Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Brennisteinssýra yfir borginni

Loft­gæða­mælar ná ekki að nema brenni­steins­sýruna. Eld­fjalla­fræð­ingur hefur varað við flug­ferðum og áhrifum á heilsu vegna hennar.

Brennisteinssýra yfir borginni
Reykja­vík­ur­tjörn í morgun Varað er við áreynslu utandyra. Mynd: Víkingur

Ung­linga­vinnan fellur niður í dag og fólk er varað við áreynslu utandyra, vegna þess að meng­un­ar­skýið úr eld­gos­inu á Sund­hnúka­gígum sem liggur yfir höf­uð­borg­ar­svæð­inu inni­felur meira brenni­steins­dí­oxíð en nokkru sinni fyrr frá upp­hafi eldsum­brota á Reykja­nesskaga. Þá hefur efnið umbreyst í brenni­steins­sýru, sem ekki er greind nægi­lega vel.

Varaði við brennisteinssýru

Heilsu­vernd­ar­mörk fyrir brenni­steins­dí­oxíð eru 350 µg/m3 fyrir styttri tíma, mín­útur eða klukku­stundir. Fyrir lengri tíma eru þau 125 µg/m3. Klukkan 8.20 í morgun var gildi brenni­steins­dí­oxíðs langt yfir þessum mörkum, eða 1.900 µg/m3.

Þess ber að geta að gildi brenni­steins­dí­oxíðs hefur farið fallandi í morgun, sem og gildi örfíns svifryks, fíns svifryks og grófs svifryks. Klukkan 10.30 voru gildin komin niður í 700 og 10.40 í 555 µg/m3 á mæli Faxa­flóa­hafna í Laug­ar­nesi í Reykja­vík. Þá hefur gildið fallið niður fyrir heilsu­vernd­ar­mörk í Hafn­ar­firði og Kópavogi.

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur var­aði nýlega við brenni­steins­sýrunni og að hún sé ekki mæld. „Þær stofn­an­ir sem sjá um eft­ir­litið fylgj­ast frek­ar með brenni­steins­díoxíð­inu, held­ur en brenni­steins­sýrunni, sem er skað­legri í raun­inni. Bæði fyr­ir heilsu okk­ar og önn­ur tæki og tól, þar á meðal flug­vél­ar,“ sagði hann í sam­tali við mbl.is.

Samkvæmt til­kynn­ingu frá Heil­brigð­is­eft­ir­liti Reykja­víkur eru ekki til staðar mælar sem nema meng­un­ina að fullu, en vís­bend­ingar eru um tölu­verða brenni­steins­sýru.

„Gosmóða inni­heldur mengun sem hefur náð að umbreyt­ast meðal ann­ars í SO4 (súlfat) og brenni­steins­sýru og grein­ist hún því ekki með hefð­bundnum mæl­ingum á brenni­steins­dí­oxíði (SO2) en mæl­ingar á fínna svifryki gefa vís­bend­ingar um að þessi mengun sé til staðar. Gildi fín­asta svifryks­ins eru há á öllum mæli­stöðvum sem mæla slíkt ryk í borg­inni,“ segir þar.

Brenni­steins­sýra er leys­an­leg í vatni og er mikið notuð í efna­hvörfum og í iðn­aði.

Villandi framsetning gagna á vef um loftgæði

Að auki er rétt að vara við því að á vef Umhverfis- og orku­stofn­unar, sem sýnir loft­gæði á Íslandi, eru flestir mælir grænir að lit, sem gefur til kynna „mjög góð“ loft­gæði, en í reynd eru þeir ein­fald­lega ekki að mæla þá teg­und meng­unar sem nú liggur í loft­inu.

Heil­brigð­is­eft­ir­litið hefur eft­ir­far­andi ráð­legg­ingar varð­andi ástandið nú.

„Þar sem bæði gosmóða og gasmengun liggja yfir borg­inni mælir Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur með að tak­marka úti­veru og sér­stak­lega áreynslu utandyra. Við þennan styrk brenni­steins­dí­oxíðs geta við­kvæmir ein­stak­lingar farið að hósta og finna fyrir ert­ingu í augum, koki og nefi. Heil­brigðir ein­stak­lingar geta fundið ein­kenni frá önd­un­ar­færum og ert­ingu í augum, nefi og koki. Gosmóða getur orsakað slen, höf­uð­verk, ert­ingu í augum og hálsi auk flensu­ein­kenna. “

Brenni­steins­skýið í gærSvo virð­ist sem brenni­steins­skýið sem lá vestur af höf­uð­borg­ar­svæð­inu í gær sé nú komið yfir borg­ina, eins og sést hér á korti Geim­ferða­stofn­unar Evrópu (ESA) frá því í gær.

Varaði við áhrifum á flugvélar

Sem fyrr segir var­aði Þor­valdur Þórð­ar­son, pró­fessor í eld­fjalla­fræði, nýlega við áhrifum brenni­steins­sýru, en þar til­tók hann sér­stak­lega að flug­vélar gætu misst vél­ar­afl. „Við verðum að taka til­lit til þeirr­ar hættu sem staf­ar af þess­um hlut­um. Þetta get­ur haft þannig áhrif að al­var­leg­ir hlut­ir geta gerst í kjöl­farið. Við vit­um að þotur sem hafa flogið í gegn­um gosmekki hafa misst vél­ar­afl,“ sagði Þor­vald­ur í sam­tali við mbl.is.

„Sem bet­ur fer hef­ur eng­in þeirra hrapað en það hef­ur oft staðið á tæpu. Það er al­gjör óþarfi að leika sér að hætt­unni þegar að við vit­um jafn mikið og við vit­um.“

Þegar Þor­valdur færði fram við­vörun sína var brenni­steins­skýið mun víð­feðm­ara í dag og náði langt vestur af land­inu, en lá þó ekki yfir höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Langt í lífshættuleg mörk

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Land­lækni þarf mikið til þess að magn brenni­steins­dí­oxíðs séu lífs­hættu­leg.

„Skamm­tíma áhrifin þegar styrkur er lágur, eru fyrst og fremst ert­ing í augum, nefi og koki og jafn­vel höf­uð­verkur. Ef gildin fara hærra, til dæmis yfir 600 µg/m3 getur borið á hósta, sér­stak­lega hjá við­kvæmum ein­stak­lingum* eða ein­stak­lingum með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. Þegar styrk­ur­inn er kom­inn yfir 2600 µ/m3 koma fram ein­kenni hjá öllum, ert­ing í önd­un­ar­vegi, hósti og höf­uð­verkur. Heil­brigðir ein­stak­lingar er ólík­legir til þess að fá alvar­leg ein­kenni fyrr en styrk­ur­inn fer upp undir 9000 µ/m3. Lífs­hættu­leg ein­kenni koma ekki fram fyrr en styrk­ur­inn fer yfir 150.000 µ/m3,“ segir Embætti land­læknis í ráð­legg­ingum sínum vegna eld­gosa og heilsu.

„Margar rann­sóknir (þó ekki allar) sýna einnig að SO2 mengun getur valdið vaxt­ar­skerð­ingu hjá fóstrum þung­aðra kvenna“
Embætti land­læknis

Þegar farið er yfir heilsu­vernd­ar­mörk geta margið fundið fyrir ein­kennum.

„Þegar fólk verður fyrir mengun af völdum brenni­steins­dí­oxíð (SO2), breyt­ist það á röku yfir­borði slím­húða í brenni­steins­sýru sem veldur ert­ingu í augum, nefi og koki. Mest af því SO2 sem berst inn í lík­amann í gegnum önd­un­ar­veg (nef og munn) safn­ast þó ekki fyrir og skaða á innri líf­færum er ekki lýst. Vegna þess er mik­il­vægt í við­brögðum við SO2 mengun að fólk andi rólega, í gegnum nefið og forð­ist áreynslu. Skaðleg áhrif SO2 eru tengd því þegar efnið kemst í neðri önd­un­ar­veg­inn, í lungun. Þá geta komið fram alvar­legri ein­kenni svo sem astmi og bólgja/bjúgur í lungum,“ segir Land­læknir.

Þó eru óléttar konur sér­stak­lega var­aðar við áhrifum af brenni­steins­dí­oxíði. „Margar rann­sóknir (þó ekki allar) sýna einnig að SO2 mengun getur valdið vaxt­ar­skerð­ingu hjá fóstrum þung­aðra kvenna og einnig að börn fæð­ist fyrir tím­ann,“ segir emb­ætti Land­læknis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi