­ríkja­menn og Donald Trump vera mjög svo með­vit­aða um hið hern­að­ar­lega mik­il­vægi Íslands í Norður-Atlants­hafi.

Ísland er einnig í Norð­ur­skauts­ráð­inu, en þar eru líka Banda­ríkin, Danmörk fyrir Færeyjar og Grænland, Finnland, Kanada, Noregur, Rússland og Svíþjóð:

„Það er mik­ill styrk­ur í þessu sam­bandi milli Íslands og Banda­ríkj­anna og ég hlakka til frek­ara sam­starfs. Þetta verður auð­vitað áfram akk­eri okk­ar í ör­ygg­is- og varn­ar­mál­um og for­senda okk­ar veru í NATO. Og auð­vitað ástæðan fyr­ir því að við geng­um inn í NATO á sín­um tíma. Við höf­um þenn­an öfl­uga stuðn­ing í þess­um góða banda­manni“ seg­ir Kristrún.

Ástandið í Úkraínu var líka til umræðu á fund­inum og segir Kristrún að skila­boðin frá Íslandi vera þau að áfram sé mik­il­vægt að styðja við bar­áttu Úkraínu gegn Rúss­landi:

„Ég kom líka þeim skila­boðum til líka til hóps­ins, til fund­ar­ins, og hvatti Banda­ríkja­for­seta til þess að ýta undir og koma á vopna­hléi á Gaza. Þannig það er margt undir, mikið í umræð­unni og miklar hreyf­ingar. En fyrst og fremst bara rík sam­staða í hópnum og það er gott fyrir okkur að finna að við til­heyrum hópi sem er jafn breiður og þetta, með öfl­ugar varnir og mikil sam­staða.“

Kristrún segir að Donald Trump geti haft gíf­ur­leg áhrif á frið­ar­við­ræður í heim­inum í dag og hún er að von­ast til þess að hann beiti sér fyrir friði í heim­inum:

„Ég hvatti Banda­ríkja­for­seta, sem sat nú bara beint á móti mér og horfði í augun á mér, til þess að koma á vopna­hléi á Gaza, þar sem að hann hefði áður sýnt að hann getur haft gíf­ur­leg áhrif á slíka samn­inga og að vopna­hlé náist.“

Kristrún var spurð að því hvernig orðum hennar og hvatn­ingu um að beita sér fyrir vopna­hléi á Gaza hefði verið tekið af Banda­ríkja­for­seta:

„Ég fékk að minnsta kosti gott bros, ég sat beint á móti Banda­ríkja­for­seta þegar ég flutti mína ræðu, og það er ríkur vilji mjög víða í þessum hópi að sjá vopna­hlé sem allra fyrst. Fólk er mjög með­vitað um það og við verðum að skapa auk­inn þrýst­ing. Og fólk hefur auð­vitað áhyggjur af því að aukin átök ann­ars staðar í heim­inum geri það af verkum að fólk gleymi kannski Úkraínu og Gaza en það var vel minnst á það á þessum fundi,“ sagði Kristrún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum