Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lýsir erfiðri baráttu sinni við íslenska heilbrigðiskerfið

Tomasz Bereza hvetur heil­brigð­is­kerfið til að virða rétt fólks til að fá við­eig­andi með­ferð og segir reynslu sína dæmi um það hvernig kerfið getur brugð­ist þeim sem það á að þjóna.

Lýsir erfiðri baráttu sinni við íslenska heilbrigðiskerfið
Tomasz Bereza Tomasz seg­ist ekki vera að biðja um mikið Mynd: Víkingur

Tomasz Bereza hefur búið á Íslandi síðan 2013. Hann talar íslensku, hefur starfað hér lengi og eig­in­kona hans og börn eru íslensk. Þrátt fyrir að vera hluti af sam­fé­lag­inu hefur hann síð­ustu ár átt í stöð­ugum erf­ið­leikum með heil­brigð­is­kerfið vegna alvar­legs eyrna­sjúk­dóms sem tók sig upp í des­em­ber 2022. Mannlíf ræddi við Tomasz um reynslu hans og bar­áttu til að fá við­eig­andi með­ferð.

Tomasz BerezaTomasz er afar ósáttur við heil­brigð­is­kerfið

Upphafið

„Ég fékk mjög slæma eyrna­bólgu sem end­aði með rof­inni hljóð­himnu og heila­himnu­bólgu. Ég var fluttur á spít­ala með sjúkra­bíl, með blæð­andi eyra og mikla verki. En eftir aðeins 40 mín­útur var ég sendur heim,“ segir Tomasz við Mannlíf og heldur áfram. „Eftir þetta missti ég heyrn­ina á hægra eyra og það tók meira en hálft ár að ná ein­hverri eðli­legri heyrn aftur.“ DV fjall­aði um málið á sínum tíma sem og Vísir.

„Síðan þá glími ég við höf­uð­verki, smellandi hljóð í eyra og vöðva­spennu í kjálka. Ég hef þurft að leita til fjölda lækna, bæði hér á Íslandi og erlendis, án þess að fá raun­veru­lega lausn. Þetta hefur haft mjög mikil áhrif á lífs­gæði mín,“ segir Tomasz.

Þú ferð­aðir til Póllands til að leita frek­ari aðstoðar. Hvernig gekk það?

„Ég fór til The Center of Hearing and Speech MEDINCUS í Kajetany í júlí 2025. Einn við­tals­tími dugði til að fá meiri upp­lýs­ingar en ég hafði fengið síð­ustu ár hér heima. Án gríns, lækn­ir­inn skoð­aði seg­u­l­óm­skoðun og tölvu­sneið­myndir í kannski tvær eða þrjár mín­útur og benti á þrjá mjög mik­il­væga hluti, en einn þeirra tengd­ist ekki því sem ég var að koma til hans út af. Lækn­ir­inn greindi stik­il­bólgu (e. mastoi­ditis), óvenju­lega þunnt skil­rúmi milli beins og heil­ans og tauga­vanda­mál í hinu eyr­anu. Hann sagði að aðgerð væri nauð­syn­leg til að hreinsa beinið og koma í veg fyrir lífs­hættu­legar fylgi­kvilla.“

Að sögn Tomaszar vildu lækn­arnir senda hann í aðgerð undir eins. „Þeir vildu fram­kvæma aðgerð­ina strax, en ég þurfti að láta Heil­brigð­is­stofn­un­ina vita af þess­ari nið­ur­stöðu og skipu­leggja vinnu mína og fjöl­skyldu­mál vegna þessa. Ég hélt að þetta yrði bara forms­at­riði og allt myndi ganga vel. Ég bók­aði aðgerð­ina í miðjum sept­em­ber og kom aftur til Íslands. Og þá byrja öll vanda­málin.“

Tomasz sagð­ist hafa vonað að hann fengi aðstoð í ljósi þess hversu lengi hann hefði búið hér á landi og hefði sterka teng­ingu við Ísland

„Ég hef búið á Íslandi síðan 2013, tala íslensku og hef unnið hér síðan þá. Konan mín er Íslend­ingur og börnin mín eru Íslend­ingar. Ég greiði skatta hér og vona að ég fái fljót­lega einnig íslenskan rík­is­borg­ara­rétt. Svo ég hugs­aði að kannski gæti heil­brigð­is­þjón­ustan hér hjálpað mér að greiða niður greiðsl­una þar sem eng­inn hér er til­bú­inn að hjálpa mér.“

Tomasz BerezaTomasz með eig­in­konu sinni, Kareni Bereza

Skriffinnskuhelvíti

Hvernig brugð­ust íslensk heil­brigð­is­yf­ir­völd við þessu?

„Ég sótti um end­ur­greiðslu fyrir aðgerð erlendis hjá Sjúkra­trygg­ingum Íslands. Fólkið þar leið­beindi mér um hvernig ég ætti að gera það: Fara til heim­il­is­læknis og láta hann fylla það út fyrir mig og það væri nóg. Svo ég bók­aði tíma á heilsu­gæslu­stöð en það tók nokkra daga fyrir þau að fylla út eyðu­blaðið því þau vissu ekki hvernig á að gera það.“

Lækn­ir­inn hins vegar sam­þykkti ekki að Tomasz þyrfti á aðgerð að halda.

„Í eyðu­blað­inu stóð að ég þyrfti aðgerð, en íslenski lækn­ir­inn sam­þykkti það ekki og svo fram­vegis. Loksins þegar ég fékk skjölin fór ég á Sjúkra, gaf þeim þau og mér var tjáð að afgreiðslu­tím­inn væri 6-8 vikur sem ég hafði ekki. Þeir sögðu að ég ætti að skrifa tölvu­póst á vef­síðu Sjúkra og það myndi hjálpa til við að flýta fyrir þessu. Ekkert þessu líkt gerð­ist. Ég beið og beið og hringdi en fékk engin svör frá þeim um hvað ég gæti gert. Eina vanda­málið var að ég get ekki farið til Póllands án leyfis, geri ég það, fæ ég ekki end­ur­greitt.“

Nákvæm­lega átta vikum síðar fékk umsókn hans synjun.

„Ég færði aðgerð­ina mína þá til októ­ber. Nákvæm­lega átta vikum eftir að ég sendi umsokn fékk ég svar þar sem stóð að mér hefði verið hafnað. Skjölin voru ekki rétt útfyllt og sá eini sem getur gert það er háls, nef og eyrna­læknir. Sjúkra hefur nokkrar reglur um fjár­mögnun sem segja til um: Annað hvort er aðgerð ekki í boði á Íslandi eða bið­tím­inn er mjög langur.“

Torsótt samskipti

Segir Tomasz að heim­sókn til HNE-læknis hafi ekki verið til fjár.

„Svo ég hafði sam­band við lækni hjá HNE og fékk tíma tveimur vikum síðar. Ég fór þangað og útskýrði hvað ég þyrfti. Hann sagði að þetta væru „ekki eld­flauga­vís­indi“ þegar ég útskýrði fyrir honum hversu góða með­ferð ég hafi fengið í Póllandi, en það lét mér líða eins og ég væri að gera of mikið úr þessu. Að lokum sagði hann að já, þessi aðgerð væri í boði hér en það væri langur bið­tími eftir henni og hann þekkti sér­fræð­ing­inn sem er sá eini sem fram­kvæmir þessa aðgerð hér á Íslandi, sem var eitt af skil­yrð­unum fyrir end­ur­greiðslu, og sam­þykkti að fylla út eyðu­blaðið. Hann sagði að hann myndi gera það sama dag og senda það á sjúkra­húsið sjálfur. Vá, hvað það var heimsku­legt af mér að trúa því. Heim­sóknin var 10. októ­ber. Ég hringdi 12. októ­ber til að athuga hvort hann hefði sent eyðu­blaðið, það gerði hann ekki. Ég hringdi í tvær vikur og bað um að það yrði hringt til mín til baka. Ég gerði það fimm sinnum en hann gerði það ekki fyrr en 22. októ­ber.“

Þá til­kynnti lækn­ir­inn að hann myndi fylla út eyðu­blaðið og skilja það eftir handa honum á skrif­stof­unni, svo hann gæti sótt það næsta föstu­dag.

Skipt um skoðun

„Á fyrr­nefndum föstu­degi tók ég mér hádeg­is­hlé til að sækja papp­írana en þegar ég var næstum komin þangað fékk ég sím­tal frá lækn­inum. Hann sagði að hann hefði ráð­fært sig við þann eina sér­fræð­ing sem fram­kvæmir þessa aðgerð hér og að það væri engin ástæða fyrir mig að fara í þessa aðgerð því hún myndi ekki breyta neinu fyrir mig. Og aðeins þessi sér­fræð­ingur væri rétti mað­ur­inn til að fylla út skjölin, sem aug­ljós­lega myndi ekki ger­ast. Hann minnt­ist líka á að þeir vildu gera aðgerð bara til að fá borgað! Ég er að velta fyrir mér hversu mikla pen­inga heil­brigð­is­þjón­ustan hefur borgað fyrir mig á þessum árum sem ég hef reynt að átta mig á hvað er í gangi, ég þori að veðja að þeir gætu borgað fyrir tvær til þrjár aðgerðir eins og þessa fyrir þann pen­ing. Ég var svo­lítið harður við hann, satt best að segja. Hann sagði að hann myndi ráð­færa sig aftur við þennan sér­fræð­ing og hringja í mig á mánu­dag, sem gerð­ist aldrei, í dag er liðin meira en vika.

Tomasz BerezaTomasz ætlar í aðgerð­ina, þrátt fyrir allt

Líkamlega og tilfinningalega erfitt

Tomasz segir málið hafa legið þungt á honum.

„Það hefur verið mjög erfitt. Þetta er ekki bara lík­am­legur sárs­auki heldur hefur þetta haft áhrif á and­lega heilsu mína. Ég hef misst trúna á heil­brigð­is­kerf­inu hér og finn fyrir miklum von­brigðum. Og ég er ekki bara að tala um mína reynslu, ég þekki þó nokkra sem hafa einnig verið að berj­ast við heil­brigð­is­kerfið hér. Ég vil bara fá við­eig­andi með­ferð og lifa heil­brigðu lífi.“

Hvað ætlarðu að gera núna?

„Ég mun fara í aðgerð­ina á eigin for­sendum, jafn­vel þó það kosti mig mikla pen­inga. Ef það dregur úr höf­uð­verkjum og minnkar hætt­una á sýk­ingum, þá er það þess virði. Ég vil standa upp fyrir rétt­inum til að fá hjálp og við­eig­andi heil­brigð­is­þjón­ustu.“

Egó lækna stærri en þekkingin

Segist Tomasz afar ósáttur við heil­brigð­is­kerfið á Íslandi og lækn­ana sem þar starfa.

„Heil­brigð­is­þjón­ustan hér er mjög ófag­mann­leg, læknar hér halda að þeir viti allt en í raun og veru eru þeir ekki mjög hjálp­samir og egóið þeirra er miklu stærra en þekk­ing þeirra og þeir eru ekki til­búnir að hjálpa þegar ein­hver þarf á því að halda,“ segir Tomasz og heldur áfram: „Kerfið er líka fullt af rugli, það er auð­velt fyrir þá að skera niður fjár­muni frá fólki sem þarfn­ast þeirra í raun og veru, allt tekur mik­inn tíma og hvað ef ein­hver hefur ekki tíma? Hver tekur ábyrgð ef veik­indi dregur ein­hvern til dauða ef hann er ekki með­höndl­aður í tæka tíð?“

Að lokum seg­ist Tomasz ekki vera að biðja um mikið.

„Aðal­at­riðið er að ég vil bara standa með rétt­indum mínum til að fá rétta með­höndlun og vera heil­brigður. Ég er ekki að biðja um mikið! Ég ber ekki mikið traust til heil­brigð­is­þjón­ust­unnar hér lengur, ef hún getur ekki hjálpað mér, af hverju ekki að gefa ein­hverjum öðrum tæki­færi?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi