Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni

Húsið var reist árið 1985

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni
Litla­bæj­ar­vör 4

Einstakt og frið­lýst ein­býl­is­hús við Litlu­bæj­ar­vör 4 á Álfta­nesi er komið á sölu. Húsið stendur á sjáv­ar­lóð á rólegum stað innst í botn­langa og er sett á 218 millj­ónir króna.

Um er að ræða ein­býl­is­hús á einni hæð sem reist var árið 1985. Eignin stendur á 900 fer­metra eign­ar­lóð á vest­an­verðu Álfta­nesi og þaðan er víð­áttu­mikið útsýni til sjávar og yfir Reykja­nes­fjall­garð­inn.

Það sem gerir húsið sér­stak­lega athygl­is­vert er staða þess í íslenskri bygg­ing­ar­sögu. Litla­bæj­ar­vör 4 var frið­lýst af mennta og menn­ing­ar­mála­ráð­herra árið 2021 og er yngsta frið­lýsta hús lands­ins.

Friðlýst vegna byggingarlistar

Frið­lýs­ingin tekur til ytra borðs húss­ins auk frá­gangs gólfs, lofts og veggja í stofu­rými og miðju­gangi inn­an­dyra. Með frið­lýs­ing­unni hefur því verið lögð áhersla á að varð­veita bæði ytra útlit húss­ins og mik­il­væga þætti upp­runa­legrar inn­an­húss­hönn­unar.

Minja­stofnun Íslands heldur utan um frið­lýst hús og breyt­ingar og við­hald á frið­lýstum hlutum þeirra lúta sér­stökum reglum. Frið­lýstar bygg­ingar eru jafn­framt í for­gangi þegar kemur að styrk­veit­ingum úr húsa­frið­un­ar­sjóði vegna við­halds og end­ur­bóta.

Vakið athygli langt út fyrir landsteinana

Litla­bæj­ar­vör 4 hefur í gegnum tíð­ina vakið tölu­verða athygli meðal þeirra sem láta sig arki­tektúr varða. Um húsið hefur verið fjallað í fjöl­mörgum fag­tíma­ritum, bæði hér á landi og erlendis, og hefur það verið tekið sem dæmi um athygl­is­verða íslenska bygg­ing­ar­list níunda ára­tugar síð­ustu aldar.

Stað­setn­ing eign­ar­innar er ekki síður sér­stök. Húsið stendur á stórri sjáv­ar­lóð þar sem nálægðin við hafið er mikil og útsýnið til Reykja­nes­fjall­garðs­ins áber­andi.

Kaup­verðið end­ur­speglar sér­stöðu eign­ar­innar, en óskað er eftir 218 millj­ónum króna fyrir Litlu­bæj­ar­vör 4. Kaup­and­inn fær þar með ekki aðeins ein­býl­is­hús á eft­ir­sóttum stað við sjó­inn heldur jafn­framt hús sem hefur þegar öðl­ast sér­stakan sess í íslenskri bygg­ing­ar­sögu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Myndir
Fólk

DeLorean-tíma­vél rúll­aði um götur Reykja­víkur