Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Keath Ósk slær í gegn á heimsvísu og segir Ísland hafa mótað sköpunina

Íslenskur kjör­faðir háns kom inn í líf háns þegar hán var tíu ára

Keath Ósk slær í gegn á heimsvísu og segir Ísland hafa mótað sköpunina
Keath Ósk á tón­leikum Mynd: Wikimedia Commons / greenestpotatoes

Fil­ippseyski íslenski tón­list­ar­mað­ur­inn Keath Ósk ræðir upp­vöxt sinn, tengslin við Ísland og óvæntan alþjóð­legan árangur tón­list­ar­verk­efn­is­ins Yaelokre í við­tali við breska tón­list­ar­mið­il­inn NME. Ósk hefur á skömmum tíma byggt upp stóran aðdá­enda­hóp og vin­sælasta lag verk­efn­is­ins hefur verið spilað hund­ruð millj­óna sinnum á Spotify.

Ósk hóf að gefa út tón­list undir nafn­inu Yaelokre árið 2024. Verk­efnið vakti fljótt mikla athygli á TikTok og hefur síðan þró­ast yfir í umfangs­mik­inn ævin­týra­heim þar sem tón­list, mynd­list og frá­sagnir renna saman.

Í við­tal­inu við NME kemur fram að Ósk fædd­ist og ólst upp í Cavite-hér­aði á Fil­ipps­eyjum hjá ein­stæðri móður sinni. Íslenskur kjör­faðir háns kom inn í líf háns þegar hán var tíu ára og eftir það skipti þriggja manna fjöl­skyldan tíma sínum á milli Asíu og Norð­ur­landa.

Jól og frí á Íslandi

Fjöl­skyldan dvaldi meðal ann­ars flest jól og önnur frí á Íslandi. Ósk segir áhrif íslenska föður síns hafa verið mikil, ekki síst þegar kom að bók­menntum, kvik­myndum og tölvu­leikjum. Sá menn­ing­ar­heimur hafi síðar haft áhrif á Meadowlark, fantasíu­heim­inn sem liggur að baki Yaelokre.

Ósk segir reynsl­una jafn­framt hafa mótað sýn sína á fjöl­skyldu­bönd. Tengslin við íslenska kjör­föð­ur­inn hafi meðal ann­ars kennt háni að meta sér­stak­lega fjöl­skyldu­bönd sem verða til fyrir val og ást fremur en ein­göngu blóð­tengsl.

Í dag býr Ósk í London og er á samn­ingi hjá stór­út­gáf­unni Atlantic Records. Þrátt fyrir alþjóð­legan árangur eru tengslin við Ísland áfram hluti af sögu háns og þeim áhrifum sem hafa mótað sköp­un­ar­heim háns.

Frá Yaelokre yfir í Keath Ósk

Yaelokre byggir á Meadowlark-heim­inum sem Ósk þró­aði í teikn­ingum og sögum á barns- og ung­lings­árum sínum. Þar koma meðal ann­ars fyrir fjögur grímu­klædd börn sem Ósk ljær mis­mun­andi raddir.

Vin­sæld­irnar hafa orðið gríð­ar­legar. Lagið „Harpy Hare“ hefur sam­kvæmt NME verið spilað 242 milljón sinnum á Spotify og aðdá­endur mæta gjarnan á tón­leika klæddir bún­ingum úr Meadowlark-heim­inum.

Nú hefur Ósk hins vegar gefið út fyrstu plöt­una undir eigin nafni, „Foreword“. Þar stígur hán að hluta út úr þeim ramma sem Yaelokre hefur skapað og sýnir aðrar hliðar á sér.

Ósk segir Yaelokre áfram vera aðal­verk­efni sitt en að Keath Ósk gefi háni meira per­sónu­legt svig­rúm. Þar geti hán samið tón­list sem þurfi ekki að lúta reglum Meadowlark-heims­ins.

„Keath Ósk var búið til svo ég gæti átt lítið horn til að vera í,“ segir Ósk í við­tal­inu við NME.

Ósk hyggst halda áfram að vinna að báðum verk­efnum og færa sig á milli þeirra. Ísland er þannig einn þeirra staða og menn­ing­ar­heima sem hafa mótað hán sem lista­mann. Á aðeins tveimur árum hefur Ósk farið úr því að birta tón­list sér til gam­ans yfir í að eign­ast millj­ónir hlust­enda um allan heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Myndir
Fólk

DeLorean-tíma­vél rúll­aði um götur Reykja­víkur

Myndir
Fólk

Selja frið­lýst ein­býli með stór­kost­legu útsýni