Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Landeigandi og fjórhjólafólk tókust á við eldgosið

Árekstur var milli fjór­hjóla og átök um ferða­frelsi og rétt land­eig­enda við eld­gosið í kvöld.

Landeigandi og fjórhjólafólk tókust á við eldgosið
Átökin í kvöld Sigurður Guðjón Gíslason, for­maður Land­eig­enda­fé­lags Hrauns, stendur í stafni fjór­hjóls síns and­spænis ósáttum fjór­hjóla­mönnum. Mynd: Björgvin Gunnarsson

Fjór­hjóla­menn gerðu aðsúg að for­manni Land­eig­enda­fé­lags Hrauns, sem á land að hraun­inu sem vellur upp úr eld­gos­inu á Sund­hnúka­gíg, fyrr í kvöld.

Samkvæmt frá­sögn for­manns­ins, Sigurðar Guðjóns Gísla­sonar, höfðu fjór­hjóla­menn­irnir farið án leyfis á slóða sem liggur að hraunjaðr­inum í Fagradal og á öðrum slóða upp fjallið. Þegar hann fór til móts við þá hafi þeir fram­kallað árekstur og hóp­ast að honum með upp­töku á síma.

„Ég kem bara til að stoppa hann og rétt áður en ég næ því gefur hann í og tekur aðeins hérna," sagði Sigurður á vett­vangi við blaða­mann Mannlífs. „Þá kemur félagi hans strax út með mynda­vél, konan með sím­ann," segir hann. Við svo búið hafi fjór­hjóla­menn­irnir hrópað: „Þú keyrðir á hann! Þú keyrðir á hann!"

„Og allir með mynda­vél­arnar í and­lit­inu á mér. Þetta lið er búið að læra alltof mikið af Youtube," sagði Sigurður.

Þegar árekst­ur­inn varð brást hann við af festu. „Endilega. Þetta er kaskó­tryggt, ábyrgð­ar­tryggt. Ég ætla samt að kæra ykkur. Þá koðn­aði allt niður."

Ekki var um nein lík­am­leg átök að ræða, þótt Sigurði hafi orðið hverft við.

Deilt um ferða­frelsi og utan­vega­aksturFjór­hjóla­fólkið hafði ekki fengið leyfi, en Icelandia er með sér­leyfi frá land­eig­endum til að aka slóð­ann að gos­inu.

„Þegar það koma fimm sex á móti manni og ætla í mann. Maður er vanur þessu frá því að afi gamli heit­inn var með hagl­ar­ann þegar menn voru að spóla upp um allt, hót­uðu að lemja hann og berja hann og ég veit ekki hvað og hvað. Þá sat maður í aft­ur­sæt­inu," segir hann.

Slóðinn sem um ræðir er nýr. Veglagn­ingin var af hálfu land­eig­end­anna og þjón­aði þeim til­gangi að auð­velda aðgengi að gömlu gíg­unum austan megin, í Fagra­dals­fjalli.

Eins og Mannlíf greindi frá á föstu­dag er rútu­þjón­ustan Icelandia, sem er í eigu Kynn­is­ferða, með einka­rétt á ferðum um slóð­ann. „Við erum allir að vilja gerðir til að leysa alls konar vanda­mál ef menn bara biðja. En þetta er sér­leyfi sem Icelandia er með.“

„Við gerum þennan veg til að skoða gamla gíg­inn. Þetta er búið að vera í deiliskipu­lags­vinnu síðan 2021. Svo erum við nýbúin að klára þetta og þá gýs á full­komnum stað hér. Og þá byrja allir að labba stíg­inn. Þá á ekki saman að vera með fulla umferð. Það þarf að skammta umferð­ina inn á þetta. Við erum samt með leyfi til að vera með hópa til hliðar og veita ein­hverjum aðgang að þessu. Kvik­mynda­verk­efni og þannig.“

Undir lok átak­anna á slóð­anum ákváðu fjór­hjóla­menn­irnir að bakka. „Hvað ef við biðj­umst afsök­unar?“ spurði einn þeirra.

„Hvað ef við biðj­umst afsök­unar?“
Fjór­hjóla­maður á vett­vangi

Sigurður hefur enn ekki ákveðið hvort hann kæri fjór­hjóla­menn­ina.

„Yfir­leitt horfir maður í gegnum fingur sér með þetta. Ég ætl­aði bara að hitta þá og biðja þá að fara bara í burtu frið­sam­lega, eða þá að ég endi á að kæra ef þær ætl­uðu ekki að gera það, en svo fór þetta eins og þetta fór. Svo fóru þeir ægi­lega sorry.“

Hann kvaddi þá með þeim orðum að þeir ættu að fara bein­ustu leið til baka og lofa að hringja og fá leyfi, vilji þeir fara veg­inn.

„Ég sagð­ist ekki geta lofað því að löggan myndi ekki stoppa þá hérna hinum megin. Þeir eru nátt­úru­lega að fara í ann­arra manna land hér hinum megin að keyra fyrir utan veg líka. Þeir eru alla­vega á slóða, þó þeir séu ekki í leyfi þar. Umhverf­is­stofnun vill ekk­ert gera nema menn fari að spóla upp eitt­hvað nýtt,“ sagði Sigurður við hraunið fyrr í kvöld.

Land­eig­endur í Hrauni taka þús­und krónur fyrir hvern bíl sem lagt er á landi þeirra og er rukkað í gegnum Parka-appið. Sem fyrr segir þarf göngu­fólk að deila slóð­anum með fjall­ar­útum Icelandia.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi