Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fyrirtækjaráðgjafinn sem flaug að sólinni

Einar Örn Ólafsson, for­stjóri Play, varð ríkur af við­skiptum sem þóttu í meira lagi vafasöm.

Fyrirtækjaráðgjafinn sem flaug að sólinni
Einar Örn Ólafsson Vinur Bjarna Bendikts­sonar fór úr því að vera fyr­ir­tækja­ráð­gjafi yfir í að auðg­aðst á við­skiptum sem voru rann­sökuð af sér­stökum sak­sókn­ara. Mynd: Play Air

Einar Örn Ólafsson, frá­far­andi for­stjóri flug­fé­lags­ins Play, er einn mest umtal­aði mað­ur­inn á Íslandi í dag. Ástæðan er ein­föld: Gjald­þrot Play Air, sem hann stýrði, var til­kynnt í vik­unni með gríð­ar­legum áhrifum á fjölda flug­far­þega og fjár­festa. En þetta er ekki í fyrsta skipti sem Einar Örn hefur kom­ist í frétt­irnar vegna umdeildra við­skipta og vand­ræða­legra við­skipta­hátta.

Einar Örn hefur víð­tæka reynslu úr atvinnu­líf­inu, bæði sem fjár­festir og stjórn­andi. Hann gegnir nú emb­ætti stjórn­ar­for­manns Terra hf. og hefur áður verið for­stjóri Fjarð­ar­lax og Skelj­ungs. Þá hefur hann einnig starfað á fjár­mála­mark­aði. Einar Örn lauk MBA-námi frá NYU Stern School of Business árið 2003 og er með B.Sc.-gráðu í iðn­að­ar­verk­fræði frá Háskóla Íslands.

Vinur Bjarna Ben

Nafn fyr­ir­tækja­ráð­gjafans Einars Arnar dúkkar upp oftar en einu sinni þegar kemur að umtöl­uðum við­skiptum á 21. öld­inni. Fyrst ber að nefna að Einar Örn kom sem fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­ing­ar­banka­sviðs Glitnis fyrir í atburða­rás sem teng­ist falli Glitnis banka. Einar Örn er vinur Bjarna Bene­dikts­sonar, fyrr­ver­andi for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, til margra ára og átti í sam­skiptum við hann þegar Bjarni var bæði stjórn­mála­maður og áhættu­fjár­festir í aðdrag­anda efna­hags­hruns­ins. Einar Örn miðl­aði sam­tali sínu við Bjarna Bene­dikts­son um aðkomu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins að atburða­rásinni til banka­stjóra Glitnis þann 6. októ­ber 2008, og var þannig hlekkur í keðju á milli stjórn­mála og við­skipta. „Bjarni Ben segir að … fme séu á skrilljón að vinna í þessu núna,“ skrif­aði Einar Örn í tölvu­pósti til aðstoð­ar­manns banka­stjór­ans. Með þeim hætti fengu Glitn­is­menn vit­neskju um störf Fjár­mála­eft­ir­lits­ins innan úr rík­is­stjórn­ar­flokknum.

Bjarni Bene­dikts­sonÞing­mað­ur­inn og síðar ráð­herr­ann fékk dyggan stuðn­ing frá Einari Erni og miðl­aði til hans upp­lýs­ingum í banka­hrun­inu.

Eins og fjallað var um í Stund­inni árið 2019, áður en lagt var lög­bann á umfjöllun upp úr Glitn­is­skjöl­unum svoköll­uðu, náðu Bjarni Bene­dikts­son og fjöl­skyldu­með­limir hans ítrekað að forða fé undan hruni bank­anna, sam­hliða því að Bjarni hafði aðgengi að upp­lýs­ingum bæði sem stjórn­mála­maður á Alþingi og sem fjár­festir. Samband Einars Arnar og Bjarna risti svo djúpt að stuðn­ings­manna­fé­lag Bjarna fyrir þing­kosn­ingar 2007 var skráð á heim­ili Einars Arnar í Vesturbæ Reykja­víkur.

Skeljungsfléttan í fréttum

Eftir að hafa verið eins konar auka­leik­ari í stórri atburða­rás í hrun­inu varð Einar Örn í vax­andi mæli „player“ í við­skiptum. Leiðin sem hann fór í að hagn­ast hefur ekki verið óum­deild eða órann­sökuð.

Árið 2018 var Skelj­ungs­málið svo­kall­aða í í hámæli, en Einar Örn hafði þar um tíma stöðu sak­born­ings vegna rann­sóknar á við­skiptum tengdum kaupum í Skelj­ungi og fær­eyska olíu­fé­lag­inu P/F Magni.

Málið var kært af Íslands­banka árið 2016 og var í kjöl­farið til rann­sóknar hjá sér­stökum sak­sókn­ara vegna gruns um umboðs­svik, meint skila­svik, mög­u­­leg mút­u­brot og mög­u­­legt brot á lögum um pen­inga­þvætti, tengd söl­unni á olíu­fé­lag­inu Skelj­ungi og tengdum félögum árin 2008 til 2013.

Einar Örn Ólafsson hafði þá starfað í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Glitnis, ásamt Höllu Sigrúnu Hjart­ar­dóttur og Kára Þór Guð­jóns­syni, sem einnig fengu síðar stöðu sak­born­inga í mál­inu. Verkefni fyr­ir­tækja­ráð­gjaf­ar­innar var meðal ann­ars að selja fyr­ir­tæki, þar á meðal olíu­fé­lagið Skeljung.

Í stuttu máli atvik­að­ist málið þannig að nokkrum árum eftir að þau komu að sölu Skelj­ungs í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Glitnis kom í ljós að þau voru orðin eig­endur og höfðu hagn­ast um 800 millj­ónir króna hvert við sölu Skelj­ungs til líf­eyr­is­sjóða.

Eign­ar­hald þeirra á þeim fyr­ir­tækjum, Skelj­ungi og P/F Magni, sem þau höfðu komið að sölu á þegar þau störf­uðu í Íslands­banka á árunum 2008 og 2009 hafði ekki verið opin­bert og það var í raun­inni ekki vitað að þau hefðu eign­ast eitt­hvað í umræddum fyr­ir­tækjum fyrr en í októ­ber 2014 þegar Morg­un­blaðið greindi frá því að þau Einar Örn, Halla Sigrún og Kári Þór hefðu hagn­ast um þessar háu upp­hæðir, eftir að eign­ar­halds­fé­lag þeirra eign­að­ist hluta­bréf í móð­ur­fé­lagi P/F Magns, Heddu, fyrir aðeins 24 millj­ónir króna - og seldu hluta­bréfin svo með um 800 millj­óna króna hagn­aði.

Ráðinn forstjóri félags sem hann kom að sölu á

Salan á Skelj­ungi til þröngs hóp fjár­festa hafði þótt grun­sam­leg, bæði vegna þess að ein­ungis var seldur rétt tæpur meiri­hluti, sem skildi eftir áhrifa­lausan minni­hluta í höndum bank­ans, og svo vegna þess að fyr­ir­tækið þótti lágt verð­lagt, ásamt því að kaup­endur virt­ust fá tæki­færi til að greiða kaup­virðið að hluta með eignum þess.

Í lok maí 2009 var Ein­ar, sem séð hafði um söl­una á meiri­hluta í Skelj­ungi fyrir hönd bank­ans, ráð­inn for­stjóri félags­ins af fólk­inu sem keyptu. Tveir full­trúar Íslands­banka í stjórn Skelj­ungs greiddu ekki atkvæði með ráðn­ing­unni.

Rann­sóknin stóð í nokkur ár og sum­arið 2018 dró til tíð­inda þegar farið var í hús­leitir og tvö þeirra sem tengd­ust mál­inu voru hand­tekin, þó sleppt sam­dæg­urs. Auk þeirra fengu fleiri rétt­ar­stöðu grun­aðra, þar á meðal téður Einar Örn Ólafsson, sem á þessum tíma var orð­inn for­stjóri Skelj­ungs.

Þrátt fyrir ásak­anir og langa rann­sókn taldi hér­aðs­sak­sókn­ari ekki til­efni til ákæru og lét málið niður falla árið 2023. Með því lauk margra ára réttaró­vissu um við­skiptin sem höfðu um ára­bil verið í kast­ljósi fjöl­miðla.

Græddu á laxeldinu

Einar Örn hagn­að­ist einnig veru­lega á sölu á hluta­bréfum í íslensku lax­eldi og var einn af þremur fjár­festum sem fyrst græddi á slíkum við­skiptum hér á landi. Þau Einar Örn, Halla Sigrún Hjart­ar­dóttir og Kári Þór Guð­jóns­son keyptu hluta­bréfin í gegnum félagið Fiski­sund árið 2013. Árið 2016 seldu þau fyr­ir­tækið Fjarða­lax á Vest­fjörðum til Arnarlax og fengu greitt fyrir í reiðufé og með hluta­bréfum í hinu sam­ein­aða félagi. Árið 2019 seldu þau síðan hluta­bréfin í fyr­ir­tæk­inu. Þegar allt var talið fékk Fiski­sund um þrjá millj­arða króna fyrir hluta­bréfin sem það seldi.

Þar var því á ferð­inni að hluta sama teymið og í Skelj­ungs­flétt­unni. Halla Sigrún hafði áður komið að til­raunum til að selja Fjarð­ar­lax fyrir hönd Straums og Kári Þór sem ráð­gjafi eig­enda Fjarð­ar­lax. Þau end­uðu á að kaupa það sjálf í góðum „díl“, sem fyrr segir, og hagn­ast ævin­týra­lega. Kaupin voru að mestu fjár­mögnuð með selj­enda­láni, en lánið var 8 millj­ónir doll­ara og kaup­verðið yfir 10 millj­ónir doll­ara.

Hugs­an­lega hefur ekki skemmt fyrir að vinur Einars Arnar, Bjarni Bene­dikts­son, var fjár­mála­ráð­herra á þeim tíma sem lyk­ilá­kvarð­anir voru teknar um rekstr­ar­um­hverfi lax­eldis á Íslandi.

Bjarni Bene­dikts­son skip­aði áður­nefnda Höllu Sigrúnu Hjart­ar­dóttur sem for­mann stjórnar Fjár­mála­eft­ir­lits­ins árið 2013, eða um það leyti sem hún hagn­að­ist með þeim hætti að þótti til­efni til rann­sóknar, sem síðar var felld niður.

Gjaldþrot Play

Saga lággjalda­flug­fé­lags­ins Play er stutt og nokkuð storma­söm en það voru tveir stjórn­ar­menn hins fallna lággjalda­flug­fé­lags­ins WoW-air, þeir Arnar Már Magn­ús­son og Sveinn Ingi Stein­þórs­son, sem árið 2019 til­kynntu um að nýtt flug­fé­lag myndi líta dags­ins ljós en fyrst átti það að heita WAB (We Are Back) og átti að hefja flug árið 2020. Í nóv­em­ber sama ár hafði félagið ekki ennþá fengið flug­rekstr­ar­leyfi en sagði í til­kynn­ingu að það hyggð­ist hefja flug á öðrum árs­fjórð­ungi áriið 2021.

Upp­haf­lega áætl­aði félagið að það hefði 14 áfanga­staði í Banda­ríkj­unum og Evrópu en Play hóf að selja fyrstu flug­mið­ana í maí 2021. Þá vakti það nei­kvæða athygli að kjara­samn­ingar félags­ins sýndu að laun starfs­fólks þar væri undir lág­marks­launum á Íslandi en ASÍ hvatti af því til­efni til snið­göngu á flug­fé­lag­inu.

Birgir Örn Jónsson var ráð­inn fram­kvæmd­ar­stjóri Play í apríl 2021 og gengdi því starfi til árs­ins 2024 en þá tók Einar Örn, sem þá var stjórn­ar­for­maður félags­ins sem og einn aðal­eig­and­inn. Af því til­efni skrif­aði Birgir Örn eft­ir­far­andi kveðju­orð:

„Það hefur verið ævin­týri lík­ast að taka þátt í upp­bygg­ingu Play. Á til­tölu­lega skömmum tíma er orðið til öfl­ugt íslenskt lággjalda­flug­fé­lag með fram­úr­skar­andi vöru og þjón­ustu og bjarta fram­tíð. Virk sam­keppni í flugi sem skilar sér í lægri far­gjöldum, fjöl­breyttum áfanga­stöðum og verð­mætum erlendum gestum er sér­stak­lega mik­il­væg fyrir eyju eins og okkar. Slík sam­keppni varðar hags­muni allra Íslend­inga.

Ég geng þess vegna ákaf­lega stoltur frá borði. Play hefur nú slitið barns­skónum og er orðið þroskað flug­fé­lag. Ég hef átt gott og náið sam­band við Einar og félagið er í góðum höndum hjá honum. Ég hlakka til að sjá félagið blómstra undir hans for­ystu. Ég vil þakka við­skipta­vinum og sam­starfs­að­ilum fyrir einkar ánægju­legt sam­starf. Ég mun svo kveðja stór­kost­legan hóp starfs­manna á næstu dögum.”

Fullur tilhlökkunar

Einar Örn var fullur til­hlökk­unar þegar hann tók við af Birgi í fyrra og sagði félagið standa á tíma­mótum.

„Ég er fullur til­hlökk­unar að takast á við þetta verk­efni. Eftir kröft­ugt upp­bygg­ing­ar­starf síð­ustu ára undir öfl­ugri for­ystu Birgis er félagið á ákveðnum tíma­mótum. Sem stærsti ein­staki hlut­hafi félags­ins vil ég fylgja fjár­fest­ingu minni eftir,“ sagði Einar Örn.

„Ég þekki vel til starf­semi og starfs­manna Play og sé mörg tæki­færi og spenn­andi við­fangs­efni framundan í rekstr­inum. Ég er þakk­látur stjórn Play fyrir traustið og vil líka þakka Birgi sér­stak­lega fyrir fram­lag hans til Play og ánægju­legt og gott sam­starf.”

Þegar þarna var komið við sögu var farið að hrikta í stoðum flug­fé­lags­ins en þá hafði komið í ljós mikið tap á rekstri félags­ins. Einar var þó hinn kok­hraustasti þegar frétta­maður spurði hann hversu lengi félagið héldi út tap­rekstr­inum en for­stjór­inn sagði að Play yrði alltaf til.

Einar Örn greip til ýmissa úrræða til að snúa Play frá falli. Þannig hóf félagið fljót­lega eftir komu hans að birta kyn­ferð­is­legar aug­lýs­ingar af brjóstum kvenna og bringum karl­manna.

Eftir gjald­þrot Play á Íslandi stendur einmitt eftir sú spurn­ing, hvort félagið haldi áfram á Möltu með þær eignir sem hald­ast eftir, á meðan líf­eyr­is­sjóðir kveðja sína fjár­fest­ingu.

En fyrir Einar Örn virð­ist harða lend­ingin vera síður en svo við­búin. Hann flaug hátt helg­ina fyrir gjald­þrotið og dvaldi í lúx­us­borg­inni Marbella á Spáni, þar sem hann á hús­næði. Smartlandið greindi frá því að Einar Örn hefði flýtt sér heim á sunnu­dag­inn, ásamt Sigurði Kára Krist­jáns­syni, stjórn­ar­for­manni Play Air og fyrr­ver­andi þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem einnig dvaldi í spænsku lúx­us­borg­inni frægu. Ekki fylgdi sög­unni hvort þeir hefðu flogið heim með Play, en þeir veislu­gestir sem urðu eftir í húsi Einars á Marbella gerðu það varla því flug­fé­lagið var hætt starf­semi dag­inn eftir.

Þótt Einar Örn hafi tapað á falli Play Air er hann varla á flæðiskeri staddur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Peningar

Peningar

Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

Sagður skulda milljónir
  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega

  • Peningar

    Stór­meist­ar­inn Vignir Vatnar stofnar Stór­meist­ara