Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stolt og lífsreynd eftir að hafa tekist á við geðhvörf

„Mig grun­aði að mitt innra líf væri öðru­vísi en vina minna,“ segir Fanney Sig­urð­ar­dóttir, sem sagði engum frá þegar hún fór að finna fyrir þung­lynd­inu sem barn.

Stolt og lífsreynd eftir að hafa tekist á við geðhvörf
Fanney Sig­urð­ar­dóttir Hefur ákveðið að opna sig um geð­rask­anir og deila reynslu sinni öðrum til hjálpar. Mynd: Víkingur

Fanney Sig­urð­ar­dóttir er ung kona sem níu ára gömul fór að finna fyrir til­finn­ingum sem hún skildi ekki alveg en sagði engum frá. Næstu ár upp­lifði hún stundum þung­lyndi eða mikla gleði og fram­taks­semi en það var ekki fyrr en hún fór í geð­rof rúm­lega tví­tug sem hún var greind með geð­hvörf 1 (bipolar 1). Eftir grein­ingu fyrir fjórtán árum leit­aði Fanney meðal ann­ars að við­tölum við fólk með sama sjúk­dóm en fann ekki. Hún upp­lifði sig að ein­hverju leyti eina. Hún segir að sam­fé­lagið hafi opn­ast meira síð­ustu ár og að fleiri treysti sér til að tjá sig. Fanney hefur verið opin­ská með geð­hvörfin og gerir það til að fræða og von­andi koma í veg fyrir for­dóma. Hún vonar að reynsla sín geti hjálpað öðrum í sömu sporum.

Reynslan að baki

Ung, glæsi­leg, góð­leg og brosmild kona situr við borð á kaffi­húsi í 105 Reykja­vík sem hún segir að séu æsku­slóðir sínar. Við ætlum að tala um reynslu hennar af geð­hvörfum.

Geðhvörf ein­kenn­ast af geð­sveiflum, geð­hæð­ar­tíma­bilum eða þung­lynd­is­lotum. Sveifl­ast þá líðan við­kom­andi sem getur haft áhrif á lífið. Aðallega er talað um geð­hvörf 1 eða geð­hvörf 2 en til eru fleiri gerðir. Erfðir og umhverfi geta haft áhrif.

Fanney Sig­urð­ar­dóttir fór fyrst í geð­rof 22 ára og var þá lögð inn á geð­deild. Geðrof er ástand þar sem tengsl ein­stak­lings við raun­veru­leik­ann rofnar og getur birt­ing­ar­mynd þess til dæmis verið rang­hug­myndir og/eða ofskynj­anir.

Fanney hefur í gegnum ára­tug­ina upp­lifað þung­lyndi og hýpóman­íur eða oflæti. Í hýpómaníu eru væg­ari upp­sveiflur en í maníu. Hún hefur einu sinni farið í maníu en það er skil­yrði fyrir grein­ingu á geð­hvörfum 1.

Sagði engum frá

„Ég fékk mjög styrkj­andi og hvetj­andi upp­eldi, fékk mikla athygli, kær­leika og stuðn­ing sem barn frá for­eldrum mínum og við fjöl­skyldan gerðum margt saman. Mér var sagt að ég gæti gert allt sem ég vildi taka mér fyrir hendur og studdu for­eldrar mínir mig í því,“ segir Fanney sem hafði gaman af að bæði leika og syngja.

„Ég vildi verða leik­kona og á tíma­bili vildi ég verða prestur.“

„Mig grun­aði að mitt innra líf væri öðru­vísi en vina minna.“

Fanney var níu ára þegar hún fór að finna fyrir til­finn­ingum sem hún þekkti ekki. Hún talar um þung­lynd­is­lotu.

„Ég fann að mér leið öðru­vísi. Ég fann fyrir dep­urð og von­leysi og eins og ég væri minna virði en aðrir. Ég ræddi þetta ekki við neinn. Ég vissi ekk­ert hvað var að ger­ast og vildi ekki að neinn hefði áhyggjur. Ég not­aði grímu til að fela ástand sem ég hafði ekki nafn á en gat mér seinna til um að væri þung­lyndi. Ég er ekki ein um að hafa verið með þykka grímu en vinur minn sem er líka með geð­hvörf 1 segir einmitt sömu sögu. Það vissi heldur eng­inn neitt í hans til­felli.

Mér hefur verið sagt að það sé algengt að börn nái að fela geð­sjúk­dóma sína. Í ein­hverjum til­fellum er það kallað „smil­ing depression“ eða „high functioning anx­iety“.

Per­sónu­leiki minn er heldur ekki langt frá hýpómaníu eins og geð­læknir á geð­deild benti á þegar verið var að greina mig. Hýpóman­ían var líka mun mild­ari þegar ég var barn miðað við hvernig hún þró­að­ist eftir því sem ég varð eldri. Í raun fór ég ekki að upp­lifa afger­andi hýpómaníu fyrr en um tví­tugt. Ég faldi þung­lyndið meðal ann­ars til að, eins og ég segi, valda fólk­inu mínu ekki áhyggjum. Mér fannst eins og ég gæti átt við þetta sjálf og ég í raun hélt bolt­unum á lofti, mér gekk vel í skóla, stund­aði áhuga­mál og tók þátt í félags­lífi en það tók samt alveg á. Í barn­æsku vildi ég líka passa inn, mig grun­aði að mitt innra líf væri öðru­vísi en vina minna og faldi það því. Svo vand­ist líka þetta innra ástand mitt og ég var ekk­ert að hugsa um að vera að fela það, það kom til mín nátt­úru­lega og það var í raun orðið ekk­ert mál,“ segir hún.

„Það er einmitt málið með geð­sjúk­dóma, þeir sjást sjaldn­ast utan á fólki.“

Fanney talar um grímuna, sem hún getur fellt þegar hún er með sínum nán­ustu.

„Varðandi grímuna í dag þá er ég ekki alltaf með hana í þung­lynd­inu. Aðeins í aðstæðum, auð­vitað eru und­an­tekn­ingar, sem mér finnst kalla á hana eins og þegar ég hitti kunn­ingja og ókunn­uga út í búð eða í form­legum aðstæðum sem og í vinnu. Ég er yfir­leitt mjög hrá og grímu­laus í kringum mitt nán­asta fólk þó að ég eigi það stundum til að fela þung­lyndið til að vera ekki þessi veika. Ég verð stundum þreytt á því að vera þessi veika þó að ég viti að fólkið mitt líti alls ekki á mig þannig, að það sé ein­göngu það sem ég er.

Þegar fólk kemst að því að ég sé í end­ur­hæf­ingu og segir mér að ég líti ekki út fyrir að vera með geð­sjúk­dóm held ég að það meini að ég líti ekki út fyrir að líða illa en það er einmitt málið með geð­sjúk­dóma, þeir sjást sjaldn­ast utan á fólki.“

Geðrof og blandað ástand

Árin liðu og Fanney brosti þrátt fyrir van­líðan í nið­ur­sveiflum. Hún fór þetta á hnef­anum.

Sumarið 2011, þá 22 ára, fór Fanney í maníu. Hún var þá búin með tvö ár í við­skipta­fræði, var í félags­líf­inu, mik­illi lík­ams­rækt og vinnu. Álagið var mikið, of mikið, og það hefur lík­leg­ast verið kveikjan að man­í­unni. Hún vill greina á milli kveikju og orsakar. Hún segir að orsök geti verið, sem dæmi, erfðir og/eða umhverfi en kveikja eitt­hvað sem ýtir undir eins og áður­nefnt álag.

Í man­í­unni hafði hún á til­finn­ing­unni að hún gæti bjargað heim­inum, að hún væri útvalin af Guði. Henni fannst hún fá frá honum skila­boð og þá meðal ann­ars í gegnum útvarpið. Hún var líka mjög orku­mikil. „Ég var með svo mikla orku sem mér fannst ég þurfa að ná úr mér að ég byrj­aði að hlaupa og end­aði á hálf­mara­þoni einn dag­inn. Sama dag þreif ég allt húsið, skrif­aði pistla, tók myndir af við­burði fyrir fjöl­miðil, söng mikið og tók það upp.“

Hún svaf nán­ast ekki neitt. „Þetta var allt mjög skemmti­legt og ég fann fyrir alsælu. Ég var ekki mikið að hitta fólkið mitt á man­íu­tím­anum. Ég var svo upp­tekin.“ Á einum tíma­punkti það sumar svaf hún ekki í fjóra til fimm sól­ar­hringa.

„Á end­anum, í nóv­em­ber sama ár, var ég komin í geð­rof. Ég var lögð inn í blönd­uðu ástandi sem er mjög flókin blanda maníu og þung­lyndis. Ég var með mjög mikla orku sem ég vissi ekki hvað ég ætti að gera við, gekk fram og til baka, hvat­vís, eirð­ar­laus og út um allt. Á sama tíma fann ég fyrir mik­illi dep­urð, sorg, örvænt­ingu og grét mikið.“

Innlagnardagur

Fanney heldur áfram að rifja upp þennan tíma.

„Það var árla morg­uns. Ég hafði ekk­ert sofið um nótt­ina. Ef ég lok­aði aug­unum sá ég ekk­ert nema eld og brenni­stein og reyndi því að halda þeim opnum eins og ég gat. Ég sá djöf­ul­inn og var í raun, að mér fannst, bók­staf­lega stödd í hel­víti. Ég sá enga útgöngu­leið aðra en að skaða mig til að kom­ast út úr þessum aðstæðum. Ég er mjög náin mömmu minni og hringdi í hana af því að mér fannst ég þurfa að láta hana vita að ég væri mögu­lega að kveðja. Mamma brun­aði heim til mín og svo fórum við upp á geð­deild. Þetta var botn­inn,“ segir hún.

„Ég sá djöf­ul­inn og var í raun, að mér fannst, bók­staf­lega stödd í hel­víti“

Upp­lifunin lam­aði hana úr ótta.

„Þetta var gíf­ur­leg hræðsla. Ég hef aldrei verið jafn­hrædd á ævinni. Þetta var lam­andi ótti. Ég bað til Guðs en Guð og djöf­ull­inn hafa oft tengst veik­indum mínum.

Guð hefur verið mitt hald­reipi í myrkr­inu. Ég er með minn eigin guð sem ég hef skapað mitt per­sónu­lega sam­band við og teng­ist ekki endi­lega að fullu krist­inni trú þó að ég fari í messur. Ég trúi ekki að það sé ein­ungis einn guð fyrir allan heim­inn þó það sé einn fyrir mig. Guð hefur verið hjá mér frá því ég var krakki og hefur verið mitt hald­reipi í veik­ind­unum, guð­inn sem ég trúi á er fyrir mig kær­leikur og öryggi.“

Veran á geðdeild

Fanney vildi ekki leggj­ast inn á geð­deild en henni fannst hún vera til­neydd af því að hún var svo hrædd.

„Ég vildi vera lokuð inni svo djöf­ull­inn næði mér ekki. Það var því ákveð­inn léttir að vera á bak við þessa stóru þykku stál­hurð sem eng­inn komst í gegnum nema með mínu leyfi. En svo leið mér ekk­ert sér­stak­lega vel þarna inni og bað lækn­inn minn á hverjum ein­asta degi um að fá að fara heim.

Mér leið auð­vitað ekk­ert vel fyrir en geð­deild er staður sem ég reyni eftir mínu fremsta megni að forð­ast bara út af upp­lifun minni fyrir 14 árum. Ég borð­aði ekk­ert og svaf ekk­ert,“ lýsir hún og heldur áfram.

„Fyrri her­berg­is­fé­lagi minn hélt fyrir mér vöku fyrstu vik­una. Síðan var iðu­lega verið að koma inn um miðja nótt og taka blóð­þrýsting sem ég skil. Loksins þegar ég náði að sofna undir morgun var sjúkra­liði sem tók að sér að kveikja ljósin inni í her­bergi klukkan átta á morgn­ana og reka mig á fætur með látum og köllum. Svo mátti ég ekki einu sinni leggja mig á dag­inn. Ég var svo þreytt og líka að koma úr mjög miklu svefn­leysi fyrir. Þegar ég loks­ins kom heim af geð­deild svaf ég 15-17 tíma á dag í ein­hverja daga.“

Fanney seg­ist hafa fengið heila­hrist­ing á geð­deild­inni.

„Ég var með mikla þyngd­ar­komp­lexa á þessum árum um tví­tugt og fannst því erfitt að vera vigtuð inni í mat­sal fyrir framan alla. Þegar verið var að prófa lyf fyrir mig fékk ég stundum yfir­lið og skall í gólfið. Eitt sinn fékk ég yfir­lið og skall­aði postu­líns­vask svo ég rot­að­ist í stutta stund. Starfs­maður kom að mér og aðstoð­aði mig upp. Mér leið illa eftir höggið og ætl­aði að leggj­ast á rúmið en þá var auð­vitað mættur sjúkra­lið­inn á morg­un­vakt­inni og rak mig út úr her­berg­inu.

Enginn pældi neitt í mér í ein­hvern tíma að mér finnst en þegar starfs­maður gaf sig á tal við mig þar sem búið var að koma mér fyrir í stól sá hann að ég gat ekki tjáð mig en ég bull­aði og var þvoglu­mælt. Það var hringt á sjúkra­bíl og farið með mig í Fossvog en um var að ræða veru­legan heila­hrist­ing og í fram­hald­inu fór ég í mynda­töku og rann­sókn.“

Fanney var á geð­deild í hálfan mánuð eða frá um miðjan nóv­em­ber. Hún fékk að fara fyrr heim með því skil­yrði að hún yrði hjá for­eldrum sínum og að þau myndu líta til með henni og vera í dag­legu sím­sam­bandi við geð­lækn­inn í ein­hvern tíma.

„Ég var hjá for­eldrum mínum í nokkra mán­uði. Þessi til­tekni læknir var mér algjör blessun þegar ég fékk aðstoð hans uppi á geð­deild og svo seinna í eft­ir­fylgni upp á göngu­deild í mörg ár þar til hann féll frá.“

Árin á eftir ein­kennd­ust af sveiflum en þrátt fyrir þær náði Fanney að klára háskóla­nám og mæta í vinnu.

Kvíðinn oft með í för

Laumu­far­þegi í lífi Fann­eyjar, sem hún þarf sér­stak­lega að gefa gaum, er kvíð­inn.

„Af þessu öllu sem ég hef upp­lifað í gegnum árin, geð­rof, eins og para­noju og rang­hug­myndir, þung­lyndi og maníu finnst mér verst að eiga við kvíð­ann. Hann er svo lam­andi. Kvíðinn er ekki alltaf til staðar en oft. Kannski sér­stak­lega síð­ustu þrjú til fjögur ár og mögu­lega að hluta til vegna auka­verk­ana lyfja. Ég vinn á honum með ýmsum leiðum svo sem með hug­leiðslu, yoga nidra, öndun, göngum, vera í nátt­úr­unni, heyra í ein­hverjum nánum, jarð­tengja mig og flýja ekki aðstæður sem valda mér kvíða. Ekki nema ég sé í ofsa­kvíða sem ger­ist nú ekki oft.

Það er víst mjög algengt að fólk með geð­hvörf sé með kvíða. Fólk með geð­hvörf getur verið mjög næmt á umhverfi sitt. Ég var að læra í geð­hvarfa­fræðslu á Kleppi að kvíði sé til dæmis almennt lengur í lík­ama þeirra sem eru með geð­hvörf.“

Fanney lýsir áhrif­unum hvers­dags­lega. „Tauga­kerfið mitt núna er rosa­lega spennt. Það kannski sést ekki. Þess vegna er ég búin að halda utan um teboll­ann allan tím­ann, til að jarð­tengja mig og halda mig í núinu,“ segir Fanney og hlær. Við borðið á kaffi­hús­inu situr að því er virð­ist afslöppuð kona.

Skellurinn var lærdómur

Það að leggj­ast inn á geð­deild var skellur. En þó nauð­syn­legur skellur þar sem Fanney þurfti hjálp.

„Það var áfall fyrir mig að vera lögð inn á geð­deild á sama tíma og það var ákveð­inn léttir að fá grein­ingu eða útskýringu. Áfallið staf­aði meðal ann­ars af því að ég hafði í raun verið með for­dóma gagn­vart þung­lyndi. Þannig að það var kald­hæðn­is­legt að ég skyldi lenda inni á geð­deild, að hluta til vegna þung­lyndis. Ég var rass­skellt af líf­inu. Ég þurfti að end­ur­skoða minn gang og mitt við­horf. Við það að fara inn á geð­deild varð til ákveðin auðmýkt. Í man­í­unni fékk ég mik­il­mennsku­brjál­æði og fannst ég á tímum vera betri en aðrir. Ég hef lært auðmýkt og ég er alltaf að læra meira og meira um hana, að miklu leyti í gegnum geð­hvörfin.

Síðan hugsa ég að ég hafi öðl­ast meiri þraut­seigju út frá geð­hvör­f­unum, að gef­ast ekki upp. Ég búta verk­efni mikið niður, tek eitt skref í einu. Ég hef líka öðl­ast meiri sam­kennd, dýpt og skiln­ing hvað aðra varðar.“

Hvers vegna for­dómar?

„Ég var bara ung og vissi ekki betur og eins og við vitum eru for­dómar fáfræði. Umræða um geð­sjúk­dóma var ekki orðin eins opin og hún er núna. Það er líka ástæð þess að ég ákvað að opna mig um geð­hvörfin árið 2015, fjórum árum eftir að ég greind­ist því ég var ekki að sjá neinn tala um geð­hvörf árið 2011.

Ég var að reyna að leita upplýsinga, að við­tölum við fólk með geð­hvörf en ég fann ekki neitt íslenskt og lítið sem ekk­ert erlent. Það sem ég fann var heim­ild­ar­mynd á YouTube með Stephen Fry; The Secret Life of the Manic Depressive. Ég hugs­aði sem sagt með mér stuttu eftir grein­ingu að einn dag­inn myndi ég opna mig um geð­hvörfin mín til þess að tala til ein­hvers sem er eins og ég var, frekar týnd og ein.“

Hún talar líka um skömm. „Þetta pass­aði ekki við ímynd­ina mína. Ég var mjög egódrifin og ímynd­ar­drifin á þessum árum þannig að þetta pass­aði ekki inn í kass­ann. Ég þurfti að hafa allt á ákveð­inn hátt og þurfti að hafa ákveðna ásýnd, að ég væri tipptopp og að það væri ekk­ert að hjá mér.“

Í endurhæfingu

Fanney fór í nið­ur­sveiflu rétt áður en Covid-heims­far­ald­ur­inn skall á. Og þegar hún gat ekki ráðið við hana lengur fór hún í end­ur­hæf­ingu tveimur árum seinna eða fyrir þremur árum.

„Ég er í raun núna að vinna úr eft­ir­köstum veik­ind­anna og von­ast til að kom­ast á vinnu­mark­að­inn sem fyrst. Það var mjög erfitt fyrir mig að hætta að vinna.

Ég vissi ekki að það væri til eitt­hvað á vegum rík­is­ins sem heitir end­ur­hæf­ing. Ég var mjög treg til og ekki nógu auð­mjúk til að biðja um fjár­hags­styrk svo ég var ekk­ert að kynna mér þessi mál. Ég vann bara mjög mikið þegar ég gat og lifði svo á sparn­að­inum þegar ég gat ekki unnið en ég var sjálf­stætt starf­andi. Síðan var bara ekk­ert eftir á tank­inum; ég gat ekki unnið fyrir mér vegna veik­ind­anna.“

Fanney hefur ekki fengið neinar sveiflur í rúmt ár. „Ég hef verið í end­ur­hæf­ingu á Kleppi í rúm þrjú ár núna með bæði sál­fræð­ing og geð­lækni. Síðan fékk ég að byrja hjá VIRK í sumar. End­ur­hæf­ing á Kleppi er sem sagt lyfja­með­ferð, sál­fræði­með­ferð og almenn fræðsla um geð­hvörf. Það sem ég geri hjá VIRK er mikið til sjálfs­styrk­ing­ar­pró­gramm. Ég er mjög heppin. Ég legg mig fram við að halda mér í góðu standi eins og ég hef ávallt gert, geri öll verk­efni í end­ur­hæf­ingu, sef nóg, næri mig, drekk ekki áfengi, rækta tengsl og fer í göngut­úra, sund og sauna sem dæmi.“

Lær­dóms­ríktFanney seg­ist stolt af því að vera með geð­hvörf. Hún hefur meðal ann­ars lært meiri auð­mýkt.

Stolt af geðhvörfunum

Fanney brosir í gegnum tárin þegar hún er langt niðri. Teið í boll­anum er löngu búið en hún heldur enn fast utan um hann. Hún hefur ýmis­legt lært af þess­ari veg­ferð og seg­ist vera stolt af því að vera með geð­hvörf.

„Ég var spurð að því á sam­fé­lags­miðlum af hverju ég væri stolt af því að vera með geð­hvörf. Ég hef ekki tekið með­vit­aða ákvörðun um að vera stolt, það kemur til mín nátt­úru­lega. Þetta er ekki við­horf sem ég hef valið mér. Ég er bara rosa­lega stolt af mér yfir höfuð. Bipolar eða geð­hvörf eru risa­stór partur af því hver ég er og hefur mótað mig hvað mest. Geð­hvörfin hafa gert mig þrautseig­ari og ef til vill meira skap­andi. Þau hafa kennt mér meiri auðmýkt og margt fleira. Ég skamm­ast mín ekki fyrir geð­sjúk­dóm­inn, eins og ég gerði áður, heldur er ég stolt. Ég er bara stolt af sjálfri mér.“

Fanney, sem býr með kærasta sínum og hund­inum þeirra í sveita­sæl­unni á Suð­ur­landi, hefur oft grátið þegar henni hefur liðið illa. „Ég veit ekki hversu oft ég hef grátið í Krónunni á Selfossi eða fyrir utan versl­un­ina. Ég er svo fegin að fólk þekkir mig ekki. Í eitt skipti stóð ég og grét á miðju gólfi í Krónunni og kærast­inn minn hélt utan um mig. Hann var ekk­ert að kippa sér upp við þetta. Hann er mik­ill klettur.“

Heppin með umhverfið og fólkið

Hún finnur til þakk­lætis.

„Ég hef verið heppin með fólk í kringum mig. Fjöl­skyld­una, vini, fólk í skólaum­hverf­inu og vinnu­um­hverf­inu. Ég á ekki minn­ingu um að hafa upp­lifað for­dóma og ég finn mik­inn stuðn­ing, kær­leika og vel­vild. Ég upp­lifi mig á hverjum degi svo rosa­lega heppna. Stuðn­ings­netið skiptir mig miklu máli og félags­legi þátt­ur­inn gerir mikið fyrir mig.“

Þegar hefur komið fram að Fanney hefur verið í jafn­vægi í rúmt ár. Hún er spurð hvort henni hafi ekki dottið í hug að fara til dæmis í skóla og halda fyr­ir­lestra um reynslu sína.

„Ég hef velt því fyrir mér.“

Út af kaff­hús­inu gengur glæsi­leg, góð­leg og brosmild kona. Brosið nær til augn­anna.

Hún má vera stolt af sjálfri sér.

Hún er að fara heim. Heim í sveit­ina þar sem henni líður betur en í ysnum og þysnum og þar finnur hún ró og jarð­teng­ingu. Hún segir að upp­á­halds­fugla­söng­ur­inn sé þrast­ar­söng­ur­inn og upp­á­halds­blómið fíf­ill.

„Ég er svo mikið fyrir fífla og sól­eyjar sem mega sums staðar ekki vaxa.“

Hún seg­ist aldrei tína blóm og setja í vasa.

„Ég vil bara leyfa þeim að vera í nátt­úr­unni.“

Það sem sumum finnst vera ill­gresi er oft feg­urst blóma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu