Skákmaðurinn Vignir Vatnar Stefánsson hefur stofnað einkahlutafélagið Stórmeistara ehf. Félagið var skráð í október samkvæmt Lögbirtingablaðinu.
Vignir Vatnar er stórmeistari í skák og er tilgangur hins nýja félags nátengdur skákinni. Samkvæmt skráningu félagsins verður starfsemin meðal annars fólgin í skákkennslu, skákviðburðum og námskeiðahaldi auk auglýsingaþjónustu.
Vignir Vatnar er eini stofnandi félagsins og jafnframt stjórnarmaður þess, framkvæmdastjóri og prókúruhafi. Stefán Már Pétursson er skráður varamaður í stjórn en Örn Leó Jóhannsson er skoðunarmaður félagsins.
















Athugasemdir