Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

DeLorean-tímavél rúllaði um götur Reykjavíkur

Spurning hvort bíll­inn hafi náð hinum nauð­syn­legu 88 mílum á klukku­stund

DeLorean-tímavél rúllaði um götur Reykjavíkur
Marty McFly og Doc Brown voru ekki bílnum

Óvenju­leg sjón blasti við veg­far­endum í miðbæ Reykja­víkur í gær þegar DeLorean-bif­reið, sem hefur verið útbúin þannig að hún lík­ist hinni heims­frægu tíma­vél úr Back to the Future, sást á ferð um götur borg­ar­innar.

Bíllinn vakti mikla athygli enda er DeLorean DMC-12 afar sjald­séður hér á landi. Veg­far­andi náði ljós­mynd af bílnum í mið­borg­inni og mátti á honum sjá ýmsan búnað sem vísar aug­ljós­lega til tíma­vél­ar­innar úr kvik­mynd­unum.

Saga DeLorean á Íslandi nær aftur til árs­ins 1998 þegar DMC-12 af árgerð 1981 var fluttur hingað til lands. Bíllinn var síðar sagður vera sá eini sinnar teg­undar á Íslandi.

Stefán Örn Stef­áns­son eign­að­ist bíl­inn árið 2005 en hann hafði lengi verið mik­ill aðdá­andi Back to the Future. Árið 2021 var greint frá því að DeLorean Stefáns væri kom­inn til sýn­ingar á Sam­gönguminja­safn­inu Ysta­felli í Þing­eyj­ar­sveit.

Ekki hefur tek­ist að stað­festa hvort bíll­inn sem sást í Reykja­vík í gær sé sá sami.

DeLorean með Back to the Future útliti hefur þó áður sést í höf­uð­borg­inni. Sumarið 2024 birti erlendur ferða­maður ljós­mynd á DeLorean-sam­fé­lagi á Reddit eftir að hafa komið auga á slíkan bíl í Reykja­vík. Hann tók sér­stak­lega fram að bíll­inn virt­ist vera búinn breyt­ingum í anda kvik­mynd­anna.

Einn frægasti bíll allra tíma

DeLorean DMC-12 varð heims­frægur þegar hann var not­aður sem tíma­vél í Back to the Future árið 1985. Þar ferð­ast Marty McFly, leik­inn af Michael J. Fox, aftur til árs­ins 1955 í tíma­vél sem vís­inda­mað­ur­inn Dr. Emmett „Doc“ Brown, leik­inn af Christopher Lloyd, smíð­aði úr DeLorean.

Til þess að ferð­ast í gegnum tím­ann þurfti bíll­inn að ná 88 mílna hraða á klukku­stund.

Tvær fram­halds­myndir fylgdu og varð DeLorean eitt þekktasta far­ar­tæki kvik­mynda­sög­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Myndir
Fólk

Selja frið­lýst ein­býli með stór­kost­legu útsýni