Tuttugu og þrír sóttu um embætti forstöðumanns Stafrænnar heilsu- þróunar- og þjónustumiðstöðvar en greint er frá þessu á vef stjórnarráðsins.
„Stafræn heilsa – þróunar- og þjónustumiðstöð verður sett á fót í byrjun næsta árs. Starfseiningin verður hluti af heilbrigðisráðuneytinu og mun heyra undir yfirstjórn ráðuneytisstjóra. Hlutverk hennar verður að samhæfa öll stafræn verkefni í heilbrigðisþjónustu og tryggja yfirsýn,“ segir í tilkynningunni.
Skipuð hefur verið sérstök þriggja manna hæfnisnefnd til að meta hæfni umsækjenda.
Formaður hæfnisnefndarinnar er Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir mannauðssérfræðingur hjá Auki. Aðrir nefndarmenn eru Anna María Urbancic, skrifstofustjóri í atvinnuvegaráðuneytinu og Sigrún Helga Lund, prófessor við Háskóla Íslands.












Athugasemdir