Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Enn þurfa Austfirðingar að bíða eftir lögreglustjóra

Meira en hálft ár er síðan aug­lýst var eftir lög­reglu­stjóra á Aust­ur­landi

Enn þurfa Austfirðingar að bíða eftir lögreglustjóra
Egils­staðir Aust­ur­land er enn án lög­reglu­stjóra Mynd: Eysteinn Guðni Guðnason/Wikipedia

Enn hefur ekki verið skipað í emb­ætti lög­reglu­stjóra á Aust­ur­landi, þrátt fyrir að staðan hafi verið laus í meira en hálft ár. Skipan núver­andi sýslu­manns hefur aftur á móti verið fram­lengd um eitt ár. Kemur þetta fram í umfjöllun Aust­ur­fréttar.

Samkvæmt svörum dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Aust­ur­fréttar er unnið að skipun nýs lög­reglu­stjóra, en nið­ur­stöðu er að vænta „á næst­unni.“ Páley Borg­þórs­dóttir, lög­reglu­stjóri á Norð­ur­landi eystra, tók tíma­bundið við emb­ætt­inu 1. apríl síð­ast­lið­inn þegar Margrét María Sig­urð­ar­dóttir, sem áður gegndi starf­inu, var skipuð for­stjóri Mann­rétt­inda­stofn­unar.

Starfið var aug­lýst í júní og bár­ust þrjár umsóknir, en síðan hefur lítið verið látið uppi um fram­hald máls­ins.

Skipan Svavars Pálssonar framlengd til 2026

Svavar Pálsson, sýslu­maður á Norð­ur­landi eystra, var skip­aður sýslu­maður á Aust­ur­landi í fyrra til eins árs. Skipan hans hefur nú verið fram­lengd frá 1. nóv­em­ber 2025 til 31. októ­ber 2026.

Á sama tíma vinnur ráð­herra að því að sam­eina öll sýslu­manns­emb­ætti lands­ins í eitt. Upp­haf­lega átti hið sam­ein­aða emb­ætti að taka til starfa 1. jan­úar 2026, en þar sem málið dag­aði upp á Alþingi í vor hefur fram­kvæmd­inni verið frestað um ár – til 1. jan­úar 2027.

Undirbúningur fyrir breytingar hafinn

Fyrr í mán­uð­inum hélt starfs­fólk sýslu­manns­emb­ætt­anna sam­eig­in­legan vinnu­dag á Akureyri þar sem um 200 manns komu saman. Áhersla var lögð á fram­tíð­ar­sýn, sam­vinnu og for­ystu í aðdrag­anda vænt­an­legrar sam­ein­ingar.

Á vinnu­stofum var unnið að stefnu­mótun og mótuð for­gangs­mark­mið næsta árs undir leið­ar­stef­unum fram­sækni, þekk­ing og sam­vinna.

Í til­kynn­ingu segir að lögð hafi verið sér­stök áhersla á áfram­hald­andi staf­ræna þróun, sam­ræm­ingu verk­lags milli emb­ætta, aukn­ingu starfs­á­nægju og að allar breyt­ingar bygg­ist á gagn­sæi og trausti.

Að vinnu­deg­inum loknum var hald­inn aðal­fundur Sýslu­manna­fé­lags Íslands þar sem Svavar Pálsson var end­ur­kjör­inn for­maður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil