Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kristján Andri Stef­áns­son sendi­herra afhendir Felipe VI Spán­ar­kon­ungi trún­að­ar­bréf sitt í spænsku kon­ungs­höll­inni í dag. Góð sam­skipti og gott veður og nýtt sendi­ráð Mynd: Stjórnarráðið

Samstarf Íslands og Spánar styrkist: Opna sendiráð í Madrid

Kristján Andri Stef­áns­son sendi­herra afhenti Felipe VI Spán­ar­kon­ungi trún­að­ar­bréf sitt sem sendi­herra Íslands á Spáni og er hann jafn­framt fyrsti íslenski sendi­herr­ann sem hefur aðsetur í Madrid höf­uð­borg Spánar

Kristján Andri Stef­áns­son sendi­herra afhenti Felipe VI Spán­ar­kon­ungi trún­að­ar­bréf sitt sem sendi­herra Íslands á Spáni.

Er hann jafn­framt fyrsti íslenski sendi­herr­ann sem hefur aðsetur í Madrid höf­uð­borg Spánar; þjónar hann umdæm­inu þaðan.

Á fundi sínum með kon­ungi og utan­rík­is­ráð­herra Spánar var stofnun sendi­ráðs á Spáni fagnað. Rætt var um leiðir til að efla og styrkja far­sæl tengsl Íslands og Spánar enn frekar bæði á sviði við­skipta og menn­ingar.

Alþingi ákvað við afgreiðslu fjár­laga fyrir árið 2025 að opnað yrði sendi­ráð í Madrid á Spáni á þessu ári og var til­lagan rök­studd með vísan til þess mikla fjölda Íslend­inga er hefur fasta búsetu á Spáni til lengri og skemmri tíma; auk þess sem þangað liggur stríður straumur ferða­manna árið um kring.

Þá hafa við­skipti á milli Íslands og Spánar verið góð fyrir báðar þjóðir og vöru­út­flutn­ingur frá Íslandi til Spánar hefur auk­ist jafnt og þétt síð­asta ára­tug­inn; sum árin hefur Spánn verið einn stærsti ein­staki vöru­út­flutn­ings­mark­að­ur­inn eftir því hvað mikið af áli hefur farið til Spánar. Þá er Spánn jafn­framt þriðji mik­il­væg­asti útflutn­ings­mark­aður sjáv­ar­af­urða frá Íslandi, með stöðuga 8% hlut­deild í heild­ar­út­flutn­ings­verð­mætum.

Salt­fisk­ur­inn vegur ansi þungt í útflutn­ingi frá Íslandi; útflutn­ingur á frosnum afurðum og í seinni tíð á laxi hefur sömu­leiðis farið vax­andi.

Á und­an­förnum árum hefur verið umtals­verður jákvæður við­skipta­halli í vöru­við­skiptum land­anna en í þjón­ustu­við­skiptum snýst dæmið við - enda er Spánn mjög svo vin­sæll áfanga­staður fyrir íslenska ferða­menn.

Fast­eigna­kaup Íslend­inga á Spáni eru umtals­verð og íslensk stjórn­völd hafa átt í far­sælu sam­starfi við spænsk stjórn­völd á sviði utan­ríkis- og örygg­is­mála; spænski flug­her­inn sinnti nýverið loft­rým­is­gæslu á vegum Atl­ants­hafs­banda­lags­ins á Íslandi.

Svo er ljóst að Spánn hefur skipað sér í fremstu röð þeirra þjóða sem for­dæma harð­lega hern­að­ar­að­gerðir Ísraels á Gaza; hafa beitt sér fyrir aðgerðum til að setja auk­inn þrýst­ing á Ísrael, meðal ann­ars á vett­vangi Evr­ópu­sam­bands­ins.

Það er mik­ill sam­hljómur með stefnu íslenskra og spænskra stjórn­valda að því varðar mann­rétt­inda­vernd, lofts­lags­mál og þró­un­ar­sam­vinnu.

Ötullega hefur verið unnið að opnun sendi­ráðs­ins að und­an­förnu og sendi­herra sem og starfs­lið sendi­ráðs­ins er þegar tekið til starfa; sökum end­ur­bóta á skrif­stofu­hús­næði sendi­ráðs­ins getur skrif­stofan þó ekki opnað fyrr en seinna í haust og nánar verður til­kynnt um það síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi