Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Leggur til að Garpsdalur fari í orkunýtingarflokk rammaáætlunar

Umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra leggur til að virkj­un­ar­kost­ur­inn Garps­dalur í Reyk­hóla­hreppi verði settur í orku­nýt­ing­ar­flokk ramma­á­ætl­unar

Leggur til að Garpsdalur fari í orkunýtingarflokk rammaáætlunar
Jóhann Páll Jóhanns­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra Vill að vind­myllur rísi í Garpsdal Mynd: Stjórnarráðið

Jóhann Páll Jóhanns­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, hefur lagt til að virkj­un­ar­kost­ur­inn Garps­dalur í Reyk­hóla­hreppi verði settur í orku­nýt­ing­ar­flokk ramma­á­ætl­unar.

Hefur til­laga ráð­herra verið birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda, en með henni er lögð til breyt­ing á til­lögu verk­efn­is­stjórnar verndar- og orku­nýt­inga­á­ætl­unar sem lagði til við ráð­herra í maí síð­ast­liðnum að allir 10 vind­orku­kost­irnir í 5. áfanga ramma­á­ætl­unar færu í bið­flokk.

Segir í til­kynn­ingu að þetta sé í fyrsta sinn sem ráð­herra leggur til þá breyt­ingu á til­lögu verk­efn­is­stjórnar að virkj­un­ar­kostur fari í nýt­ing­ar­flokk.

Í rök­stuðn­ingi Jóhanns Páls er bent á að virkj­un­ar­kost­ur­inn hafi fengið jákvæð­ari umsagnir frá fag­hópum ramma­á­ætl­unar en aðrir kostir sem voru til umfjöll­unar; bæði hvað varðar áhrif á nátt­úru og sam­fé­lag, og það að meiri sátt virð­ist ríkja um kost­inn í nær­sam­fé­lag­inu en um aðra vind­orku­kosti.

Segir í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórnar Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar og Flokks fólks­ins að lögð sé áhersla á aukna orku­öflun í þágu orku­ör­yggis, orku­skipta og verð­mæta­sköp­unar um allt land og að mati ráð­herra eigi þeir virkj­un­ar­kostir að ganga fyrir sem eru í senn hag­kvæmir og fela í sér minnstu umhverf­is­á­hrifin:

„Við tökum eitt skref í einu í vind­orkunni og gefum ekki grænt ljós á frek­ari fram­kvæmdir fyrr en skýr rammi og lagaum­gjörð liggur fyrir“ segir Jóhann Páll og bætir því við að þar verði lögð áhersla á að verja „nátt­úru­verð­mætin sem við eigum hérna saman og tryggja sátt og sam­stöðu í nær­sam­fé­lag­inu.“

Jóhann Páll segir að Garps­dalur í Reyk­hóla­hreppi sé sá vind­orku­kostur sem hefur fengið jákvæð­ustu umsögn­ina frá fag­hópum ramma­á­ætl­unar, bæði hvað varðar áhrif á nátt­úru og sam­fé­lag og hefur hann því „ákveðið að setja af stað sam­ráðs­ferli um að Garps­dalur fari í orku­nýt­ing­ar­flokk ramma­á­ætl­unar og stefni að því að leggja fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess efnis sam­hliða kynn­ingu á vind­orku­stefnu og breyttri lagaum­gjörð um vind­orku­nýt­ingu á næsta lög­gjaf­ar­þingi.“

Hann nefnir að aðrir vind­orku­kostir í til­lögum verk­efn­is­stjórn­ar­innar muni fá áfram­hald­andi umfjöllun hjá nýrri verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar sem skipuð var 12. júní 2025, en í „skip­un­ar­bréfi hennar kemur fram að við til­lögu­gerð skuli tekið mið af mark­miðum rík­is­stjórnar Kristrúnar Frosta­dóttur um aukna raf­orku­öflun í þágu orku­ör­yggis, orku­skipta og verð­mæta­sköp­unar um allt land.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil