Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu

Húsið var reist árið 1913

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu
Eyr­ar­gata 31

Sögu­frægt ein­býl­is­hús við Eyr­ar­götu 31 á Eyr­ar­bakka hefur verið sett á sölu en óskað er eftir til­boði í eign­ina. Húsið, sem ber nafnið Hvoll, var reist árið 1913 og hefur meðal ann­ars gegnt hlut­verki sýslu­manns­bú­staðar og prests­bú­staðar.

Hvoll stendur á stórri sjáv­ar­lóð sem nær að sjó­varn­ar­garð­inum. Um er að ræða 2.290 fer­metra lóð og frá efri hæð húss­ins er útsýni yfir hafið til suð­urs og til fjalla í norðri.

Húsið er á þremur hæðum, kjall­ara, aðal­hæð og risi, og er eitt af fyrstu stein­steyptu hús­unum á svæð­inu. Að utan er það klætt með stand­andi timb­ur­klæðn­ingu.

Við end­ur­bætur á eign­inni hefur verið leit­ast við að varð­veita upp­runa­legt yfir­bragð hennar sam­hliða nútíma­þæg­indum. Upp­runa­leg gólf eru að stórum hluta varð­veitt á fyrstu og annarri hæð og áber­andi burð­ar­bitar setja svip sinn á húsið. Nátt­úruflísar eru í for­stofu og sól­stofu og gólf­hiti í for­stofu og bað­her­bergi á neðri hæð.

Miklar breyt­ingar voru gerðar á Hvoli árið 1986. Þá var meðal ann­ars byggður kvistur til aust­urs, sól­stofu bætt við húsið og um 30 fer­metra svefn­her­bergi útbúið á efri hæð. Úr her­berg­inu er gengið út á suð­ur­svalir með sjáv­ar­út­sýni.

Við húsið er jafn­framt um 75 fer­metra pallur með skjól­veggjum og er hægt að ganga þangað beint úr sól­stof­unni.

Tveir hólar eru á lóð­inni og á annar þeirra sér sér­staka sögu. Hann var um ára­bil nýttur sem kart­öflu­geymsla þegar efri hluti garðs­ins var not­aður undir kart­öflur og aðra ræktun.

Hvoll hefur því staðið á Eyr­ar­bakka í rúma öld og ber enn fjöl­mörg ein­kenni þeirrar sögu sem fylgt hefur hús­inu frá árinu 1913.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Myndir
Fólk

DeLorean-tíma­vél rúll­aði um götur Reykja­víkur

Myndir
Fólk

Selja frið­lýst ein­býli með stór­kost­legu útsýni