Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Stormi rommi sem Og natura/íslensk hollusta ehf framleiðir vegna glerbrots en greint er frá þessu í tilkynningu frá MAST. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness innkallað vöruna.
Viðskiptavinir sem keypt hafa vöruna eiga ekki að neyta hennar heldur farga eða skila í næstu ÁTVR verslun.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir